Fréttatíminn - 24.05.2013, Page 14
American Express
Valid Thru Member Since
American Express
Valid Thru Member Since
Kynntu þér kostina á www.americanexpress.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Icelandair American Express®
færir þér alltaf Vildarpunkta
þegar þú verslar, líka erlendis
American Express er skrásett vörumerki American Express. er útgefandi American Express® samkvæmt leyfi frá American Express
A llt frá því að forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, tilkynnti skömmu eftir að úrslit þingkosninganna lágu
ljós fyrir, að hann myndi veita Sigmundi
Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknar-
flokksins, umboð til stjórnarmyndunar hafa
fjölmiðlar – og almenningur – fylgt honum
hvert fótmál og vaktað hvert orð í von um að
það varpi ljósi á hvert ný ríkisstjórn stefni þjóð
sinni næstu fjögur árin. Blaðamannafundur-
inn á miðvikudaginn var lokatónninn í stjórn-
armyndunarsinfóníu félaganna Sigmundar og
Bjarna – og var tónninn sá, tær framsóknar-
tónn. Sigmundur Davíð tók við formennsku
Framsóknarflokksins í ársbyrjun 2009, aðeins
örfáum mánuðum eftir hrun. Þjóðin var í upp-
námi og fullkominni óvissu um framtíð sína
og enn í áfalli eftir að Geir Haarde bað Guð
að blessa Ísland. Hér var ótti og ringulreið
ríkjandi og fólk leitaði öryggis – og fann það í
„hinu gamla“. Hugsjónum útrásarvíkinganna
var hrundið fyrir borð og lífsgildi ömmu og
afa rifjuð upp. Umræðan umturnaðist. Gleri
og stáli var skipt út fyrir endurunnið timbur
og gæruskinn, kampavín og kavíar sniðgengið
fyrir hrútspunga og malt. Þjóðin tók slátur
sem aldrei fyrr og íslenskur lopi seldist í
bílförmum. Þetta var hið nýja Ísland. Hið nýja,
gamla Ísland.
Inn í ringulreiðina
Inn í þessa ringulreið, þetta ástand, kemur
Sigmundur Davíð sem fyrirvaralítið tekur
við stjórnartaumi í öðrum þeim flokki sem Ís-
lendingar kenndu um hrunið. Hann skynjar
hjartslátt þjóðarinnar og fer undir eins að tala
í takti við þann slátt. Fyrir fjórum árum var
þjóðin þó enn svo reið, svo slegin, í svo miklu
áfalli, að hún var ekki tilbúin að hlusta. Heldur
kaus hún til valda andstæðu þeirra afla sem
hér höfðu haldið um stjórnartaumana jafn-
lengi og nýjustu kjósendurnir mundu. Þjóðin
vildi breytingar. Ákallið eftir þeim krist-
allaðist í kröfunni um nýja stjórnarskrá sem
ný ríkisstjórn lofaði. Á þjóðfundi komu fram
gildin jafnrétti, lýðræði, mannréttindi, virðing
og ábyrgð og átti að nýta þau við gerð nýrrar
stjórnarskrár. Áhugi á nýrri stjórnarskrá
dvínaði eftir því sem augu fólks opnuðust fyrir
Framsóknartónn-
inn hefur ómað
skært frá því Ólafur
Ragnar Grímsson fékk
Sigmundi Davíð Gunn-
laugssyni stjórnar-
myndunarumboðið.
Hann bergmálaði um
sali Héraðsskólans á
Laugarvatni þegar
stefnuyfirlýsing nýrrar
ríkisstjórnar var kynnt
enda sveif andi Jónasar
frá Hriflu yfir vötnum.
Hinn tæri framsóknartónn
Framhald á næstu opnu
Framsóknartónninn ómaði um sali Héraðsskólans á Laugarvatni þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson kynntu nýjan stjórnarsáttmála.Ljósmynd/Hari
14 fréttakýring Helgin 24.-26. maí 2013