Fréttatíminn - 25.05.2012, Qupperneq 38
2 ÍSLENSKT GRÆNMETISUMAR 2012
Vissir þú
... að gúrka er 96% vatn?
... að gúrkur innihalda lítið af kaloríum?
... að gúrkan er tæknilega ávöxtur því hún
inniheldur fræ sem gera henni kleyft að
fjölga sér?
... að gúrkur eru vinsælar til að leggja yfir
augun því það þykir gefa fallegt útlit?
... að gúrka vex árið um kring og er þess
vegna alltaf fáanleg fersk?
... að gúrka inniheldur A ,B og C vítamín
auk nokkurs af kalki og
járni?
... að gúrka
tilheyrir
graskersætt
og er náskyld
melónu?
Neysla á grænmeti og ávöxtum er langt frá því að ná ráðlögðum dagskammti sem er 400 grömm. Þetta kemur fram í landskönnun á mataræði 2010
– 2011, sem Embætti landlæknis, Matvælastofnun og
Háskóli Íslands gerðu í ársbyrjun. Landsmenn hafa aukið
grænmetisneyslu sína um 19 prósent frá árinu 2002 en
hún er að meðaltali 120 grömm á dag. Það samsvarar t.d.
einum litlum tómat, gúrkusneið og einni lítilli gulrót.
Til þess að ná ráðlögðum dagskammti þyrfti að tvöfalda
magnið í tvo tómata, tvær gúrkusneiðar og tvær gulrætur
á dag.
Hnattstaða landsins og landfræðileg einangrun gera Ísland
fljótt á litið ekki kjörland garðyrkju en einmitt það ásamt
náttúruauðlindum landsins skapa landinu sérstöðu sem
garðyrkjulandi. Norðlæg lega og einangrun þýðir að hér
er fátt innlendra meindýra og sjúkdóma í gróðri.
Mikil þróunarvinna hefur átt sér stað í ylrækt undanfarin
ár og Íslendingar standa mjög framarlega á því sviði.
Grænmetisbændur bjóða nú upp á tómata, gúrkur og
sveppi allt árið og paprikan fylgir fast á eftir. Samtals
rækta garðyrkjubændur tæplega 30 tegundir af grænmeti
í ylrækt og útirækt.
Gróðurhúsin eru tæknilega mjög vel búin. Tölvur stjórna
loftslaginu og vökvun eftir þörfum plantnanna. Sum
þeirra eru svo tæknilega vel búin að þau hafa sína eigin
veðurathugunarstöð.
Íslenskt grænmeti er hollt, ferskt og bragðgott. Hár
gæðastaðall er í raun vörumerki íslensks grænmetis.
Nálægð við markaðinn gerir það að verkum að ávallt
líður stuttur tími frá uppskeru til dreifingar. Pökkun
grænmetisins er ekki síst sá þáttur sem snýr að gæðum
og markmiðið er að bragðið og ferskleikinn haldi sér.
Hollustan í íslensku grænmeti liggur í umhverfinu.
Ómengað vatn, hreint loft og jarðvegur án allra aukaefna
gerir íslenskt grænmeti bragðgott og hollt.
Landsmenn hafa tekið íslenska grænmetinu mjög vel.
Þeir hafa aukið neyslu sína á þessari úrvalsvöru jafnt og
þétt. En betur má ef duga skal og enn er langt í land ef
manneldismarkmið eiga að nást. Grænmetisbændur hafa
lagt mikla vinnu í að upprunamerkja íslenskt grænmeti
þannig að það fari ekki á milli mála hvaðan það kemur.
Hægt er að rekja grænmetið til þeirra
bænda sem rækta það. Þeir leggja
allan sinn metnað í að senda
frá sér góða og ferska vöru.
Grænmetisbændur þakka ykkur
góðar móttökur og vona að
íslenska grænmetið haldi
áfram að gleðja
ykkur og næra.
30 tegundir af
íslensku grænmeti
Elstu heimildir um gúrkuræktun eru frá Indlandi en hún hefur verið ræktuð þar í þrjú þúsund ár. Gúrkan
barst frá Indlandi til Grikklands og þaðan til
Ítalíu. Rómversku keisararnir höfðu þær á
borðum daglega en talið er að það hafi verið
Tíberíus keisari sem ríkti frá árinu 14 til 37
e. kr. sem hóf að rækta þær í gróðurhúsum
yfir veturinn. Rómverjar notuðu gúrku til
að leggja á skordýrabit og til að leggja yfir
augun til að fá frískara útlit og skerpa sjónina.
Gúrkan barst með Spánverjum til Ameríku.
Indíánar tóku henni vel og náðu þeir góðum
árangri í ræktun hennar í Norður- og Suður
Dakota.
Gúrkan er ekki grænmeti heldur ávöxtur
eða stórt ber. Hún er aldin klifurjurtar af
kúrbítsætt og er náskyld tegundum eins og
melónu og graskeri. Hún hefur verið ræktuð
hér á landi frá því á þriðja áratugnum, en
neysla hennar jókst verulega eftir seinna
stríð. Gúrkur geta verið mjög mismunandi
að stærð og lögun, en litlar agúrkur eru oft
bragðmeiri en þær stærri.
NæriNgargildi
Gúrkur eru hollar og hitaeiningasnauðar,
aðeins 12 hitaeiningar (kcal) í 100 g.
Vökvainnihald þeirra er hátt, um 96 prósent.
Í gúrkum er A,B og C vítamín auk þess er í
þeim kalk og járn. Gúrkur eru, eins og annað
grænmeti, upplagðar sem snakk ásamt léttri
ídýfu t.d. úr kotasælu eða jógúrt. Á Indlandi
er algengt að brytja gúrkur út í jógúrt og nota
sem meðlæti með sterkum karrýréttum.
geymsla
Góðar og heilbrigðar gúrkur geymast í rúma
viku án þess að dragi úr gæðum ef aðstæður
í geymslunni eru réttar. Besti geymsluhiti
fyrir gúrkur er 12°C. Þeim er mjög hætt við
kæliskemmdum ef hitinn fer undir 10°C en
hafi þær verið geymdar við lægri hita er réttast
að halda honum eins út geymslutímann því
gúrkur spillast fljótt við stofuhita eftir slíka
meðhöndlun. Aðalatriðið er að græni liturinn
sé jafn og að þær séu stinnar. Gott er að meta
það með því að þrýsta létt á stilkendann því
þar linast þær fyrst.
Rómverjar
notuðu
gúrku til
að leggja á
skordýrabit
og til að
leggja yfir
augun
til að fá
frískara útlit
og skerpa
sjónina.
„ ... sum
þeirra eru svo
tæknilega vel
búin að þau
hafa sína eigin
veðurathug-
unarstöð.”
Uppáhald rómversku keisaranna
Frísklegri með gúrku
1 íslensk gúrka, lítil
5 msk hvítvínsedik
150 ml vatn
2 msk sykur
2 tsk salt
nokkur piparkorn
2-3 íslenskir tómatar, vel þroskaðir
1 lárpera, vel þroskuð
1/2-1 chilialdin
hnefafylli af kóríanderlaufi
Byrjað er á að léttsúrsa
gúrkurnar í smástund en
síðan eru þær notaðar í salat
með Tex-Mex-yfirbragði. Það
er líka hægt að nota léttsýrðu
gúrkurnar einar sér með ýmiss
konar réttum.
Salat með léttsýrðum gúrkum og lárperu
Gúrkurnar skornar í þunnar sneiðar.
Edik, vatn, sykur, salt og piparkorn sett
í pott og hitað að suðu. Látið sjóða í 2-3
mínútur og síðan eru gúrkusneiðarnar
settar út í, potturinn tekinn af hitanum
og gúrkusneiðarnar látnar kólna alveg í
leginum. Hrært öðru hverju.
Tómatarnir eru svo skornir í geira og
lárperan afhýdd, steinninn fjarlægður og
aldinkjötið skorið í teninga. Chilialdinið
saxað smátt. Tómatar, lárpera og chili sett í
skál og síðan er gúrkunum blandað saman
við ásamt dálitlu af leginum. Kóríanderinn
saxaður gróft og blandað saman við.
Salatið er gott eitt sér eða með ýmsum mat,
t.d. soðnum og steiktum fiski eða kjúklingi.
- NR
Kristín Linda
Sveinsdóttir
Markaðsstjóri
Sölufélags
garðyrkjumanna
kristin@sfg.is
Útgefandi: Sölufélag garðyrkjumanna
Ábyrgðarmaður: Kristín Linda Sveinsdóttir kristin@sfg.is
Myndir: Hari
Umbrot: Jón Óskar/Grái kötturinn
Umsjón með útgáfu: Katrín Pálsdóttir katrin@sfg.is
islenskt.is
Kíktu inn á fésbókina okkar - facebook.com/islenskt.is.
Þar er leikur í gangi sem gæti verið gaman að taka þátt í.
Glæsilegar grænmetiskörfur í boði.
gúrkUr
vi
G
fú
S
Bi
rG
iS
So
n