Fréttatíminn


Fréttatíminn - 24.05.2013, Blaðsíða 76

Fréttatíminn - 24.05.2013, Blaðsíða 76
8 viðhald húsa Helgin 24.-26. maí 2013 Níutíu og fjögurra ára járnvöruverslun Verslunin Brynja var stofnuð árið 1919 og er elsta starfandi járnvöruverslun landsins. Gólfflötur Brynju er minni en flestra annarra byggingavöruverslana á Íslandi en vöruúrvalið er þó gott, allt frá skrúfum upp í trésmíðavélar. Hússjóður. Ákvörðun gjalda Samkvæmt fjöleignarhúsalögunum er skylt að stofna skuli hússjóð sé þess krafist af minnst ¼ hluta eigenda, annaðhvort miðað við fjölda eða eignar- hluta. Aðalfundur ákveður fjárhæð hús- sjóðsgjalda á grundvelli áætlunar um útgjöld og reglna um kostnaðarskiptingu. Hússjóður getur verið rekstrarsjóður eða framkvæmdasjóður eða blandaður. Sé fyrst og fremst um rekstrarsjóð að ræða eru gjöld eigenda því sem næst jöfn enda skiptist rekstrarkostnaður að jöfnu. Sé sjóðurinn fyrst og fremst framkvæmda- sjóður skiptast gjöldin að mestu eftir hlut- fallstölum. Þegar árið er gert upp koma oftast í ljós einhver frávik miðað við álögð húsgjöld. Sé gjaldaáætlun vönduð og rétt kostnaðarskipting lögð til grundvallar eru frávikin yfirleitt smávægileg. Þau skal jafna við heildaruppgjör á hússjóðnum. Vanskil. Lögveð Alltaf geta komið upp atvik og aðstæður hjá fólki sem gera því erfitt eða ómögu- legt að standa í skilum. Hússjóðsgjöld eru tryggð með lögveði í íbúðum. Lögveðið gengur framar bæði eldri og yngri veð- skuldum og fjárnámum. Lögveðið er vel að merkja tímabundið og fellur niður ári eftir gjalddaga. Húsfélag getur meðan lögveðið lifir litið fram hjá eigendaskiptum en þegar það fellur niður verður hús- félagið að beina kröfu að þeim sem var þinglýstur eigandi þegar krafan stofnast. Vökul stjórn Stjórnin má ekki leyfa hússjóðsskuldum að hlaðast upp né glata hinu dýrmæta lögveði. Hún hefur ekki heimild til að veita langa og ítrekaða gjaldfresti þótt aðstæð- ur séu bágar og brjóstumkennanlegar. Í slíkum tilvikum verða félagsmálayfirvöld eða lánastofnanir að koma til sögunnar en ekki hússjóðurinn. Við vanskil verða aðrir eigendur óhjákvæmilega að axla aukabyrði meðan krafan er innheimt. Þess vegna þurfa húsfélög að hafa borð fyrir báru þegar húsgjöld eru ákveðin. Fjármál og bókhald Stjórn húsfélags fer með fjármál þess. Í fjöleignarhúsum með 6 eignarhlutum eða færri þarf ekki sérstaka stjórn og fara þá eigendur í sameiningu með verk- efni hennar. Þeir skipta með sér verkum og geta falið einum eiganda að annast fjármálin. Stjórn húsfélags skal halda reikninga yfir tekjur og gjöld húsfélagsins. Skal hún innheimta hjá eigendum hlut- deild þeirra í sameignlegum kostnaði og henni ber að varðveita og ávaxta fjármuni húsfélagsins á tryggan og öruggan hátt. Bókhaldsskylda Stjórnin skal sjá um að bókhald hús- félagsins sé fært og haldið á réttan og fullnægjandi hátt. Skal færa efnahags- og rekstrarreikninga og reikningsárið er almanaksárið. Samkvæmt bókhaldslögum er húsfélag bókhaldsskylt. Allar bókhalds- færslur verða að byggjast á traustum og áreiðanlegum fylgiskjölum og þær skráðar á skýran, varanalegan hátt. Fylgiskjöl ber að varðveita með rekjanlegum hætti í númeraröð. Ársreikningar Ársreikningar húsfélaga skulu vera í samræmi við bókhaldslög. Þeir eiga að samanstanda af rekstrarreikningi, efnahagsreikningi og skýringum. Í rekstrarreikningi eiga að koma fram sundurliðaðar tekjur og gjöld þannig að hægt sé að bera saman reksturinn og áætlunina um álagningu húsgjalda. Efna- hagsreikningurinn á að sýna eignir og skuldir í árslok. Í skýringum skal svo geta atriða sem þýðingu hafa við mat á rekstri og efnahag félagsins. Ársreikningurinn skal áritaður af þeim sem ábyrgð ber á bókhaldinu og rita yfirleitt allir stjórnar- menn undir hann. Stjórn húsfélags ber að leggja endurskoðaða ársreikninga fram á aðalfundi og skýra þá og bera þá upp til samþykktar að loknum umræðum og fyrirspurnum. Endurskoðandi Á aðalfundi skal húsfélag kjósa sér endurskoðanda sem vera skal löggiltur sé þess krafist af minnst ¼ eigenda miðað við hlutfallstölur eða fjölda. Endurskoð- andi skal hafa aðgang að öllu bókhaldi félagsins og stjórn er skylt að gefa honum allar þær upplýsingar um fjárhag, rekstur og starfsemi félagsins sem hann æskir. Endurskoðandi skal ganga úr skugga um og staðfesta að sameiginlegum kostnaði sé skipt samkvæmt fyrirmælum laga Hann áritar svo ársreikningana með eða án athugasemda. Upplýsingaskylda Stjórn hefur mjög ríka upplýsingaskyldu gagnvart eigendum. Henni er skylt að gefa eigendum upplýsingar og skýringar um hvað eina sem snertir málefni hús- félags, rekstur þess, viðhald og fjármál. Í fjármálum húsfélags mega engin leyndar- mál búa. Allt á að vera upp á borðinu, gegnsætt og aðgengilegt. Annað býður heim hættu á tortryggni, úlfúð og deilum. Húseigendafélagið  Brynja járvöruverslun við laugaveg Hjá Brynju er hægt að fá litlar bréfalúgur sem passa í gömul hús. Með tímanum hafa dagblöðin orðið stærri og bréfalúgurnar sömuleiðis. Ljósmynd/Hari. a ð sögn Haldors G. Haldor-sen eru íbúar miðborgar-innar duglegir að gera hlut- ina sjálfir og hafa alltaf verið. „Það hefur ekki breyst eftir efnahags- hrunið. Á þessu svæði býr allt frá fátækum námsmönnum upp í efnað fólk og allt þar á milli,“ segir Haldor, aðspurður hvort fólk reyni frekar að framkvæma viðhald sjálft eftir efnahagshrunið. Hjá Brynju er gott úrval af hurð- arhúnum og sérpöntunarþjónusta á húnum sem er vinsæl. „Það virðist ekki vera mikið úrval af hurðarhún- um á markaðnum og við eigum og sérpöntum húna í eldri hús,“ segir Haldor. Hjá Brynju eru einnig á boð- stólum ýmsar járnvörur, verkfæri, gluggalamir, hurðaskrár og raf- lagnaefni ásamt árstíðabundnum vörum, eins og garðverkfærum og snjóskóflum. Að sögn Haldors getur verið vandkvæðum háð að finna bréfalúg- ur sem passa í gömul hús. „Í gamla daga voru bréfalúgur frekar litlar og stundum er því þannig háttað að umbúnaður í hurðum er þannig að erfitt getur verið að koma nýjum bréfalúgum fyrir. Við reynum því að eiga til þessar minni lúgur sem hægt er að nota í staðinn en þær er erfitt að fá. Blöðin hafa stækkað og lúgurnar með,“ segir Haldor. Þó gólfflötur Brynju sé minni en gengur og gerist hefur það ekki komið niður á vöruúrvalinu sem er svipað og hjá stóru búðunum, fyrir utan grófvöru eins og timbur, ein- angrun og slíkt. Lengi vel var versl- unin með mesta úrval landsins af trésmíðavélum og er enn með gott úrval af þeim í kjallara verslunar- innar. Áratuga reynsla Verslunin Brynja var stofnuð árið 1919 og var fyrst á nokkurra fer- metra rými. Verslunin flutti svo í núverandi húsnæði, að Laugavegi 29, árið 1929. Brynjólfur Björnsson, framkvæmdastjóri Brynju, tók við rekstrinum af föður sínum árið 1993 en faðir hans hafði byrjað að starfa hjá Brynju sem sendisveinn á unga aldri og varð svo síðar bókari versl- unarinnar og svo eigandi. Frá 1953 hefur Brynja verið í eigu fjölskyldu Brynjólfs. Dagný Hulda Erlendsdóttir dagnyhulda@frettatiminn.is Hússjóður FjÁrmÁL HúsFéLaga 74,6% ... kvenna 35 - 49 ára á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann* *konur 35 – 49 ára á höfuðborgarsvæðinu. Capacent jan - mars 2013 850 svör
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.