Fréttatíminn - 25.05.2012, Síða 59
Helgin 25.-27. maí 2012 heilsa 51
Hvað getur NutriLenk
gert fyrir þig?
Liður með slitnum
brjóskvef
Heilbrigður liður
NÁTTÚRULEGT
FYRIR LIÐINA
Haustið 2009 fékk ég brjóskskemmd
í hnéð á mörkum hnéskeljar og
lærleggs. Þessu fylgdi mikill sársauki
og það brakaði í hnénu á mér í hverju
skrefi. Sársaukinn var það slæmur að
ég gat ekki æft af fullum krafti og gat
ekki einu sinni labbað niður stiga án
þess að finna til í hnénu.
Ég var búin að fá tíma í aðgerð þar sem
átti að bora inn í beinið í þeirri von að
brjóskið myndi endurnýja sig en það
var eina mögulega úrræðið.
Losnaði við hnéverkinn
Viku áður en ég átti að fara í aðgerðina
var mér bent á að prófa NutriLenk og
ég ákvað að slá til þar sem ég hafði
engu að tapa og var tilbúin að reyna allt
til að laga hnéð á mér. Strax á fyrstu
dögunum minnkaði verkurinn og ég
fór að geta æft.
Daginn áður en ég átti að fara í
aðgerðina þá fann ég ekkert til í hnénu.
Ég hef tekið NutriLenk síðan og aldrei
fundið neitt fyrir hnénu aftur.
Ég hef mikið keppt erlendis undanfarin
ár og á öllum stórmótum. Í ágúst
síðastliðnum tryggði ég mér keppnis-
rétt á Ólympíuleikunum í London í
sumar og ég tel að NutriLenk hafi
bjargað ferlinum.
Tel að NutriLenk hafi
bjargað ferlinum
Ásdís Hjálmsdóttir er afreksíþróttakona í spjótkasti og
því er mikið álag á líkamann vegna strangra æfinga.
NutriLenk er fáanlegt í flestum apótekum, heilsubúðum,
Fræinu Fjarðarkaupum, Hagkaup, Krónunni, Þín verslun Seljabraut
og Vöruvali Vestmanneyjum
NUTRILENK
NÁTTÚRLEGT BYGGINGAREFNI FYRIR BRJÓSKVEFINN
Ásdís Hjálmsdóttir 26 ára Ólympíufari
Skráðu þig á facebook síðuna
Nutrilenk fyrir liðina
- því getur fylgt heppni!
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is
Við mikið álag og með árunum getur brjósk-
vefurinn rýrnað sem veldur því að liðirnir
slitna. Þetta er náttúrulegt ferli. Mjög margir
finna fyrir miklum óþægindum þegar beinin
byrja að núast saman, sérstaklega í liðamótum
eins og í mjöðmum, hryggjar og hnjáliðum.
Þess vegna er allt til vinnandi að styrkja
liðbrjóskið á náttúrulegan hátt.
Náttúrulegt byggingarefni fyrir
liðbrjóskið og beinin
NutriLenk inniheldur náttúrulegt byggingarefni
fyrir brjóskvefinn og er mjög góður valkostur
fyrir þá sem þjást af minnkuðu liðbrjóski. Unnið
úr sérvöldum fiskibeinum úr hafinu sem hefur
sýnt fram á að vera fyrsta flokks byggingarefni til
að styðja við brjóskvefinn og viðhalda honum.
NutriLenk hefur hjálpað fjölmörgu fólki.
NutriLenk er 100% náttúruleg vara sem er mjög
gagnleg þeim sem þjást af brjóskvefsrýrnun.
Prófið sjálf-upplifið breytinguna!
7. Hnetur og fræ
Ef þú ert að leita þér að nasli sem
er gott fyrir heilann eru hnetur og
fræ einmitt málið. Og við erum að
tala um allar hnetur. Þær eru fullar
af omega-3 og omega-6 fitusýrum
sem og fólínsýru, E-vítamíni og B6
vítamíni. Það hjálpar til við skýra
hugsun en bætir einnig andlega
líðan því omega fitusýrur eru sagð-
ar góðar gegn þunglyndi. Sum fræ
og hnetur innihalda einnig þíamín
og magnesíum sem hvorttveggja
er gott fyrir heilastarfsemina.
8. Grænt laufgrænmeti
Grænt laufgrænmeti á borð við kál
og salat er frábært fyrir heilann
því það er fullt af B6, B12 og fólín-
sýru og oft járni.
9. Fiskur
Fiskur er frábær fyrir
heilann því hann inniheldur
omega-3 fitusýrur sem eru
gagnlegar líkamanum á marg-
víslegan hátt. Þær hjálpa til við
heilastarfsemina því þær hjúpa
taugafrumur og auðvelda þannig
taugaboð. Þær auka einnig súr-
efnisflæði til heilans. Bestu fisk-
tegundirnar fyrir heilann eru lax,
túnfiskur og síld.
10. Súkkulaði
Þó svo að það væri sennilega ekki
sérstaklega heilsusamlegt að
borða óteljandi súkkulaðistykki og
skola þeim niður með heitu súkk-
ulaði er súkkulaði samt sem áður
gott fyrir heilann. Það skiptir hins
vegar máli hvernig súkkulaði er
um að ræða. Kakóið sjálft er hollt
og fullt af andoxunarefnum og
því er ekkert nema hollt að borða
temmilegt magn af góðu, lífrænu,
dökku
súkkul-
aði.
Í vinnslu eru nýjar sam-norræn-ar ráðleggingar um mataræði og næringarefni en þær voru
síðast birtar árið 2004. Norræna
næringarfræðiráðstefnan verður
haldin hér á landi í byrjun júní þar
sem kynntar verða niðurstöður
stýrihóps um verkefnið. Ráðstefn-
an er haldin fjórða hvert ár – og var
síðast haldin hér á landi 1992.
Inga Þórsdóttir prófessor situr
í stýrihópnum fyrir hönd Íslands.
„Við gerum svokallaða kerfis-
bundna athugun á öllum birtum
vísindagreinum og birtum rann-
sóknarniðurstöðum sem varða
næringarefni, matvæli og hreyf-
ingu, því hreyfing er hluti af orku-
jöfnunni. Þetta er gert fyrir hina
mismunandi aldurshópa og einnig
barnshafandi konur,“ segir Inga.
Skoðuð eru sérstaklega þau svið
sem mikið hafa verið í umræðunni
að undanförnu, svo sem D-vít-
amín, próteinneysla ungra barna,
brjóstagjöf, áhrif joðs og ráðlegg-
ingar um hvernig á að halda réttri
líkamsþyngd. Að auki eru skoð-
aðar rannsóknir á öðrum sviðum
og hvort vísbendingar séu um að
breyta þurfi ráðleggingum. „Við
metum ráðlagða dagskammta,
lágmarksinntöku sem kemur í veg
fyrir skortseinkenni og hvar við
erum með ofgnótt af tilteknu nær-
ingarefnum og gefum ráðlegging-
ar í samræmi við það,“ segir Inga.
Í nýju ráðleggingunum verður
meira fjallað um heildarmataræði
en áður. „Við fjöllum ekki ein-
göngu um stöku næringarefni
heldur líka um heildarmataræði,
hvernig næringarefni hafa áhrif
hvort á annað og teygjum okkur
því lengra í átt að því sem heitir
ráðleggingar um mataræði og
neyslu heldur en síðast,“ segir
Inga.
NæriNGarFræði Endurskoðun ráðlEgginga um mataræði
Nýjar ráðleggingar um mataræði
inga Þórsdóttir.