Fréttatíminn - 25.05.2012, Side 28
Lífið stuttbuxum
Sumarið er tíminn söng Ásbjörn Kristins
son Morthens um árið og eru það svo
sannarlega orð að sönnu. Karlmenn
landsins skríða nú sem aldrei fyrr úr
vetrarhíði íklæddir stuttbuxum. En má
bara hvað sem er í þeim efnum eða er
eitthvað sem ber að varast?
Teikningar/Hari
og Sumarjógúrtin frá MS.
Kræktu þér í ljúffenga Sumarjógúrt með
íslenskum krækiberjum. Tilvalin í útileguna,
sumarbústaðinn eða lautarferðina.
Sumarið er komið
H
VÍ
TA
H
Ú
SI
Ð
/S
ÍA
S tíll er einstaklingsbund-inn og það er sjálfsagt bundið í stjórnarskrána
nýju frelsið til að
klæðast hverju sem
er. En í gvöðanna
bænum passið sídd-
ina á stuttbuxunum.
Buxurnar eiga helst að
klárast á hnéskelinni eða
þar rétt fyrir ofan. Ekki
vera gaurinn sem mætir
í allt of stuttum – jafnvel
klipptum gallabuxum þar
sem boxerbrókin gægist út.
Eins er ekki málið að hafa þær
of síðar. Þegar buxurnar eru
farnar að nálgast ökkla eru þær
orðnar of stuttar buxur en ekki
stuttbuxur. Ekkert væl um að GK kvarts-
buxurnar frá 1999 séu tímalaus klassík. Auð-
vitað eru alltaf undantekningar sem sanna
regluna eins og kálfasíðar
buxur að hætti þeirra sem
þeytast um með böggla í
stórborgum heimsins á eins
gíra götuhjóli, tattúveraðir
í drasl og íklæddir styttum
vinnubuxum.
Sokkar
Það allra mikilvægasta sem
þarf að hafa í huga þegar
þær stuttu eru dregnar
fram eru sokkarnir. Sokkar
eru ágætir til síns brúks
og ef ætlunin er að stunda
íþróttir eins og hlaup,
hjólreiðar eða golf er í lagi
að klæðast sokkum. Annað
hvort mjög niðurteknum
hvítum sportsokkum (engar
rendur takk) eða það sem
er enn þá betra að draga á
sig hælasokka sem tóna við
annað hvort skóna eða bux-
urnar. Sterkir litir eru líka í
góðu lagi en gæta þarf hófs í
litasamsetningu.
Sokkalaust
Ef buxurnar eru hins vegar
ætlaðar til hverdsdags-
brúks eru sokkarnir hins
vegar komnir á bannlista
og hana nú! Það er ekkert
í heiminum verra en full-
orðinn karlmaður íklæddur
stuttbuxum og uppháum
svörtum sokkum við gömlu
góðu leðurskóna sem keypt-
ir voru á vorútsölu Steinars
Waage þarna um árið. Það
bara má ekki. Ekki mis-
kilja að það þurfi að klæðast
íþróttaskóm við stuttar, alls
ekki, heldur þarf að hugsa
aðeins út fyrir jakkafötin
og klæðast skóm eins og
lágum Convers, Vans eða
til dæmis bátaskóm. Stutt-
buxur eru í eðli sínu hvers-
dagslegur klæðnaður og
það ættu skórnir að endur-
spegla.
Og fyrir þá sem að eru
hræddir við að vera berfætt-
ir í vinnunni er bara eitt að
segja. Ekki fara úr skónum.
Haraldur Jónasson
hari@frettatimann.is
Bátaskór
Þessir skór eru að ryðja sér til rúms á Íslandi og er það vel. En
það er eitt með bátaskó. Það má aldrei koma í hann
sokkur. Það er nú bara þannig. Það á að klæðast stutt
buxum eða bretta vel upp á kakíbuxurnar og sporta
bátaskónum „au natural“. Best er að rúlla svo aðeins
niður í Nauthólsvík og sletta smá sjó á þá til að fá á
þá alvöru saltrönd eins og menn séu nýkomir í land.
Samfélagslega óásættanlegt
Þeir eru margir karlmennirnir sem lykta ekki svo vel á tánum, sérstaklega fari þeir ber
fættir í skóna. Það er þó til ráð við þessu en farðu með það eins og mannsmorð. Því
ef upp kemst er karmennskan í voða. Konur eru nefnilega búnar að uppgötva
fyrir mörgum áratugum að það má ekki klæðast sokkum þegar
það sést í ökklana. Þess vegna eru til sérstakar sokkahosur eða
tátiljur, nælonsokkar sem hylja bara tærnar og ilina. Láttu bara
ekki nokkurn mann sjá til þín í Oreblúdeildinni í apótekinu.
Einfalt og gott
Bestu stuttbuxurnar eru yfirleitt þær einföldustu. Buxur úr kakíefni,
ekki of vítt skornar við hnéskelina eða þar rétt fyrir ofan eru
tímalaus klassík og henta við hvert það tækifæri sem bjóða upp
á stuttbuxur. Cargostuttbuxur, þessar sem líta út fyrir að hafa
einhvern tíma verið hermannabuxur áður en fatahönnuðir
komust í þær, eru líka klassísk og góð lausn. Passa þó að hafa
ekki of mikið í gangi. Rennilásum og vösum má ofgera.
Það þarf ekki að
fjölyrða um að
þetta er bannað!
67% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent okt.-des. 2011
28 tíska Helgin 25.27. maí 2012