Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.04.2012, Síða 26

Fréttatíminn - 13.04.2012, Síða 26
Ástþór klikkar ekki Ástþór Magnússon hefur gert nokkrar atrennur að Bessastöðum og er síður en svo af baki dottinn þótt illa hafi árað í fyrri leiðöngrum. Hann boðaði til blaðamannafundar og ljóstraði upp um samsæri 365 miðla og RÚV að koma Þóru Arnórsdóttur á forsetastól. Og vakti þó nokkra athygli með þeim ummælum. Aðalsteinn Kjartansson Djöfull er þetta orðið þreytt hjá Ástþóri. Það er akkúrat engin eftirspurn eftir honum. Það er heldur ekki eins og hann sé að gera eitthvað, eða segja eitthvað nýtt. Um hvað eiga fjölmiðlar að fjalla? Eva Hauksdottir Þessu samsæri er augljóslega beint gegn Ástþóri. Fjölmiðlaklíkan hefur óttast að hann myndi sigra ÓRG og ákveðið að finna aðra sjónvarpsstjörnu til höfuðs honum. Jónína Ben Ég læt ykkur vita innan tíðar hvort að ég boða til blaðamannafundar. Eru það blöðin sem kjósa forsetann? Getur verið að Ástþór hafi á réttu að standa það er að fjölmiðlarnir hafa valið þjóðinni þjóðhöfðingja? Fyndið land og fjölmiðlamenn enn á egótrippi. Leitin að forseta Lorem Ipsum-lands Þrátt fyrir ákafa Ástþórs og bandalag fjand- vinanna og fjölmiðlakónganna Ara Edwald og Páls Magnússonar eru fleiri forsetaframbjóðendur til umræðu á Facebook. Garðar Örn Úlfarsson Ávarp forsetaframbjóðanda til Íslendinga: „Lorem Ipsum is simply dummy text of the printing and typesetting industry.“ Spes. Nánar á heimasíðu dr. Herdísar Þorgeirsdóttur: Heiða B Heiðars Pólitík er allsstaðar. Hvernig forseta fengjum við eiginlega ef hann hefði engar pólitískar skoðanir? Skoðanalausa skinku eða tripaltattoo dúdda? Gunnar Grímsson Engir nýir forsetaframbjóðendur í dag? Sveinn Andri Sveinsson Ég hef einfaldan smekk. Ég ætla að kjósa þann frambjóðanda sem ég tel líklegastan til að bera sigurorð af Ólafi Ragnari. Ekki orð um það meir. Hvað er málið með þetta velferðarkerfi? Alda Jóhanna Hafnadóttir, 21 árs einstæð móðir úr Keflavík, birti pistil um sjálfa sig og efnahags- ástandið á bleikt.is en uppskar tæpast þá athygli sem hún ætlaði. Fólki á Facebook virðist konan bara hafa það ágætt og málsháttur um kálfa og ofeldi bergmálar í æsingnum. Kolbeinn Marteinsson Þessi unga móðir fær um 180 þús frá almanna- tryggingum þessa lands en hana vantar meira til að verða hamingjusöm. „Ríkisstjórnin ætti að skammast sín að vera ekki búin að laga þetta og láta þegna landsins þjást á þennan hátt. Finnið einhverja lausn á þessu vandamáli sem ríkir í landinu og förum að vera hamingjusöm aftur!“ Teitur Atlason Er í skóla og er BLÖNK !!! Skamm ríkisstjórn - - Skamm !!! Sandra Sigurjónsdóttir Er gellan ekki að grínast? nennir eh að hringja á vælubílinn !! Snædís Högnadóttir Æji cry me a river maður!! 26 fréttir vikunnar Helgin 13.-15. apríl 2012 676 milljónir er upphæðin sem leikarinn George Clooney ætlar að safna fyrir Barack Obama í aðdraganda forsetakosninganna í Banda- ríkjunum. Góð vIka fyrir Einar Má Guðmundsson rithöfund SLæm vIka fyrir Stefán Eiríksson lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins 12 sinnum hefur fjöldamorðingj- anum alræmda Charles Manson verið neitað um reynslulausn af dómstólum í Kaliforníu. Hann afplánar lífs- tíðarfangelsi fyrir sjö morð á árunum 1968 til 1969. Talsmaður stjórnvalda í Falun Gong málinu Þingsályktunartillaga um að íslenska ríkið biðjist afsökunar og greiði skaðabætur til iðkenda Falun Gong vegna meðferðarinnar á þeim í júní 2002 er örugglega óþægileg fyrir Stefán Eiríksson lögreglustjóra. Stefán var ungur skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneyti Sólveigar Pétursdóttur þegar ríkisstjórn Davíðs Oddssonar tók á móti forseta Kína Jiang Zemin. Hluti af undirbúningi ráðuneytisins fyrir heimsóknina var að loka landinu fyrir Falun Gong. Var Stefán talsmaður stjórnvalda og gekk fram af miklum ákafa í fjölmiðlum. Aðgerðirnar náðu til ellefu alþjóðlegra flugvalla þar sem meira en 150 manns var meinað að ganga um borð í vélar Flugleiða. Um 75 manns náðu til landsins en voru handteknir og haldið í Njarðvíkurskóla í 36 klukku- stundir. Persónuvernd úrskurðaði ári eftir atburðina að dómsmálaráðuneytið hefði brotið lög með því að senda nöfn meðlima í Falun Gong til Flugleiða og sendiráða Íslands. Falun Gong átti sér aðeins sögu um friðsamleg mótmæli. Enginn á listanum var stöðvaður eða handtekinn á þeim forsendum að hann hefði framið glæp. Ástæðan var eingöngu trú og lífsskoðun þessa fólks. 7,1 vIkan í töLum HeItuStu koLIn Á milljarður er munurinn á rekstarafkomu Icelandair og Iceland Express á síðasta ári. Icelandair hagnaðist um 4,4 milljarða en Iceland Express tapaði 2,7 milljörðum. Sjö milljón krónum ríkari Einar Már Guðmundsson fékk í vikunni Norrænu bókmennta- verðlaunin fyrir framlag sitt til bókmennta en þau hafa verið veitt árlega frá 1986. Verðlaunin eru einhver þau virtustu sem norrænir rithöfundar geta fengið og eru oft kölluð litli Nóbel- inn eða norrænu nóbelsverðlaunin. Og þeim fylgir ekki aðeins heiður og virðing heldur bólgnar veski Einars líka hraustlega því verðlaununum fylgir fé upp á 350.000 sænskar krónur, sem gera um það bil sjö milljónir íslenskar krónur sam- kvæmt gengisskrá Seðlabankans. Þar á bæ fagna menn líka örugglega vegsemd Einars því þjóðarbúinu veitir ekki af erlendum gjaldeyri. Einar er þriðji Íslendingurinn sem hlýtur Norrænu bókmenntaverðlaunin. Thor Vilhjálmsson fékk þau árið 1992 og Guð- bergur Bergsson árið 2004. Tundurdufl í trollið 350 kílóa tundurdufl kom í troll Sóleyjar Sigurjóns GK aðfararnótt miðvikudags, þegar báturinn var á togveiðum á Búrbanka. Landhelgisgæslan kom um borð og tók hvellhettu úr duflinu. Það var síðan flutt yfir í hafnsögubát og gert óvirkt í landi. Vel heppnað en gengur hægt Samkvæmt nýrri rannsókn Alþjóðagjald- eyrissjóðsins eru aðgerðir íslenskra stjórn- valda til handa heimilum í skuldavanda vel heppnaðar en ganga of hægt. Veiða í færeyskri lögsögu Um tugur íslenskra skipa er farinn til kolmunnaveiða í færeysku lögsögunni. Veiðin fer vel af stað og kolmunni er þegar farinn að berast til Íslands. Forsætisráðherra Kína væntanlegur Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, er væntanlegur í opinbera heimsókn til Íslands 20. apríl, ásamt fjölmennu fylgdarliði. Samherji hefur ekki fengið nein gögn Útgerðarfyrirtækið Samherji hefur ekki fengið nein gögn frá Seðlabankanum um rannsókn gjaldeyriseftirlits bankans á meintum brotum fyrirtækisins á lögum um gjaldeyrismál. 3 krónur er kostnaðurinn við að slá eina krónumynt. 47 sekúndur var tíminn sem Lionel Messi var inn á vell- inum í sínum fyrsta landsleik fyrir Argentínu. Hann kom inn á 63. mínútu og var rekinn útaf 47 sekúndum síðar. Ástþór Magnússon forsetafram- bjóðandi telur að fjölmiðlar mismuni forsetaframbjóðendum. Á blaðamannafundi fyrr í vikunni kvartaði hann undan því að fá minni umfjöllun í fjölmiðlum en aðrir frambjóðendur. Með því ráðskist fjölmiðlar með lýðræðið. Ástþór líkir forsetakosningunum við kosningar í Rússlandi. Hann skorar á fjölmiðla að veita fram- bjóðendum jafnan aðgang til að kynna stefnumál sín. Ástþór býður sig nú fram í embætti forseta Íslands í fjórða sinn. Ljós- mynd Hari Aðalstræti 2 / 101 Reykjavík / Sími: 517 4300 / www.geysirbistro.is Borðapantanir í síma 517-4300 Humarsalat & Hvítvín 2.250 kr. Humarsalat með hægelduðum smátómötum, mangó, sultuðum rauðlauk og ristuðum cashew-hnetum ásamt hvítvínsglasi. Bláskel & Hvítvín 2.950 kr. Hvítvínssoðin bláskel úr Breiðafirði ásamt hvítvínsglasi. G e y s ir Bi stro & Bar FERSKT & FREiSTa ndi Fagmennska í Fy ri rr ú m i SpennAndi sjávarrétta tilBoð

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.