Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.04.2012, Page 1

Fréttatíminn - 13.04.2012, Page 1
13.-15. apríl 2012 15. tölublað 3. árgangur 14 Segir mannorð sitt í rúst Fréttir Páll Sverrisson Íslendingar kaupa bæði dýrari og eyðslufrekari bíla en Danir sam-kvæmt úttekt Fréttatímans. Bornir voru saman tíu söluhæstu bílarnir á Íslandi í síðasta mánuði og í Danmörku í febrúar. Ef mið er tekið af fimm söluhæstu bílunum í báðum löndum, sem allir fást á Íslandi, kaupa Íslendingar tvöfalt dýrari bíla en Danir. Hátt eldneytis- verð kemur ekki í veg fyrir að jeppinn Toyota Land Cruiser 150 trónir á toppnum yfir vinsælustu bíla meðal Íslendinga. Sá bíll kostar á bilinu 10,1 til 14,2 milljónir. Samsvarandi bíll kostar á bilinu 17,3 til 24,4 millj- ónir í Danmörku en það verð er fengið að teknu tilliti til ógnarsterkr- ar danskrar krónu gagnvart þeirri íslensku. Jafnframt þurfa Land Cruiser-eigendur í Danmörku að greiða grænan skatt upp á tæplega 170 þúsund krónur á ári. Á lista yfir tíu söluhæstu bílanna á Íslandi eru fimm fólksbílar, þrír litlir bílar, einn jeppi og einn jepplingur en á danska listanum eru fimm smábílar, fjórir litlir og einn fólksbíll. Þá virðast Íslendingar hafa litlar áhyggjur af eldsneytiseyðslu bílanna í samanburði við Dani. Þegar eyðsla tíu söluhæstu bílanna í hvoru landi er borin saman kemur í ljós að íslensku bílarnir eyða að meðaltali 16,4 prósentum meira en þeir dönsku á listanum. Vissulega hjálpar til að smábílar í Danmörku eru svipað dýrir og Íslandi en bilið eykst og bílar verða dýrari í Danmörku eftir því sem þeir og vélar þeirra stækka. Þannig má segja að dönsk stjórn- völd stýri bílainnkaupum þjóðar sinnar með verð- og skattlagn- ingu. Til að allrar sanngirni sé gætt er rétt að taka tillit til ólíkra aðstæðna í löndunum tveimur sé litið til vegakerfis, landslags og veðurfars. Óskar Hrafn Þorvaldsson og Jónas Haraldsson oskar@frettatiminn.is, jonas@frettatiminn.is Íslendingar kaupa tvöfalt dýrari bíla en Danir Á meðan Danir kaupa eyðslugranna smábíla selst mest af Toyota Land Cruiser á Íslandi. Hátt eldsneytisverð og bílaverð stoppa ekki Íslendinga í að kaupa að meðaltali bíla sem eru helmingi dýrari en Danir kaupa; eyða 16,4 prósent meira fé til bílakaupa. Stíllinn hennar Thelmu Með einfaldan smekk síða 22  VIÐTAL ÞórA ArnórsdóTTIr og sVAVAr HALLdórsson 46 Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi og Svavar Halldórsson, eiginmaður hennar, eru í einlægu og opinskáu viðtali við Heiðdísi Lilju Magnúsdóttur. tíSkA Gabby Maiden Snjóbrettatöff- ari sem elskar Ísland Sjá nánar síðu 14. 54DæGurMál18FÓtbolti Arshavin og félagar ættu að taka sinn riðil á EM rússar líklegastir Fjölskyldan, framboðið og syndir fortíðar Jo Nesbø og Snjó- karlinn fá fullt hús bækur 34 JL-húsinu JL-húsinu Hringbraut 121 www.lyfogheilsa.is Við opnum kl: Og lokum kl: Opnunartímar 08:00-22:00 virka daga 10:00-22:00 helgar ™ Suðurlandsbraut 20 www.egillarnason.is ábyrgð á viðarparketi 30 ára Lj ós m yn d/ H ar i 

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.