Fréttatíminn - 25.05.2012, Qupperneq 37
íslenskt grænmeti
Sölufélag garðyrkjumanna Sumar 2012
Eftir stúdentspróf ákvað ég að læra ensku í Háskóla Íslands. Það gekk vel og ég kláraði eitt ár, en ég las örugglega fleiri
garðyrkjubækur en námsbækur“, segir Helena
Hermundardóttir garðyrkjubóndi og fimm
barna móðir á Friðheimum í Reykholti.
Hún þakkar móður sinni og sænskri ömmu
garðyrkjuáhugann. „Þær ræktuðu mikið og
útiræktun kynntist ég í Svíþjóð hjá ömmu“.
Helena og maður hennar knútur rafn
Ármann hafa verið grænmetisbændur á
Friðheimum frá árinu 1995, þegar þau
keyptu jörðina. Helena var þá útskrifuð
frá Garðyrkjuskóla ríkisins og Knútur frá
Bændaskólanum á Hólum. Þau kynntust í
Fjölbrautarskólanum í Breiðholti og voru
aðeins um tvítugt þegar þau ákváðu að flytja
úr borginni. „Við keyrðum um Suðurland í leit
að garðyrkjustöð sem væri til sölu. Við fundum
Friðheima og það var Brúnó Hjaltested sem
var fjárhaldsmaður eigandans sem við eigum
það að þakka að við eignuðumst Friðheima.
Hann treysti því að við myndum byggja
staðinn upp“, segir Helena. Þegar þau hjón
keyptu Friðheima hafði staðurinn ekki verið í
ábúð í þrjú ár.
Þau Helena og Knútur hafa svo sannarlega
tekið til hendinni því nú rækta þau í
gróðurhúsum sem þekja samtals 5200 fermetra.
Fyrstu árin ræktuðu þau tómata, paprikur og
gúrkur, en frá árinu 2002 hafa þau sérhæft sig
í tómatarækt, og framleiða nú m.a. plómu- og
konfekttómata allt árið með hjálp raflýsingar.
Helena segir að þau hafi frá byrjun verið
með hrossarækt samhliða garðyrkjunni.
Knútur fékk áhuga á hrossum þegar hann
var ungur drengur og sá áhugi leiddi hann í
Bændaskólann „Við höfum alltaf verið með
töluvert af hrossum og langaði að auka hlut
hestamennskunnar í okkar rekstri. Því ákváðum
við fyrir fjórum árum að setja á laggirnar
hestasýningu fyrir ferðamenn, sem er sögu-og
gangtegundasýning. Í dag erum við stolt af því
að útbreiða hróður íslenska hestsins til þúsunda
ferðamanna sem heimsækja okkur á hverju
ári, en einnig hefur það aukist að ferðamenn
heimsæki gróðurhúsin og fái fræðslu og
upplifun um ræktunina þar“.
„Við garðyrkjubændur leggjum mikið upp
úr því að senda frá okkur góða vöru. Þess
vegna ákváðum við að merkja hana sérstaklega
með íslensku fánaröndinni og einnig býlinu
þar sem grænmetið er ræktað. Nú er hægt að
rekja framleiðsluna alla leið til bóndans og í
því felst mjög mikið aðhald. Það er hvatning
til að senda aðeins frá sér gæðavöru og hafa
neytendur tekið þessu afskaplega vel“ segir
Helena.
Helena var valinn fulltrúi garðyrkjubænda á
Búnaðarþing. Hún segir það gott að geta unnið
fyrir greinina og vekur athygli á því að konur
séu fjölmennar í stétt garðyrkjubænda þótt þær
séu oft ekki eins sýnilegar og karlarnir. Helena
segist bjartsýn á framtíðina enda hafi þau smátt
og smátt byggt upp Friðheima í þeirri trú að
hér (á Íslandi) verði áfram blómleg garðyrkja.
Úr Breiðholtinu í reykholt
-Helena Hermundardóttir bóndi á Friðheimum í Bláskógabyggð.
Paprikur
C vítamín
sprengjur
Sveppir
Algjör sveppur
Gúrkur
Gúrka fyrir
fegurðina
Tómatar
Vinsælastir
Listakokkar
Matgæðingarnir og
listakonnarnir Hrefna
sætran og nanna
rögnvaldsdóttir eru
löngu þjóðþekktar fyrir
góðar uppskriftir. Í blaðinu
eru uppskriftir eftir
þær sem henta við flest
tækifæri.
Bj
ö
rn
Á
rn
a
so
n
El
sa
B
jö
rg
M
a
g
n
ú
sd
ó
tt
ir
geymið Blaðið