Fréttatíminn - 24.05.2013, Blaðsíða 8
Sigríður Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
Ora grillsósur fást í næstu verslun!
Bernaisesósa
heitir pottar
Auðbrekku 6 · Kópavogi · Sími 565 8899 · www.normx.is
Við hjá NormX höfum framleitt heita potta í yfir 30 ár fyrir
íslenskar aðstæður. Við bjóðum fjölda gerða og lita ásamt öllu
því sem tilheyrir til að koma sér upp glæsilegum heitum potti
á verði sem kemur skemmtilega á óvart.
GERÐU VERÐ-SAMANBURÐ
LÍFRÆN
HOLLUSTA
N ú er ég bara orðin eirðarlaus og langar að komast heim í faðm fjöl-skyldunnar,“ segir Svanhvít Ada
Björnsdóttir sem fyrir sléttri viku gekkst
undir kynleiðréttingaraðgerð. Hún liggur
enn á lýtalækningadeildinni á Landspítalan-
um í Fossvogi. Hinar fjórar transkonurnar
sem fóru í samskonar aðgerð í síðustu viku
eru allar saman á stofu, beint á móti Svan-
hvíti. „Þær fóru í sínar aðgerðir á miðviku-
dag og fimmtudag. Ég fór í aðgerð á föstu-
dag og þá var ekki meira pláss þannig að ég
fékk hérna sérherbergi,“ segir Svanhvít. Í
síðasta tölublaði Fréttatímans sagði Svan-
hvít frá uppvexti sínum sem lítil stúlka föst
í líkama drengs og hvernig hana dreymdi
alltaf um það að hafa fæðst í líkama konu.
Fyrstu dagana eftir aðgerðina lá hún að
mestu fyrir og svaf. Eiginkona hennar, hin
bandaríska Erin, var hjá henni fyrstu dag-
ana en þurfti síðan að fara aftur til Banda-
ríkjanna. Aðgerðin sjálf tók þrjá til fjóra
tíma og þegar Svanhvít vaknaði eftir aðgerð-
ina leið henni mjög undarlega. „Mér fannst
eins og kynfærin á mér væru að brenna.
Klofið var alveg glennt út því ég var með svo
mikið af umbúðum,“ segir hún.
Það var ekki fyrr en á þriðjudag sem
Svanhvít tók sín fyrstu skref, þá með aðstoð
fjögurra kvenna. „Þetta var eitthvað það erf-
iðasta sem ég hef gert. Nú veit ég hvernig
það er að vera gömul kona sem á erfitt með
að ganga,“ segir hún í gríni. Hún fór síðan í
fyrsta eiginlega göngutúrinn um deildina á
fimmtudag. Þann sama dag voru umbúðirn-
ar teknar af henni. „Það var mjög spes. Mér
fannst ég öll léttari.“
Hún reiknar ekki með að útskrifast fyrr
en eftir helgina. „Það er svo margt sem ég
er spennt fyrir að upplifa. Til dæmis bara
að geta farið í nærbuxur án þess að það sé
bunga. Ég á stuttbuxnapils heima sem ég
hef ekki getað gengið í út af bungunni. Svo
get ég núna loksins farið á klósettið eins
og ég kalla eðlilega. Eftir þrjá til sex mán-
uði þegar allt er búið að gróa fer ég síðan í
lýtaaðgerð á kynfærum. Það er eiginlega
það sem ég er spenntust fyrir,“ segir hún.
Eins og hún sagði í Fréttatímanum fyrir
viku lítur hún ekki á aðgerðina sem upphaf
eða endi heldur einfaldlega hraðahindrum
sem hún þurfti að komast yfir. „Þetta er
bara atriði sem þurfti að afgreiða. Nú er ég
orðin eins eðlileg og hægt er að kalla eðli-
legt,“ segir hún.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Ingólfur Geir Gissurarson með fánann á toppi Everest hinn 21. maí.
Afrek fimmti og sjötti ÍsleNdiNguriNN til Að klÍfA topp everest
Tveir á toppnum
Leifur Örn Svavarsson og
Ingólfur Geir Gissurarson
náðu takmarki sínu og komust
á topp Everest í vikunni,
Ingólfur að morgni 21. maí og
Leifur í gær. Leifur var fyrstur
Íslendinga til að fara norðan-
megin upp á tindinn, en sú
leið er fáfarnari og erfiðari, og
um leið sjötti Íslendingurinn
til að ná alla leið á toppinn.
Ingólfur var kominn niður
í grunnbúðir í gær og var
sagður við fína heilsu en mjög
þreyttur eftir svefnlitla nótt
og erfiða ferð gegnum ísfallið
niður í búðirnar.
Félagi Ingólfs, Guðmundur
Stefán Maríusson, neydd-
ist hinn 8. maí til að snúa við
vegna veikinda.
Fyrstu Íslendingarnir sem
klifu á topp Everest voru
þeir Björn Ólafsson, Einar
Stefánsson og Hallgrímur
Magnússon sem komust á
tind fjallsins að morgni 21.
maí 1997. Þann 16. maí 2002
komst Haraldur Örn Ólafsson
á tindinn.
Heilbrigðismál viku eftir Aðgerð er svANHvÍt AdA eNN Að jAfNA sig
„Orðin eins eðlileg og hægt er“
Svanhvít Ada Björnsdóttir er fegin að kynleiðréttingaraðgerðin hennar er búin. Hún er enn að
jafna sig á spítalanum enda um afar stóra aðgerð að ræða. Hún er einna spenntust fyrir að geta
klætt sig í nærbuxur án þess að þar sé nokkur bunga.
Eftir þrjá
til sex
mánuði
þegar allt
er búið að
gróa fer
ég síðan í
lýtaaðgerð
á kynfær-
um.
Svanhvít er enn á spítala eftir aðgerðina. Hún reiknar með að útskrifast eftir helgina. Ljósmynd/Hari
8 fréttir Helgin 24.-26. maí 2013