Fréttatíminn - 25.05.2012, Blaðsíða 24
Rússnesku ömmurnar hafa heillað ansi marga .
Jón Jósep Snæbjörnsson hafði ekki heyrt mörg
lögin áður en hann flaug út til Bakú, en sagði frá
því að synir hans tveir þekktu og hefðu gaman
af laginu sem rússnesku ömmurnar syngja.
Buranovskiye Babushki-ömmurnar koma frá
Udmurtia og urðu frægar í Rússlandi 2008
eftir að hafa komið fram í þekktum sjón-
varpsþætti. Sú elsta í hópnum er ekki
nema 76 ára, verður 77 í haust. Þær
höfðu áður reynt fyrir sér í undan-
keppni Eurovision í heimalandinu.
Árið 2010 urðu þær öllum að óvörum
í þriðja sæti.
Ítalir hætta reglulega í EurovisionMeð rússneskri ömmu
Ítalir taka nú annað árið í röð þátt
í Eurovision eftir margra ára hlé
(og sumir segja fýlu) út í keppnina.
Þeir byrjuðu vel í fyrra, urðu í
öðru sæti.
Forsvarsmennirnir
EBU, samtaka ríkissjón-
varpsstöðva, ákváðu
fyrir þremur árum að
reyna allt til að fá þá
aftur í keppnina og
tilkynntu Ítalir þá að
þeir tækju aftur þátt
eftir þetta langa
hlé árið
2011.
Ítalir hafa margoft dregið sig úr
Eurovision. Fyrst árið 1981 þegar
ítalska sjónvarpið, RAI, sagði
áhuga þjóðarinnar hafa dalað, en
árið 1983 voru þeir aftur mættir
til leiks. Strax árið 1986 tóku
þeir aftur hlé frá keppni og eins
árin 1992 til 1994. Þá báru þeir
aftur við takmörkuðum áhuga á
keppninni.
Áhuginn glæddist ekki þrátt
fyrir að hafa sigrað glæsilega í
Eurovision árið 1990 með Insieme:
1992 í flutningi Toto Cutugno
(sem margir muna eftir með
háralitinn í hvítum jakka sínum
eftir kampavínið á sigurstundu).
En þrátt fyrir þann sæta sigur náði
lagið ekki einu sinni inn á topp tíu
á Ítalíu.
Ítölsku lögunum hefur nær
undantekningarlítið gengið vel í
keppninni. Þeir hafa aldrei lent
neðar en í sautjánda sæti.
Fjórum sinnum í þriðja sæti,
tvisvar í öðru og tvisvar
unnið. Af þeim 39 skiptum
sem þeir hafa keppt
hafa þeir einungis
ellefu sinnum
ekki náð inn á
topp tíu.
Eurovision dregur margan að og núna tónlista-
manninn Jamie Cullum. Þessi fyrrum bjartasta von
Breta með Grammy-tilnefningu upp á vasann, er
meðal þriggja höfunda þýska framlagsins í ár, sem
hinn 22 ára Roman Lob syngur. Lagið er fjarri því
að falla í Eurovision-formúlu-pyttinn
og líður hjá rétt eins og það væri í
spilun á Bylgjunni. Hreint ótrúlegt
að það sé ekki þegar komið í
kraftspilun á stöðinni. Áreynslu-
lítið, flott lag.
Jamie Cullum lék í Hörpunni
fyrir tæpu ári síðan. Honum
hefur tekist að brúa bil
djass-tónlistar og poppsins.
Nú er spurt hvort Robin
Lob nær að að hjartarótum
Evrópubúa. Í það minnsta
er virðingarvert hjá Þjóð-
verjum að senda síðustu
ár vönduð popplög í
keppnina; samanber lögin
hennar Lenu en fyrra lag
hennar Satellite landaði
sigri í Ósló fyrir tveimur
árum. - gag
Jónsi, Gísli og ein af ömmunum
rússnesku. Mynd/Af Facebook-síðu Jónsa
Nina Zilli keppir
fyrir hönd Ítalíu
og verður tíunda
á svið á morgun,
laugardagskvöld,
enda Ítalir með
fast sæti í
úrslit-
unum.
Jamie Cullum
í Eurovision
Persneski prinsinn
af Noregi
Hinn íranski-norski Tooji hefur vakið athygli
með nútímalega en þó þjóðlagaskotna dans-
lagi sínu Stay. Hann fæddist í Shiraz í Íran
árið 1988 og hélt upp á fyrsta afmælisdaginn
á flótta til Noregs. Í heimalandinu – Noregi,
er hann oft nefndur
persneski prinsinn.
Aserar stóla aftur á sænska lagahöfunda
– sem og í fyrra; rólegt, fallegt
en ólíklegt til sigurs fyrir
óþreyjufulla Eurovision-
áhorfendur. Aserar eiga
fast sæti í aðalkeppn-
inni enda gestgjafarnir
ár. Þeirra framlag er það
þrettánda á svið. Söng-
konan Sabina fæddist
Bakú í desember 1979.
Sú spænska Pastora
Soler, 33 ára, er þekkt
í heimalandi sínu. Hún
syngur lag tveggja
Svía og Spánverjans
Antonio Sánchez.
Það renna því flest
vötn til Svíþjóðar í ár,
eins og svo oft áður í
Eurovision. Lagið er
nítjánda lagið sem
keppir á laugardags-
kvöld.
ég hana mest með því að treysta,“ segir
þessi Mosfellsbæjarmær, sem foreldrarnir
Stefán Pálsson og Kristín Lilliendahl fylgja
stoltir eftir í Aserbaídsjan. „Ég spila mikið í
jarðarförum og brúðkaupum. Svo spila ég í
messum og við aðrar kirkjuathafnir. Já, trúin
hefur haft áhrif á tónlist mína þótt það sjáist
ekki í þessu Eurovision-lagi. Lífsskoðanir
manns hafa alltaf áhrif á verk manns.“
Æfir í Elliðaárdal
Árinu yngri systir hennar, Sunna Rán, og
kærastinn Elvar Þór Karlsson eru einnig
með Gretu í Bakú en Elvars bíður einnig
stórt verkefni þegar heim verður komið. Þá
opnar Cross-fit stöðin hans í Elliðaárdalnum.
„Ég byrjaði í Boot Camp árið 2008 og færði
mig svo í Cross-fitið. Við eigum þetta sam-
eiginlegt og hann hvetur mig áfram í því.“
Rétt má ímynda sér hversu annasamar
stundirnar verða hjá Gretu þar til hún stígur
sjöunda á sviðið í Kristalshöllinni á laugar-
dagskvöld, rétt eftir miðnætti að aserskum
tíma, en sjö að kvöldi hér heima.
„Það kemur mér á óvart hversu risastórt
apparat þessi keppni er – og hvað maður
er hálfgert peð í henni allri. Ég ætla ekki
að útiloka það að ég taki aftur þátt. Ég veit
ekki hvað framtíðin ber í skauti sér. En það
verður þó ekki nema ég hafi enn betra lag í
höndunum,“ segir Greta Salome en
henni er spáð góðu gengi í
keppninni í ár.
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Greta Salóme í Bakú, Aserbaídsjan, 25 ára gömul; höfundur lagsins og flytur það nú fyrir 125 milljónir áhorfenda. Geri aðrir betur.
24 eurovision 2012 Helgin 25.-27. maí 2012