Fréttatíminn - 25.05.2012, Síða 50
42 framkvæmdir Helgin 25.-27. maí 2012
Raflagnir NýbyggiNgar eða eNdurNýjuN
HúsHorNið snýr aftur í næsta blaði. Lesendur Fréttatímans geta sent
fyrirspurnir er varða framkvæmdir og viðhald húsa á netfangið hushorn@huso.is
HúsHorNið er unnið í samvinnu við Húseigendafélagið,
Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Samtök iðnaðarins.
Í upphafi skyldi endirinn skoða
Þ egar byggt er nýtt hús eða gömul hús endur-nýjuð er mikilvægt að menn geri sér grein fyrir vinnuferlinu og þeim leikreglum sem gilda um
slíkar framkvæmdir og á það við um alla verkþætti.
Hér verður einungis fjallað um raflagnir en þeim verk-
þætti fylgja jafnan fjarskipta- og öryggislagnir.
Byggingarstjóri
Samkvæmt byggingarlögum og byggingarreglugerð
ber byggingarstjóra að sjá til þess að löggiltir iðn-
meistarar séu skráðir á alla verkþætti hjá byggingar-
fulltrúa í viðkomandi umdæmi. Þetta á við um allar
byggingarleyfisskyldar framkvæmdir.
Teikningar
Áður en hafist er handa er mikilvægt að hönnun sé
lokið þannig að allir sem að verkinu koma viti hvert er
stefnt. Til þess að hægt sé að gera kostnaðaráætlun
og/eða fá tilboð í verkið þurfa raflagnateikningar að
liggja fyrir.
Fá tilboð eða semja um verð
Farsælast er að óska eftir tilboðum í verkið og þá jafn-
vel frá fleiri en einum rafverktaka. Í stað þess að fá
eina tölu í verkið er betra að sundurliða það eftir verk-
þáttum. Nákvæm magntölu-skrá er besti kosturinn,
eftir því sem verkið er betur skilgreint því nákvæmari
verður loka niðurstaðan.
Ef samkomulag verður um að vinna verkið í tíma-
vinnu eða í ákvæðisvinnu er nauðsynlegt að semja
um útselt tímagjald eða verð útseldrar verkeiningar
áður en verkið hefst. Ef vinna á yfirvinnu í verkinu er
farsælast að semja um þann þátt fyrirfram.
Vert er að minna á að samkvæmt samkeppnislögum
er óheimilt að hafa samráð um útselda vinnu og getur
hún því verið breytileg milli fyrirtækja.
Verksamningur/Lagnaleyfi
Þegar tilboði hefur verið tekið er nauðsynlegt að að-
ilar geri með sér verksamning þar sem samið er um
framgang verksins og greiðslufyrirkomulag. Þá ber
báðum aðilum samkvæmt lögum að undirrita eyðu-
blað Mannvirkjastofnunar MVS 3. 102 Tilkynning um
rafverktöku á neysluveitu. Rafverktaki sendir síðan
eyðublaðið til viðkomandi rafveitu eða Mannvirkja-
stofnunar. Vert er að geta þess að eyðublaðið er ígildi
samnings milli aðila.
Heimtaug/spennusetning
Ef um nýja byggingu er að ræða þarf húsbyggjandinn
að sækja um heimtaug til viðkomandi rafveitu. Hann
getur einnig falið rafverktaka sínum að annast það
fyrir sig. Rafverktakinn sækir síðan um spennusetn-
ingu þegar lögnin er spennuhæf. Sama gildir í þeim
tilfellum þegar um vinnuskúra er að ræða.
Framvinda verks
Þegar hér er komið sögu reynir á samkomulag milli
aðila um framgang verks og greiðslur.
Verklok
Þegar verki er lokið framkvæmir rafverktakinn
lokaúttekt og gerir tilheyrandi mælingar. Þá gerir
hann lokaskýrslu á eyðublað, MVS 3. 105 Skýrsla um
neysluveitu sem hann sendir til viðkomandi rafveitu
eða Mannvirkjastofnunar og afrit til verkkaupa/hús-
eiganda.
Rafverktakaskipti
Með undirskrift á eyðublað MVS 3. 102 er kominn á
samningur milli aðila um verktöku og rafverktakinn
er orðinn ábyrgur fyrir lögninni gagnvart viðkomandi
rafveitu og Mannvirkja-stofnun. Óski verkkaupi eftir
að skipta um verktaka verður að gera það á þann hátt
sem lög segja fyrir um, með undirskrift beggja aðila
á eyðublað MVS 3. 103 Tilkynning um rafverktaka-
skipti. Áður en til skipta kemur þarf að fara fram upp-
gjör milli fráfarandi verktaka og verkkaupa. Rafverk-
takinn sem tekur við yfirtekur síðan alla ábyrgð á
verkinu.
ÁRJ
Verkþætti raflagna fylgja jafnan fjarskipta- og öryggislagnir.
Þegar verki er lokið
framkvæmir rafverk-
takinn lokaúttekt
og gerir tilheyrandi
mælingar.
Plankaparket í miklu úrvali
Bjóðum einnig upp á sérframleitt parket eftir óskum
hvers og eins.
Burstað, lakkað, olíuborið, hand-heflað, reykt, fasað,
hvíttað, eða hvernig vilt þú hafa þitt parket ?
Láttu drauminn rætast hjá okkur.
Dalvegi 10-14 201 Kópavogur Sími: 595 0570 Parki.is
H E LGA R BL A Ð
H E LGA R BL A Ð
4,
6