Fréttatíminn


Fréttatíminn - 24.05.2013, Síða 18

Fréttatíminn - 24.05.2013, Síða 18
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@ frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. N Ný ríkisstjórn tók við völdum í gær, sam- stjórn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðis- flokksins undir forystu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Ríkisstjórnin er með ríf- legan meirihluta á þingi, hvor flokkur hlaut 19 menn kjörna í nýafstöðnum kosningum. Sá rúmi meirihluti ætti að auðvelda henni að koma málum í gegn. Í kjölfar kosningalof- orða, ekki síst hvað varðar skuldamál heimil- anna sem Framsóknarflokkurinn lagði megináherslu á, eru væntingar bundnar við hina nýju stjórn. Uppgjör þess máls mun ráða örlögum hennar samhliða því hvernig til tekst við stjórn efnahagsmála. Framsóknar- flokkurinn vann mikinn kosningasigur. Þann sigur má helst rekja til festu í Icesave- málinu og þeirrar stefnu sem flokkurinn markaði varðandi skuldamál heimilanna. Vita- skuld þurfa ný stjórnvöld tíma til að koma þessum helstu stefnumálum sínum í framkvæmd en þar mun reyna á fyrr en síðar. Ekki er víst að þolinmæði kjósenda, ekki síst þeirra sem flykktu sér undir merki Framsóknarflokksins, sé mikil. Annað sem skipta mun máli er traust milli forystumanna ríkisstjórnarflokkanna og stjórnarflokkanna beggja – og innan þeirra. Til þess eru vítin að varast þau. Fráfarandi ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur moln- aði að innan vegna innbyrðis flokkaátaka, einkum í þingflokki Vinstri grænna þar sem hluti þingmanna lýsti óánægju sinni með því að róa á önnur mið. Stjórnin missti því í raun þingmeirihluta sinn. Þótt hún sæti út kjörtímabilið gekk henni lítt að koma stefnu- málum áleiðis. Ríkisstjórn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins ætlar sér, að því er fram kemur í sáttmála hennar, að hefja nýja sókn í þágu lands og þjóðar með bættan hag heimilanna og eflingu atvinnulífs að leiðarljósi svo aukin verðmætasköpun verði í þágu almennings. Um þetta markmið geta menn verið sammála, hvar í flokki sem þeir standa, sem og þau markmið stjórnar- innar að skapa skilyrði fyrir hagvöxt sem knúinn verður áfram af auknum útflutningi og bættri framleiðni í einkageiranum og hjá hinu opinbera. Skapa verður fyrirtækjum starfsumhverfi sem stuðlar að fjárfestingu og fjölgun starfa svo þau standi undir þeirri atvinnu sem nauðsynleg er heimilunum. Brýnt er, eins og ríkisstjórnin ætlar sér, að einfalda skattkerfið svo rekstur fyrirtækja verði skilvirkari. Um það þarf vart að deila að ábyrg efnahagsstjórn er forsenda vel- ferðar, öflugs heilbrigðis- og menntakerfis, löggæslu og annarrar grunnþjónustu, eins og fram kemur í stjórnarsáttmálanum – og að agi og jafnvægi í ríkisfjármálum gegni lykilhlutverki við að tryggja stöðugleika, lægri vexti og litla verðbólgu. Stöðugleikinn næst með samvinnu allra og á hana mun reyna strax á þessu ári því kjarasamningar eru lausir í haust. Það mun, auk stjórnvalda, reyna á Samtök atvinnulífs- ins og launþegahreyfinguna, hvort heldur er á almennum eða opinberum markaði. Ná þarf þjóðarsátt um kjarasamninga sem ekki eru verðbólguhvetjandi. Stjórnvöld geta liðkað fyrir með skattalagabreytingum til kjarabótar fyrir heimilin. Forystumenn í sjávarútvegi héldu að sér höndum á liðnu kjörtímabili vegna deilna og óvissu um framtíð greinarinnar. Slíkt má ekki henda. Því ríður á að nýrri stjórn takist að ná bærilegri sátt um framtíðarskipulag greinarinnar með því að tryggja henni gott starfsumhverfi en um leið greiði útvegurinn sanngjarnt veiðigjald fyrir afnotarétt að hinni takmörkuðu auðlind. Ekki er ofsagt í sáttmála stjórnarflokk- anna að eitt mikilvægasta verkefni þeirra sé að vinna að afnámi fjármagnshafta. Gjald- eyrishöftin voru neyðarúrræði í kjölfar hrunsins, ætluð til að verja gengi krónunnar en langtímaáhrif þeirra eru afar skaðleg og geta haft þveröfug áhrif enda skapa þau stöð- ugan þrýsting til lækkunar á gengi krónunn- ar vegna þeirrar takmörkunar á framboði gjaldeyris sem þau valda. Í því máli og öðrum sem til framfara horfa þarf aukna samstöðu. Forystumenn ríkisstjórnarinnar boða að þeir muni leggja áherslu á samvinnu við forystumenn stjórnar- andstöðuflokkanna. Eftir slíkri samvinnu kallar þjóðin, langþreytt á sundurlyndi og tor- tryggni sem einkennt hefur íslensk stjórnmál. Ríkisstjórnarskipti Kallað eftir samvinnu og þjóðarsátt Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Voltaren 11,6 mg/g, hlaup. Inniheldur 11,6 mg af díklófenaktvíetýlamíni. Ábendingar: Staðbundnir bólgukvillar. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir og börn 14 ára og eldri: 2-4 g af hlaupi borið á aumt svæði 3-4 sinnum á sólarhring. Mælt er með handþvotti eftir notkun, nema verið sé að meðhöndla hendur. Ef meðhöndla á bráð, minniháttar meiðsli í stoðkerfi skal ekki nota Voltaren lengur en 7 daga án samráðs við lækni. Hafið samband við lækninn ef einkenni eru viðvarandi eða versna eftir meðferð í 7 sólarhringa. Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna, asetýlsalisýlsýru og öðrum bólgueyðandi gigtarlyfjum (NSAID). Sjúklingar sem hafa fengið astma, ofsakláða eða bráða nefslímubólgu af völdum asetýlsalisýlsýru eða annarra bólgueyðandi gigtarlyfja (NSAID) eiga ekki að nota lyfið. Síðustu 3 mánuðir meðgöngu. Má ekki nota handa börnum og unglingum 14 ára og yngri. Sérstök varnaðarorð: Má eingöngu bera á heila og heilbrigða húð og alls ekki á slímhúðir eða augu. Getur valdið húðertingu. Varast skal mikið sólarljós, notkun samhliða bólgueyðandi lyfjum eða að hylja notkunarsvæðið með loftþéttum umbúðum. Gæta skal sérstakrar varúðar hjá öldruðum eða astma-/ofnæmis-sjúklingum (hefur valdið berkjukrampa). Hætta á meðferð ef útbrot koma fram eftir notkun. Við notkun á stór húðsvæði eykst hættan á almennum aukaverkunum, t.d. á nýru. Við brjóstagjöf eða meðgöngu má eingöngu nota lyfið í samráði við lækni. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfis hafi: Novartis Consumer Health S.A. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ Fæst án lyfseðils Veldur síður lyfjaáhrifum um allan líkamann eins og þegar töflur eru teknar inn Verkjastillandi bólgueyðandi Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is 25-40% af barnavöru Barnadagar mmtudag - föstudag - laugardag Rúmföt Sloppar Handklæði Rimlahlífar Þvottahanskar Dúnsængur Smekkir Púðar Lök Sendum frítt www.lindesign.is Börnin fá rúmföt fyrir dúkkuna eða bangsann 18 viðhorf Helgin 24.-26. maí 2013

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.