Fréttatíminn - 13.04.2012, Side 2
Gunnhildur
Arna
Gunnarsdóttir
gag@
frettatiminn.is
Brottför: 16. júní
Örfá sæti laus
Innifalið í verði:
Sjá á www.sunnuferðir.is
384.000 kr.
Nánari upplýsingar og bókanir í síma
555 4700 og á www.sunnuferdir.is
Saga, sól og söngvar Davíðs
á Ítalíu
15 dagar á Ítalíu undir fararstjórn Garðars Cortes óperusöngvara
á söngvaleiðir skáldsins Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi.
Sunnuferðir bjóða nú viðburðarríka ferð til
Ítalíu þar sem fetað verður í fótspor skáldsins
frá Fagraskógi alla leið frá Flórens suður til
Kaprí. Garðar syngur lög skáldsins og segir
söguna um hvernig þau urðu til.
Ógleymanleg menningarferð um Ítalíu!
Heilsa Íslenskir fyrirburar telja lÍðan sÍna lakari en meðaltal segir
Fyrirburar eiga erfitt uppdráttar
f yrirburar á unglingsaldri, sem vega að kílói við fæð-ingu, telja lífsgæði sín slak-
ari en jafnaldrar þeirra sem fædd-
ust yfir 2,5 kílói. Þeir mælast bæði
með minni líkamlega og andlega
vellíðan og finnst lundarfar sitt og
tilfinningar lakari. Þetta er niður-
staða meistararitgerðar Hólmdísar
Freyju Methúsalemsdóttur, iðju-
þjálfa í lýðheilsuvísindum.
„Niðurstöður mínar gefa til
kynna að það þurfi að hlúa sér-
staklega vel að þessum hópi
barna og fylgja þeim betur eftir á
unglingsárum,“ segir hún, „en það
var ánægjulegt að sjá að enginn
munur kom fram á spurningum
sem sneru að sjálfræði, heimilislífi
og tengslum við foreldra, fjárhag,
félagslegum stuðningi og jafn-
öldrum auk skóla og félagslegrar
viðkenningar. Og þetta er þrátt
fyrir að þessi hópur barna hafi
þurft að ganga í gegnum erfiða
tíma og hremmingar á fyrstu
vikum og mánuðum lífsins. Þau
eru jú fædd undir 1000 grömm-
um, sem er minna en sem nemur
mjólkurfernu.“
Ingibjörg Georgsdóttir, barna-
læknir, hefur fylgst með þessum
fyrirburum frá fæðingu. Rannsókn
Hólmdísar er hluti af langtíma eft-
irfylgni með heilsu og líðan þrjátíu
fyrirbura af þeim 35 sem lifðu eftir
fimm ára aldur og fæddust á ár-
unum 1991 til 1995 á Íslandi.
Í grein Ingibjargar, sem birtist í
vefútgáfu Acta Pædiatrica í janúar,
segir að 57 prósent unglinganna
glími við námserfiðleika, tuttugu
prósent þeirra séu í sérkennslu-
bekkjum og 37 prósent þeirra fái
stuðning við lærdóminn. Hólmdís Freyja Methúsalemsdóttir iðjuþjálfi. Ljósmynd Hari.
Hér er Jón Gerald Sullenberger við bréfabunkann með athugasemdum um að matvælamerkingar verslunarinnar séu ekki að
evrópskum lögum. Ljósmynd/Hari
matvöruverslanir segir keppinauta reyna að bola kosti af markaði
Hóta að loka Kosti
vegna Cocoa Puffs
Jón Gerald Sullenberger situr með tíu sentimetra bunka af bréfum frá lögmönnum og heil-
brigðiseftirlitinu sem að efni fela í sér kröfur um að vörur séu annað hvort teknar úr sölu
og urðaðar eða þær merktar samkvæmt evrópskum reglugerðum. Einelti, segir Jón Gerald.
Kostnaðurinn við að mæta kröfunum lendi óhjákvæmilega á neytendum.
H eilbriðiseftirlit Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis hótar að loka lágvöruversluninni Kosti verði
sölu á Cocoa Puffs, Lucky Charms og
Twix ekki hætt. Jón Gerald Sullenberger,
eigandi Kosts, líkir tíðum bréfaskrift-
unum eftirlitsins og lögmanna við einelti
sem hafi vaxið í réttu hlutfalli við aukna
velgengni verslunarinnar. Í bréfunum sé
farið fram á að vörurnar séu teknar úr
sölu og þær urðaðar.
„Það er verið að reyna að knésetja
okkur og sjá til þess að við gefumst upp,“
segir Jón Gerald og telur að fjármunum
heilbrigðiseftirlitsins væri betur varið í
annað en að koma í veg fyrir að Íslending-
ar borði til dæmis Cocoa Puffs.
Hann bendir á að Kókó-kúlurnar séu
á ríflega 500 milljóna manna markaði án
athugasemda; það er í norður-, mið- og
suður Ameríku. Eftirlitið heldur því fram
að í þessum vörum séu óheimil litar- og
þráavarnarefni. Jón Gerald segir þráa-
varnarefnin víða í lyfjum hér á landi og
telur þessar reglur fyrst og fremst settar
til verndar evrópskri framleiðslu, sem sé
20 til 30 prósentum dýrari en sú amer-
íska.
„Það sorglega er að þessar merkingar
og þetta eftirlit kostar fullt af peningum.
Hver borgar það? Neytendinn,“ segir
hann. „Komið með röksemdir fyrir því að
við megum skaða okkur með brennivíni,
sígarettum og munntóbaki en ekki
þessu. Þetta er Cocoa Puffs!“
Páll Stefánsson, heilbrigðisfulltrúi
segir eftirlitið fara að lögum. „Við förum
ekki út í þvingurnaraðgerðir nema
að tilefni sé til. Það getur verið vegna
bráðanauðsynja eða ítrekaðra brota,“
segir hann. Spurður hvort ítrekuð brot
teljist þrjú eða tuttugu? „Það fer eftir
alvarleika brots hversu harkalega er
stigið til jarðar.“
Jón segist ekki vita hverjir standi á
bakvið kvartanir og kærur til heilbrigð-
iseftirlitisins en bréfin séu send frá
Lögmannsstofunni Mörk sem Gestur
Jónsson og Ragnar Hall fari fyrir. Hann
reiknar því með að það geri þeir í um-
boði Haga.
Hann segir að auglýsi Kostur nýja
sendingu mæti starfsmaður Aðfanga/
Haga, týni nýju vörurnar í körfu og
kaupi . „Svo leggjast þeir yfir þær og
kæra okkur.“ Markmiðið sé að ýta
vörum hans út af markaði til þess að
knýja kaupendur til að kaupa þær hjá
sér.
En hverjar eru líkurnar á því að hann
hætti? „Engar. Eins lengi og neytendur
koma til okkar, versla við okkur og
standa með okkur verðum við hér.“
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Bretti af
möndlum
urðað þegar
Jón var í fríi
Mánuði eftir að ný reglu-
gerð var sett sem krefst
vottorða með möndlum
frá þriðja heims ríkjum
og Bandaríkjunum segir
Jón Gerald Sullenberger
að hann hafi fengið bretti
af möndlum frá Banda-
ríkjum. Hann hafi verið í
fríi þegar heilbrigðiseftir-
litið mætti, gerið brettið
upptækt og urðaði þar
sem vottorðin voru ekki
uppsett að samkvæmt
evrópskum stöðlum.
„Tjónið var ábyggilega
milljón,“ segir Jón, sem
fékk ekki að endursenda
vöruna. „Núna get ég
keypt þessa nákvæmlega
sömu vöru, í nákvæm-
lega eins pokum, í
Bretlandi á 18 prósenta
hærra verði.“ - gag
Þorskárgangurinn sá
stærsti frá 1985
Þorskárgangurinn frá því í fyrra er
sá stærsti sem mælst hefur frá því
árið 1985, samkvæmt mælingum
Hafrannsóknastofnunar. Stofnvísitala
þorsksins hækkaði fimmta árið í röð
og hefur ekki verið hærri í 25 ár, að
því er fram kom á Vísi í gær. Þá er
meðalþyngd þorsks, sem farið hefur
vaxandi undanfarin ár, komin vel
yfir meðallag. Við sunnanvert landið
var meðalþyngd með því besta í tíu
ár, eða frá því vigtun hófust. Fyrir
norðan var þorskurinn í betri holdum
en verið hefur síðan 1996. Þetta eru
niðurstöður úr svonefndu togararalli,
þar sem nokkrir togarar toga á sömu
veiðislóðum á sama tíma ár eftir
ár. - jh
Orkustrengur til Evrópu
til skoðunar
Orkusala til Evrópu var aðal umfjöllunar-
efni ársfundar Landsvirkjunar sem haldinn
var í gær. Mikill áhugi er á verkefninu
meðal ráðamanna á meginlandinu.
Ráðherra orkumála í Bretlandi kemur
hingað í næsta mánuði til að ræða málið.
Í frétt Ríkisútvarpsins sagði að Lands-
virkjun hefði lengi skoðað þann möguleika
að leggja sæstreng til Evrópu. Tæknilega
hefur það verið framkvæmanlegt um langt
skeið, en ekki talið hagkvæmt. Nú virðist
annað hljóð komið í strokkinn. Margt
bendir til að framkvæmdin geti borgað sig
upp á tiltölulega skömmum tíma vegna
þess að verðmæti umhverfisvænnar orku
hefur aukist í Evrópu. Áhugi virðist vera
fyrir verkefninu í nokkrum Evrópulöndum;
í Þýskalandi og Hollandi auk Bretlands. - jh
Frístundabílnum lagt
„Sorglegt,“ segir Gísli H. Guðlaugsson,
formaður Foreldrafélags Hvaleyrarskóla
í Hafnarfirði um þá ákvörðun bæjaryfir-
valda að leggja Frístundabílnum. Bæjar-
yfirvöld ákváðu þetta þar sem ljóst var,
eftir þriggja ára tilraunaverkefni, að fjöldi
notenda væri ekki nægur auk þess sem
styrkir og stuðningur fyrirtækja stæði ekki
undir rekstrinum. Gísli krossleggur fingur
og vonar að bænum takist að semja um
fleiri ferðir Strætós, eins og stefnt er að.
Hann segir bílinn hafa nýst Haukum vel,
þar sem hann komi að körfuknattleiks-
deildinni. „Krakkarnir notuðu bílinn til að
komast á æfingar og því mjög sorglegt ef
raunin verður sú að þjónustan verði ekki
áfram í boði.“ - gag
Komið með röksemdir fyrir því að
við megum skaða okkur með brenni-
víni, sígarettum og munntóbaki en
ekki þessu. Þetta er Cocoa Puffs!
Þau eru jú
fædd undir
1000 grömm-
um, sem er
minna en
sem nemur
mjólkurfernu.
Innihaldslýsing PIP sögð afar ónákvæm
Innihaldslýsing fölsuðu
PIP-sílikonpúðanna,
sem velferðaráðu-
neytið áframsendi í
tölvupósti til konu sem
lét fjarlægja 17 ára til-
raunapúða í febrúar, er
afar ónákvæm. Þetta er
mat Ingvars Árnasonar,
prófessors í efnafræði
við HÍ. Ráðuneytið vísar
í skýrslu Vísindanefndar
Evrópusambandsins og
segir meginuppistöðuna
metýlsílíkonolía, sílíkonolía og efni sem kallast RHODORSIL RTV 141 A og B. „Að tala um
sílikonolíu og metýlsílikonolíu er rétt eins og að tala um mjólk og súrmjólk,“ segir Ingvar.
Sílikonefni eru mjög fjölbreytileg og metýlsílikonið langalgengasta sílikonolían. - gag
2 fréttir Helgin 13.-15. apríl 2012