Fréttatíminn


Fréttatíminn - 24.05.2013, Qupperneq 16

Fréttatíminn - 24.05.2013, Qupperneq 16
Forsætisráð- herra Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Aldur: 38 ára. Menntun: BS-próf frá viðskipta- og hag- fræðideild HÍ 2005 auk hlutanáms í fjölmiðlafræði. Nám við stjór- nmálafræðideild Kaupmannahafn- arháskóla í alþjóða- samskiptum og opinberri stjór- nsýslu. Framhalds- nám í hagfræði og stjórnmálafræði við Oxford-háskóla. Fjölskylduhagir: Kvæntur Önnu Sigurlaugu Páls- dóttur og eiga þau eina dóttur. Reynsla úr pólitík: Þingmaður í Reykjavík norður 2009-2013 og í NA-kjördæmi 2013. Formaður Fram- sóknarflokks 2009. Reynsla úr atvinnu- lífinu: Sumarafleys- ingar hjá RÚV. Sjávarútvegs-, landbúnaðar- og umhverfis- ráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson Aldur: 41 árs. Menntun: Dýralækn- ingar. Fjölskylduhagir: Kvæntur Ingibjörgu Elsu Ingjaldsdóttur og á þrjú börn og tvö stjúpbörn. Reynsla úr pólitík: Oddviti Hruna- mannahrepps 2000-2009. Vara- formaður Fram- sóknarflokksins 2013. Þingmaður í Suðurkjördæmi frá 2009. Reynsla úr atvinnu- lífinu: Bóndi og dýralæknir. Utanríkis- ráðherra Gunnar Bragi Sveinsson Aldur: 45 ára. Menntun: Stúdents- próf FNV á Sauðár- króki 1989. Nám í atvinnulífsfélags- fræði HÍ. Fjölskylduhagir: Kvæntur Elvu Björk Guðmundsdóttir og á með henni þrjá syni og tvo stjúpsyni. Reynsla úr pólitík: Aðstoðarmaður félagsmálaráð- herra 1997-99. Þingmaður í Norð- vesturkjördæmi frá 2009. Formaður þingflokks fram- sóknarmanna frá 2009. Reynsla úr atvinnu- lífinu: Verslunar- stjóri. Félagsmála- ráðherra Eygló Harðardóttir Aldur: 40 ára. Menntun: Fil.kand.- próf í listasögu frá Stokkhólmsháskóla 2000. Framhalds- nám í viðskipta- fræði HÍ síðan 2007. Fjölskylduhagir: Gift Sigurði E. Vilhelms- syni og eiga þau tvær dætur. Reynsla úr pólitík: Varaþingmaður Framsóknarflokks í Suðurkjördæmi feb.-mars 2006. Þingmaður í Suðurkjördæmi 2008-2013. Reynsla úr atvinnulíf- inu: Framkvæmda- stjóri. Fjármála- og efnahagsráð- herra Bjarni Benediktsson Aldur: 43 ára. Menntun: Lögfræði- próf HÍ 1995. Nám í þýsku og lögfræði í Þýskalandi 1995- 1996. LL.M.-gráða frá University of Miami School of Law í Bandaríkj- unum 1997. Hdl. 1998. Löggiltur verðbréfamiðlari 1998. Fjölskylduhagir: Kvæntur Þóru Margréti Baldvins- dóttur og eiga þau fjögur börn. Reynsla úr pólitík: Þingmaður í Suð- vesturkjördæmi frá 2003. Formaður Sjálfstæðisflokks 2009. Reynsla úr atvinnu- lífinu: Lögmaður. Stjórnarformaður N1. Heilbrigðis- ráðherra Kristján Þór Júlíusson Aldur: 56 ára. Menntun: Skipstjórn- arpróf frá Stýri- mannaskólanum í Reykjavík 1978. Nám í íslensku og almennum bók- menntum HÍ 1981- 1984. Kennslurétt- indapróf HÍ 1984. Fjölskylduhagir: Kvæntur Guðbjörgu Baldvinsdóttur Ringsted og eiga þau þrjú börn. Reynsla úr pólitík: Bæjar- stjóri Dalvíkur og síðan Akureyrar. Þingmaður Sjálf- stæðisflokks í Norðausturkjör- dæmi frá 2007. Reynsla úr atvinnu- lífinu: Sjómaður og kennari Innanríkis- ráðherra Hanna Birna Kristjánsdóttir Aldur: 46 ára. Menntun: BA-próf í stjórnmálafræði HÍ 1991. MSc-próf í alþjóðlegum og evrópskum stjórnmálum frá Edinburgh University 1993. Fjölskylduhagir: Gift Vilhjálmi Jens Árnasyni og eiga þau tvær dætur. Reynsla úr pólitík: Framkvæmda- stjóri þingflokks Sjálfstæðismanna 1995-99. Aðstoðar- framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks- ins 1999-2006. Borgarfulltrúi 2002-2010. Borgarstjóri í Reykjavík 2008- 2010. Þingmaður Reykjavík suður 2013. Varafor- maður Sjálfstæðis- flokksins 2013. Reynsla úr atvinnu- lífinu: Deildar- sérfræðingur í menntamálaráðu- neytinu 1994-5. Mennta- og menningar- málaráðherra Illugi Gunnarsson Aldur: 45 ára. Menntun: BS-próf í hagfræði HÍ 1995. MBA-próf frá London Business School 2000. Fjölskylduhagir: Kvæntur Brynhildi Einarsdóttur og eiga þau eina dóttur. Reynsla úr pólitík: Aðstoðarmaður forsætisráðherra 2000-2005. Þing- maður Reykjavík suður 2007-2009 og Reykjavík norður frá 2009. Formaður þing- flokks sjálfstæðis- manna 2009-2010 og frá 2012. Reynsla úr atvinnulíf- inu: Skrifstofustörf. Iðnaðar- og viðskipta- ráðherra Ragnheiður Elín Árnadóttir Aldur: 45 ára. Menntun: BA-próf í stjórnmálafræði frá HÍ 1991. MS-próf í alþjóðasamskiptum frá Georgetown University í Banda- ríkjunum. Fjölskylduhagir: Gift Guðjóni Inga Guðjónssyni og eiga þau tvo syni en Guðjón átti fyrir tvær dætur. Reynsla úr pólitík: Aðstoðarmaður fjármálaráðherra 1998-2005, að- stoðarmaður utan- ríkisráðherra 2005- 6, aðstoðarmaður forsætisráðherra 2006-7. Þingmaður Suðvesturkjör- dæmis 2007-2009 og í Suðurkjördæmi frá 2009. For- maður þingflokks sjálfstæðismanna 2010-2012. Reynsla úr atvinnu- lífinu: Starfsmaður Útflutningsráðs Íslands 1995-8, viðskiptafulltrúi í New York. Ráðherrarnir flestir atvinnupólitíkusar Ný ríkisstjórn tók við völdum í gær, fimmtudag, og fóru lyklaskipti fram í forsætisráðuneyti og fjár- málaráðuneyti í gær. Aðrir ráðherrar fá afhent ráðuneyti sín í dag. Athygli hefur vakið að enginn ráðherranna hefur áður setið á ráðherrastóli. Dýralæknispróf Sigurðar Inga nýtist ef til vill betur í landbúnaðarráðuneytinu en í fjármálaráðuneytinu í tíð Árna Mathiesen. Sigurður Ingi hefur þó einnig verið bóndi. Það ætti að gagnast honum í við- ræðum við bændur. Athygli vekur hins vegar hve litla reynslu úr atvinnulífinu hinir nýju ráðherrar hafa almennt. Sjálfstæðisráðherrarnir eru flestir atvinnupólitíkusar sem hafa lengst af starfað hjá ríkinu sem aðstoðarmenn ráðherra, bæjarstjóri eða borgarstjóri þó svo að færa megi fyrir því rök að það muni heldur betur nýtast í nýju starfi. Eina starfsreynsla hins nýja forsætisráðherra er, utan fjögurra ára þingreynslu, sumarafleysingar á RÚV. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is 16 fréttaskýring Helgin 24.-26. maí 2013
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.