Fréttatíminn - 18.05.2012, Blaðsíða 40
8 viðhald húsa Helgin 18.-20. maí 2012
Verði tjón
í húsi sem
rekja má til
sameigin-
legra lagna,
hvort heldur
sem rekja
má það til
vanrækslu á
viðhaldi eða
bilana, ber
húsfélagið
skaðabóta-
ábyrgð gagn-
vart þeim
eigendum
sem fyrir
tjóni verða.
*M.v. vaxtatöflu Íslandsbanka 13.04 2012
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Við bjóðum
góða þjónustu
Íslandsbanki býður hagstæð framkvæmdalán
til endurbóta á húsnæði. Lánin eru óverðtryggð
skuldabréfalán með breytilegum vaxtakjörum
samkvæmt vaxtatöflu bankans hverju sinni.
Framkvæmdalán geta numið allt að 1,5 milljónum
gegn veði og allt að 750.000 kr. án veðs.
Kynntu þér framkvæmdalán á
www.islandsbanki.is eða í næsta útibúi
Íslandsbanka.
Stjórnvöld hafa framlengt átakið ALLIR VINNA
til 1. janúar 2013
Þú getur fengið endurgreiðslu á virðisaukaskatti
fyrir framkvæmdir á árinu 2012.
Kynntu þér málið á www.allirvinna.is.
6,25% óverðtryggðir vextir*
og engin lántökugjöld
Við bjóðum
framkvæmdalán
Þ egar lagnir gefa sig eða þarfnast endurnýjunar við eða viðhalds að öðrum ástæðum spretta einatt
upp álitaefni sem einkum lúta að kostn-
aðarskiptingu við lagnaframkvæmdir
og því hver beri ábyrgð á tjóni sem stafar
frá lekri lögn.
Líkur á að lagnir séu í sameign
Í fjölbýli er það skiptingin í hvað telst til
séreignar hvers og eins og hvað telst til
sameignar eigenda sem ræður því hvort
tilfallandi kostnaður teljist sameiginleg-
ur eða ekki. Þar sem lagnir sama húss
eða fleiri húsa saman greinast iðulega
upp í sjálfstæðar kvíslir ef svo má segja
er því oft haldið fram í ágreiningsmál-
um að hver eigandi eða tiltekinn hópur
þeirra eigi þá kvísl lagnakerfisins sem
lagfæringa þarfnast í það skiptið og að
hún sé þar með öðrum eigendum óvið-
komandi. Þrátt fyrir að lög um fjöleign-
arhús geri ráð fyrir því að lagnir geti
eftir atvikum ýmist talist til séreignar
eins eiganda eða til sameignar mæla
þau jafnframt svo fyrir að jafnan séu
líkur á því að lagnir í fjöleignarhúsi séu
í sameign allra.
Við skýringu á þessum reglum hefur
rík áhersla verið lögð á að hafa þær sem
einfaldastar og skýrastar. Ekki megi
um of einblína á hvort lega eða afnota
þeirra lagna sem um ræðir gagnist bein-
línis fleiri eða færri íbúðum heldur verði
að taka mið af því að lagnakerfi húsa eru
almennt hönnuð með hag allra eigenda
að leiðarljósi. Þannig getur lagnakerfi
þjónað einvörðungu einni íbúð þar sem
það telst við byggingu eða endurbætur
ódýrara fyrir heildina að gera svo vegna
staðsetningar íbúðarinnar. Ráða þannig
aðstæður og hagkvæmni því oft hvort
fleiri eða færri eru um tiltekna lögn. Slík
ákvörðun þjónar sameiginlegum þörf-
um heildarinnar. Hefur því verið talið að
undir sama þaki séu að jafnaði yfirgnæf-
andi líkur á að vatns- og skolplagnir séu
í sameign allra eigenda hússins.
Einnig er til í dæminu að tvö eða fleiri
hús sem standa aðskilin teljist eiga í
sameiningu lagnir til dæmis skolp- eða
drenlagnir. Skiptir þá máli hvort lagnir
húsanna tengist saman með einhverj-
um hætti, hvort lagnakerfi þeirra séu
hönnuð sem ein heild og hvort einstakir
hlutar þess geti staðið sjálfstæðir eða
ekki.
Kostnaður vegna sameiginlegra
lagna
Þegar fyrir liggur að lagnir teljast sameig-
inlegar hefur það þau áhrif að kostnaður
sem til fellur vegna þeirra telst sameigin-
legur og skiptist eftir eignarhlutföllum
íbúða í sameigninni. Á það jafnt við um
endurnýjun lagna, viðgerðir, hreinsun eða
stíflulosun.
Þegar stofnað er til kostnaðar í
tengslum við sameiginlegar lagnir verður
að gera ráð fyrir að það sé fyrst og fremst
á valdsviði húsfundar að taka þær ákvarð-
anir. Til endurnýjunar eða viðgerða á
lögnum nægir að jafnaði samþykki ein-
falds meirihluta á húsfundi svo ráðast
megi í framkvæmdir. Sé um mjög brýnar
viðgerðir að ræða eða ráðstafanir sem
þola enga bið getur verið að stjórn hús-
félags eða jafnvel einstökum eigendum sé
heimilt að stofna til sameiginlegs kostnað-
ar. Takmarkast slíkar aðgerðir að jafnaði
við lágmarksaðgerðir sem koma eiga í veg
fyrir frekara tjón en ákvarðanir um fram-
haldið, endurnýjun lagna eða varanlega
viðgerð er húsfundar.
Ábyrgð á tjóni af völdum leka frá
leiðslu
Þar til lögn kemur út úr vegg eða upp úr
gólfi telst hún eins og áður sagði í sam-
eign. Þau tæki og sá búnaður í íbúðum
húss sem tengjast hinu sameiginlega
lagnakerfi eru aftur á móti í séreign íbúð-
areiganda. Hér má nefna ofna, vatns-
krana, salerni og svo framvegis. Eigandi
íbúðar ber því bæði ábyrgð á þessari sér-
eign sinni og kostnað við endurnýjun og
viðhald.
Verði tjón í húsi sem rekja má til sam-
eiginlegra lagna, hvort heldur sem rekja
má það til vanrækslu á viðhaldi eða bilana,
ber húsfélagið skaðabótaábyrgð gagnvart
þeim eigendum sem fyrir tjóni verða. Skal
kostnaði vegna tjóns skipt á milli eigenda
hússins eftir eignarhlutföllum þeirra í
húsinu.
Hafa ber í huga að oft bæta vátrygging-
ar það tjón sem hlýst af þegar lagnir gefa
sig eða bila og reynir þá ekki með bein-
um hætti á skaðabótaábyrgð húsfélags.
Þannig geta ábyrgðartryggingar (húseig-
endatrygging) sem fasteignareigandi eða
húsfélag hefur keypt, tekið til tjóns á hús-
inu sjálfu, svo sem innréttingum og gólf-
efnum. Þá getur heimilistrygging þess
sem fyrir tjóni verður bætt honum skað-
ann sem verður á innbúi sökum vatns.
Lagnir liggja til allar átta
Lekinn er óskemmtilegur viðureignar og ekki liggur alltaf fyrir hvar bótaskyldan liggur – hverjum ber að borga skaða; sá sem fyrir honum verður, húsfélagi eða trygginga-
félagi? Sigurður Helgi Guðjónsson hrl þræðir sig hér um refilstigu lagnakerfa.
LeKi hver ber ábyrgðina?
Það er grínlaust þegar lagnirnar gefa sig.