Fréttatíminn - 24.05.2013, Side 40
einungis unnið
úr safa ungra
grænna
kókoshneta
himneskt.is
Heiðursmenn & hallir
25. ágúst - 1. september
Fararstjóri: Árni Snæbjörnsson
Verð: 204.900 kr.
á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið!
Sumar 17
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Voldugir kastalar, klettóttar
strandlengjur og Cornwall, er meðal
þess sem hægt er að njóta í spennandi
ferð til Suður Englands. Örfá sæti laus!
00000
w w w. v e i d i k o r t i d . i s
Eitt kort
35 vötn
6.900 kr
FLEIRI VÖTN ÓBREYTT VERÐ
40 ferðir Helgin 24.-26. maí 2013
Stokkhólmur Fjör við FerjuhaFnirnar
Fáðu meira
út úr Fríinu
Gerðu verðsamanburð á hótelum
oG bílaleigum út um allan heim oG
bókaðu sértilboð á GistinGu á túristi.is
T Ú R I S T I
Þ að er fjör við ferjuhafnirnar í Stokkhólmi því margir vilja út í hinn rómaða Skerjagarð. Krist-ján Sigurjónsson sigldi út í eyjarnar sem raða
sér svo fallega fyrir utan borgina.
Eystrasalt teygir anga sína inn í Stokkhólm og
setur svo sterkan svip á byggðina að borgin er stund-
um kölluð Feneyjar norðursins. Ferjurnar sem flytja
heimamenn og túrista út í eyjarnar í Skerjagarðinum
sækja farþegana því eiginlega heim að dyrum. Þeir
lesendur sem ætla að verja tíma í Stokkhólmi í sumar
ættu að nýta sér þessar góður samgöngur og sigla út í
hinn stórkostlega Skerjagarð og eyða þar dagparti eða
jafnvel nokkrum dögum.
Rækjubátur um borð
Ferjurnar leggja í hann frá þremur mismunandi
stöðum í miðborginni og það er vissara að panta miða
með fyrirvara og mæta tímanlega til að finna rétta
ferju. Það myndast líka löng röð við bátana því fólk
vill tryggja sér sætin nálægt veitingasölunni þar sem
kardemommubollur, pylsur og dýrindis rækjulokur
seljast eins og heitar lummur. Það er líka í góðu lagi
að taka með sér nesti og spara sér ferð í sjoppuna.
Það er ekki svo dýrt að fá far með út í Skerjagarð-
inn. Klukkutíma sigling út í Vaxholm, eina vinsæl-
ustu eyjuna, kostar til að mynda um 1400 krónur (75
sænskar) með Vaxholmsbolaget. Þar er svo hægt að
verja deginum í að skoða bæinn, stóru húsin og borða
klassískan „hússmannsmat“ á hótelinu og horfa út á
hafið.
Ógnandi kafbátar
Ein vinsælasta eyjan er Sändhamn en þangað fer eng-
inn í dagsferð frá Stokkhólmi því báturinn er rúma
þrjá tíma á leiðinni. Hin sjarmerandi Finnhamn er
aðeins nær borginni og má mæla sérstaklega með
heimsókn þangað fyrir þá sem vilja eyða smá tíma á
kyrrlátri eyju með fallegum skógi og fögrum víkum.
Á Finnhamn er gist á farfuglaheimili eða í einföldum
bústöðum. Á sumum eyjum eru líka hótel, til dæmis
á Utö þar sem fólk ver deginum í að stinga sér ofan í
sjóinn af klöppunum við norðurströndina eða sólar sig
í sandinum í suðurhlutanum. Utö hefur verið í byggð
síðan á sjöttu öld en Rússar léku eyjaskeggja grátt á
þeirri átjándu. Það er því ekki að undra að óttinn við
innrás frá Sovétríkjunum var landlægur á þessum
slóðum lengi. Eyjan Siaröfortet ber þess heldur betur
merki því stór hluti hennar er virki sem nota átti til að
verjast sovéskum kafbátum á kaldastríðsárunum. Það
er þó afskaplega friðsælt við farfuglaheimili eyjunnar
þar sem boðið er upp á einfalda gistingu, fínar veit-
ingar og gufubað í flæðarmálinu.
Ferðafélag Svíþjóðar (Svenska Turistföreningen)
sér um gistinguna á flestum eyjunum og kostar nóttin
á farfuglaheimilum um 20 þúsund með morgunmat.
Kristján Sigurjónsson
ritstjorn@frettatiminn.is
Kristján Sigurjónsson heldur úti ferðavefnum Túristi.is þar sem
finna má nánari upplýsingar um ferðalög út í Skerjagarðinn við
Stokkhólm.
Skerjagarðurinn er innan seilingar
Þær eru ekki stórar ferjurnar sem sigla út í Skerjagarðinn
enda eru bryggjurnar út í eyjunum oftast mjög litlar.
Það tekur einn tíma og tuttugu mínútur að sigla til eyjunnar Grinda í Skerjagarðinum fyrir utan Stokkhólm.
Stokkhólmur að baki og hinn fagri Skerjagarður framundan.