Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.05.2012, Qupperneq 1

Fréttatíminn - 25.05.2012, Qupperneq 1
íslenskt grænmetiSölufélag garðyrkjumanna Sumar 2012 Eftir stúdentspróf ákvað ég að læra ensku í Háskóla Íslands. Það gekk vel og ég kláraði eitt ár, en ég las örugglega fleiri garðyrkjubækur en námsbækur“, segir Helena Hermundardóttir garðyrkjubóndi og fimm barna móðir á Friðheimum í Reykholti. Hún þakkar móður sinni og sænskri ömmu garðyrkjuáhugann. „Þær ræktuðu mikið og útiræktun kynntist ég í Svíþjóð hjá ömmu“. Helena og maður hennar knútur rafn Ármann hafa verið grænmetisbændur á Friðheimum frá árinu 1995, þegar þau keyptu jörðina. Helena var þá útskrifuð frá Garðyrkjuskóla ríkisins og Knútur frá Bændaskólanum á Hólum. Þau kynntust í Fjölbrautarskólanum í Breiðholti og voru aðeins um tvítugt þegar þau ákváðu að flytja úr borginni. „Við keyrðum um Suðurland í leit að garðyrkjustöð sem væri til sölu. Við fundum Friðheima og það var Brúnó Hjaltested sem var fjárhaldsmaður eigandans sem við eigum það að þakka að við eignuðumst Friðheima. Hann treysti því að við myndum byggja staðinn upp“, segir Helena. Þegar þau hjón keyptu Friðheima hafði staðurinn ekki verið í ábúð í þrjú ár. Þau Helena og Knútur hafa svo sannarlega tekið til hendinni því nú rækta þau í gróðurhúsum sem þekja samtals 5200 fermetra. Fyrstu árin ræktuðu þau tómata, paprikur og gúrkur, en frá árinu 2002 hafa þau sérhæft sig í tómatarækt, og framleiða nú m.a. plómu- og konfekttómata allt árið með hjálp raflýsingar.Helena segir að þau hafi frá byrjun verið með hrossarækt samhliða garðyrkjunni. Knútur fékk áhuga á hrossum þegar hann var ungur drengur og sá áhugi leiddi hann í Bændaskólann „Við höfum alltaf verið með töluvert af hrossum og langaði að auka hlut hestamennskunnar í okkar rekstri. Því ákváðum við fyrir fjórum árum að setja á laggirnar hestasýningu fyrir ferðamenn, sem er sögu-og gangtegundasýning. Í dag erum við stolt af því að útbreiða hróður íslenska hestsins til þúsunda ferðamanna sem heimsækja okkur á hverju ári, en einnig hefur það aukist að ferðamenn heimsæki gróðurhúsin og fái fræðslu og upplifun um ræktunina þar“. „Við garðyrkjubændur leggjum mikið upp úr því að senda frá okkur góða vöru. Þess vegna ákváðum við að merkja hana sérstaklega með íslensku fánaröndinni og einnig býlinu þar sem grænmetið er ræktað. Nú er hægt að rekja framleiðsluna alla leið til bóndans og í því felst mjög mikið aðhald. Það er hvatning til að senda aðeins frá sér gæðavöru og hafa neytendur tekið þessu afskaplega vel“ segir Helena. Helena var valinn fulltrúi garðyrkjubænda á Búnaðarþing. Hún segir það gott að geta unnið fyrir greinina og vekur athygli á því að konur séu fjölmennar í stétt garðyrkjubænda þótt þær séu oft ekki eins sýnilegar og karlarnir. Helena segist bjartsýn á framtíðina enda hafi þau smátt og smátt byggt upp Friðheima í þeirri trú að hér (á Íslandi) verði áfram blómleg garðyrkja. Úr Breiðholtinu í reykholt-Helena Hermundardóttir bóndi á Friðheimum í Bláskógabyggð. Paprikur C vítamín sprengjur Sveppir Algjör sveppur Gúrkur Gúrka fyrir fegurðina Tómatar Vinsælastir ListakokkarMatgæðingarnir og listakonnarnir Hrefna sætran og nanna rögnvaldsdóttir eru löngu þjóðþekktar fyrir góðar uppskriftir. Í blaðinu eru uppskriftir eftir þær sem henta við flest tækifæri. Bj ö rn Á rn as o n El sa B jö rg M ag n ú sd ó tt ir geymið Blaðið 25.-27. maí 2012 21. tölublað 3. árgangur 16 Vill kynnast föður sínum Anna Geirsdóttir Íslensk r ti Í miðju FrÉt tÍ ns Mario Gomez  VIÐTAL SIgrún ÞöLL ÞorSTeInSdóTTIr Unnur Birna 70 Skrifaði skáldsögu á Þjóð- skjalasafni viðtAl síða 30 Líklegur EM- marka- kóngur DæGUrMál 22 −26 fótBolti 20 Á bloggsíðu sinni hefur hún sagt af baráttu sinni við mat og hinum ýmsu kúrum, einum sem losaði hana við 46 kíló. Sigrún Þöll Þor- steinsdóttir hefur á hressilegan hátt sagt frá lífi sínu; þegar hún skildi við fyrri mann sinn, hvernig hún hljóp samhliða því að berjast við brjósta- krabbamein og nú hvernig hún hjólar þar sem hryggurinn þolir hlaupin ekki lengur. Hún er með krabbamein í hryggjarliðum. Sigrún segir af þessari þroska- sögu sinni í beinni – á alvarlegri nótum en hún er vön – því í lífi hennar skiptast á skin og skúrir. Barbietec bloggar um lífsbaráttu sína Faðirinn og fjöl- skyldan úti. „Já, ég er stoltur af stúlkunni.“ Ísland í Eurovision Lj ós m yn d/ H ar i Gleraugnaverslunin þín PI PA R \ TB W A • S ÍA • 1 21 4 4 4 Sólgler með styrkleika fylgja kaupum á gleraugum MJÓDDINNI Álfabakka 14 Opið: virka daga 9–18 FIRÐI Fjarðargötu 13–15 Opið: virka daga 10–18 og laugardaga 11–15 SELFOSSI Austurvegi 4 Opið: virka daga 10–18
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.