Fréttatíminn - 24.05.2013, Síða 17
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
6
37
71
0
4/
13
+ Nánari upplýsingar hjá hópadeild Icelandair
í síma 50 50 406 eða á hopar@icelandair.is
HÓPFERÐIR
SJÁIÐ HEIMINN
Í GÓÐRA VINA HÓPI
Árshátíð, haustferð, stórafmæli?
Njótið þess að ferðast saman og vera til.
Icelandair býður hópferðir til fjölmargra
áfangastaða austan hafs og vestan, ferðir
sniðnar að þörfum fólks í góðra vina hópi* sem
eiga örugglega eftir að hressa upp á tilveruna.
Hafið samband við hópadeild Icelandair
Skipuleggið ferðina tímanlega. Við getum séð
um að bóka flug, hótel, rútur, skoðunarferðir og
kvöldverði. Leitið tilboða með því að fylla út
fyrirspurnarformið á icelandair.is/hopar
* Hópur miðast við að 10 eða fleiri ferðist saman.
því að með henni væri ekki
hægt að leiðrétta það efna-
hagslega ójafnvægi sem skollið
hafði á við hrunið. Ný stjórnar-
skrá myndi ekki leysa fjár-
hagsvanda heimilanna. Hinn
raunverulegi vandi þjóðarinnar
var efnahagslegs og fjárhags-
legs eðlis. Heimilin skorti ráð-
stöfunarfé, laun höfðu lækkað,
lán hækkað og nauðsynjavörur
sömuleiðis.
Hjálpaði hinum verst
stöddu
Vinstri stjórnin gerði það sem
í hennar valdi stóð til þess að
reisa skjaldborg um þá sem
minnst máttu sín, líkt og lofað
var. Hinum verst stöddu var
hjálpað með ýmsum leiðum
þótt mest munaði um þá hjálp
sem fékkst frá dómstólum
þegar gengislánin svoköll-
uðu voru dæmd ólögmæt og
þeir sem höfðu séð höfuðstól
erlendra lána sinna tvöfaldast
eftir hrun gátu andað léttar.
Eftir stóðu þeir sem höfðu
tekið lán í íslenskum krónum
og gátu borgað af þeim þótt
afborganir og höfuðstóll væru
algjörlega út úr kortinu miðað
við þær forsendur sem lagt
var upp með. Þessi hópur var
hinn þögli meirihluti sem
barði ekki á potta, hafði ekki
mikla skoðun á nýrri stjórnar-
skrá, kaus gegn Icesave, var
óviss um að evran væri svar
við öllu. Þessi hópur hélt hús-
inu sínu en þurfti að horfast í
augu við aukna skattheimtu,
skerðingu tekjutengdra bóta
á borð við barnabætur og
vaxtabætur, um leið og það
sá lánin sín hækka. Þennan
þögla hóp hlustaði fyrrverandi
ríkisstjórn ekki á – því að í
anda jafnaðarmennskunnar,
skyldi fyrst hjálpa þeim sem
verst stóðu.
Sigmundur lagði við
hlustir
En Sigmundur Davíð lagði við
hlustir. Þó svo að þjóðin hafi
ekki verið tilbúin fyrir Fram-
sóknarflokkinn árið 2009 var
hún svo tilbúin fyrir Sigmund
Davíð árið 2013 að hún gerði
hann að forsætisráðherra. Sig-
mundur Davíð er maðurinn
sem hlustaði á þjóðina. Hann
heyrði að hennar stærsta
áhyggjuefni var enn, fjórum
árum eftir hrun, fjárhagsstaða
heimilanna og hann kom fram
með hugmyndir sem fékk
fólk til að leggja við hlustir.
Hugmyndir sem snertu það
sem raunverulega skiptir fólki
máli: buddu þess. Og þegar
aðrir flokkar áttuðu sig á því
að Sigmundur Davíð hafði
rænt umræðunni – var allt um
seinan.
Stjórnarmyndunarvið-
ræður flokkanna tveggja
voru út á við algjörlega á for-
sendum Framsóknarflokks-
ins. Sigmundur Davíð lék leik
þess sem valdið hefur af
mikilli kænsku er hann
sagðist ætla að ræða við
alla flokka í starfrófs-
röð og kanna hvort finna
mætti samhljóm með
hugmyndum Framsókn-
arflokksins um leiðrétt-
ingu stökkbreyttra lána,
eins og hann hefur kallað
verðtryggð lán. Bjarni
Benediktsson þurfti að
bíða í röð eins og hinir.
Ríkisstjórnarsáttmál-
inn ber mikinn framsókn-
arkeim. Orðalag hans
ber vott um þjóðernis-
kennd í anda hins nýja,
gamla Íslands sem varð
til í kjölfar hrunsins enda
er markmiðið að „rækta
með þjóðinni þær dyggðir
sem best tryggja farsæld
og jafnræði,“ líkt og þar
segir. Samvinnuhug-
sjónin svífur jafnframt
yfir vötnum og er vísað
til þess að framfarir og
bætt lífskjör á Íslandi hafi
byggst á samvinnu og
samheldni og til fram-
tíðar muni Íslendingar
halda áfram að leysa sam-
eiginlega af hendi helstu
verkefni þjóðfélagsins.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
fréttaskýring 17 Helgin 24.-26. maí 2013