Fréttatíminn - 25.05.2012, Side 8
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Tilboðsverð:
23.900 kr. stgr.
(fullt verð: 28.900 kr.)
Ryksuga
VS 06G2001
Kröftug 2000 W ryksuga
með 4 lítra slitsterkum poka.
Vinnuradíus 10 metrar.
Lunch, brunch og 40 rétta kvöldverðarhlaðborð
Nítjánda veitingastaður - þar sem hóparnir eiga heima
Minni vindorkuver betri
kostur en stór
Þrjú svæði í Borgarbyggð eru talin áhugaverð
að skoða með tilliti til beislunar vindorku;
svæðið neðan til á Mýrum, með farvegi Hvítár
og ofan Borgarness, og ofantil í Norðurárdal,
upp undir Holtavörðuheiði. Þetta kemur fram
í nýútkominni skýrslu vinnuhóps um nýtingu
vindorku í Borgarbyggð sem var kynnt á fundi
Borgarfjarðarstofu fyrr í mánuðinum, að því
er Skessuhorn greinir frá. „Hins vegar,“ segir í
fréttinni, „telur hópurinn rekstur stórra vind-
orkuvera ekki vera vænlegan kost á svæðinu
eins og staðan er í dag, en ýmsir möguleikar
séu á rekstri minni vindorkuvera.“ Fram
kemur að sveitarfélagið muni áfram fylgjast
með en í dag sé beislun vindorku ekki hag-
kvæmur kostur í Borgarbyggð. - jh
N ýskriðin í 61 árs aldur, en skríður þó ekki örþreytt heim þrátt fyrir að hafa hjólað 1.768 kílómetra leið í fylgd
sonar síns Símonar Halldórssonar, stálsmiðs
og vélstjóra, síðasta mánuðinn.
Sigurjónu Scheving hafði lengi dreymt um
að fara í hjólreiðareisu og sá með hálfs mán-
aðar fyrirvara að nú væri rétti tíminn. Sonur
hennar er í árs hjólreiðaferð og ætlar að hjóla
til Kína. Hún er í toppformi, en viðurkennir
að hafa eftir langa daga fundið fyrir gamalli
vöðvabólgu í hægri öxl.
„Ég hef alltaf hjólað heima í Hafnarfirði, tek-
ið Bessastaðahring, synt og farið í ræktina. Ég
vissi svo sem ekki hvort ég myndi endast viku
eða lengur en vissi þó að ég væri í fínu formi.“
Hún segist stálslegin eftir þessa ferð.
Sonur hennar Símon hóf ferðina í Hafnar-
firði í lok mars, tók Norrænu yfir til Danmerk-
ur og hjólaði til Þýskalands. Þau mæðginin
hittust í Berlín og hjóluðu svo saman til Pól-
lands og meðfram Dóná í gegnum Slóvakíu,
Ungverjaland og Króatíu til Serbíu. Frétta-
tíminn náði á Sigurjónu þar sem hún sat í lest
milli Belgrad og Búdapest. Á leiðinni heim.
„Já, það var svolítið erfitt að skilja við
soninn og vita að hann eigi eftir að fara einn
um ókunn svæði. Ég held að við höfum bæði
fundið fyrir því síðustu dagana að leiðir væru
að skilja.“
Sigurjóna segir stéttaskiptinguna hafa
Magnús Ingi með nýjan
hamborgarastað
Magnús Ingi Magnússon, veitingamaður
á Sjávarbarnum, sem meðal annars sér
um matreiðsluþætti á sjónvarpsstöðinni
ÍNN, hefur nýlega opnað hamborgarastað
við Grandagarð 11. Texasborgarar heitir
staðurinn, í anda klassísku bandarísku
hefðarinnar. „Nafnið á staðnum er ekki út
í bláinn því talið er að hamborgarinn, eins
og við þekkjum hann í dag, hafi fyrst sést
á matseðli á kaffihúsi í Texas á síðari hluta
19. aldar,“ segir Magnús Ingi í tilkynningu.
Lögð er megináhersla á að bragðið af kjöt-
inu komist vel í gegn. Hamborgararnir eru
því stórir, 140 grömm, grillaðir á alvöru
grilli og allt vel útilátið. Góður tími var enn
fremur tekinn í að þróa sósurnar. - jh
Arnarsetur Íslands í
Króksfjarðarnesi
Sýningin Arnarsetur Íslands verður opnuð í
kaupfélagshúsinu í Króksfjarðarnesi í Aust-
ur-Barðastrandarsýslu í næsta mánuði, að
því er fram kemur á vef Reykhólahrepps.
Þar segir að Harpa Eiríksdóttir, ferðafulltrúi
Reykhólahrepps með meiru, leiti nú eftir
skemmtilegum og áhugaverðum sögum
sem tengjast haferninum og kynnum
fólks að honum en Harpa er að undirbúa
sýninguna. Þar er ætlunin að hafa sögur af
erninum og líka á vef Össuseturs Íslands
ehf. Fram kemur í fréttinni að sýningin
Arnarsetur Íslands og Össusetrið séu ekki
alveg sama fyrirbærið þótt tengslin séu
náin. Búsvæði þessa konungs fuglanna er,
svo sem kunnugt er, á Vestfjörðum. - jh
Ferðalag SigurjóNa ScheviNg Fór í MÁNaðar hjólaTÚr uM evrópu
Hundsbitnir skór eftir
1.770 km hjólreiðaferð
Sigurjóna Scheving sá tækifæri til þess að hjóla með syni sínum um Evrópu í árs hjólreiðaferð
hans um heiminn og greip það. Hún er nú á heimleið eftir að hafa stigið pedalana tæplega 1.770
kílómetra leið meðfram ánni Dóná og um sex Evrópulönd.
Já, það
var svo-
lítið erfitt
að skilja
við soninn
og vita að
hann eigi
eftir að
fara einn
um ókunn
svæði.
slegið sig mest í ferðinni. „Þegar við komum
inn í löndin að norðanverðu virtist vera af-
skaplega mikil fátækt en eftir að við komumst
sunnar og í borgir þar blasti ríkidæmi margra
við,“ segir hún. Þá kom vingjarnleiki fólks
skemmtilega á óvart. „Sérstaklega í Ungverja-
landi og Króatíu. Þar veifuðu börnin og aðrir
þegar við hjóluðum framhjá.“
Tvisvar lentu þau í hættu vegna lausagöngu
hunda. „Stór illvígur hundur kom á eftir
okkur í Ungverjalandi. Hann skipti sér ekkert
af syni mínum en gelti að mér svo ég var fljót
framúr stráknum. Og svo á mánudag í Bel-
grad, þegar við þurftum að fara í útréttingar
til að gera við hjólið hans Símonar, komu
tveir hundar á eftir okkur. Það eru tannaför á
skónum mínum eftir annan þeirra.“
Tvisvar tóku þau tvo frídaga og eyddu hjá
vinafólki, bæði í Slóvakíu og Póllandi. Þau
tóku einnig frídag frá hjólreiðunum í Ung-
verjalandi og á endastöð hennar í Belgrad.
Þessi hjólreiðaferð verður vart sú síðasta
hjá Sigurjónu, því nú stefnir hún á að skilja
hjólið eftir í Þýskalandi og grípa svo aftur
um stýri þessi í haust og hjóla ein um landið.
„Það er klárt í næsta slag. Það er um að gera
á meðan maður hefur heilsu, löngun og ævin-
týraþrá að grípa tækifærið.“
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Hjóluðu mest 106 km á einum degi
Mæðginin Sigurjóna
og Símon hjóluðu mikið
innan um þétta umferð,
en upplifðu einnig að
þurfa að hleypa úr
dekkjum til að komast
yfir hrjóstug svæði. Þau
hjóluðu yfir akra og eftir
rólegum sveitavegum
þegar færi gáfust.
„Við hjóluðum um
60 til 100 kílómetra á
dag. Mest fórum við
106 km. Við hjóluðum
30 til 40 kílómetra án
þess að taka okkur pásu
og stoppuðum í mesta
lagi til þess að skoða á
GPS-tækinu hvar við
værum stödd,“ segir
Sigurjóna sem kemur
heim þann 29. maí, eftir
rólega daga með vinum
í Þýskalandi.
Mæðginin Símon Halldórsson og Sigurjóna Scheving. Hann hefur lagt 3,321 km að baki og hún 1.768 í fylgd hans.
Lloret de Mar á Costa Brava er nýr áfangastaður Express ferða
á Spáni. Lloret de Mar er heillandi strandbær sem býður upp á
frábæra og ölskylduvæna afþreyingu; skemmtigarða, köfun,
sólarstrendur, golfvelli og barnvæn leiksvæði.
Allar nánari upplýsingar á www.expressferdir.is
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2–11 ára. Flogið út 18. júní. F
í
t
o
n
/
S
Í
A
expressferdir.is
5 900 100
Verð á mann
í 7 daga, hálft
fæði, frá:
Guitart Central Park Silver
98.100 kr.
Costa Brava
SP
ÁN
N
Sólarferðir 8 fréttir Helgin 25.-27. maí 2012