Fréttatíminn - 25.05.2012, Blaðsíða 66
The Lucky One
Ungur bandarískur
hermaður, Logan
Thibault, sem leikinn
er af ungstirninu
Zac Effron, flytur
til Norður-Karólínu
eftir að hafa þjónað
í hernum, í Írak
þrisvar sinnum,
til að hitta konu eina sem hann telur að
hafi bjargað lífi hans meðan á dvöl hans í
Írak stóð. Það eina sem hann hefur til að
finna konuna Beth, sem leikin er af Taylor
Schilling, er mynd af konunni. Þegar hann
loksins hittir hana verða þau ástfanginn
og gefur það Logan von um að stúlkan sé
meira en bjargvættur hans. Myndinni er
leikstýrt af Scott Hicks og hefur halað inn
57 milljónir dollara síðan hún var frum-
sýnd.
Aðrir miðlar: Imdb: 5,9, Rotten Tom-
atoes 20%, Metacritic 39%
Snow White and the
Huntsman
Nútímaleg útgáfa
af sögunni um
Mjallhvíti og
dvergana sjö.
Kristen Stewart
leikur einu konuna
sem er fallegri en
vonda drottningin,
sem leikin er af
óskarverðlauna-
hafanum Charlize Theron. Vonda drottn-
ingin vill, eins og sagan góða segir okkur,
losna við konuna ungu en tekur ekki með
í reikninginn að leigumorðinginn (Chris
Hemsworth) sem hún sendir á eftir henni
verður ástfanginn af stúlkunni og kennir
henni allar mögulegar og ómögulegar
bardagalistir. Með þá þekkingu að vopni
og átta dverga sér við hlið gerir hina fagra
stúlka atlögu að vondu drottningunni.
58 bíó Helgin 25.-27. maí 2012
FrumsýndAr
A Little Bit of Heaven er rómantísk gamanmynd með stórleikurunum Kate Hudson og Gael
Garcia Bernal í aðalhlutverki. Hudson leikur unga, fagra (sem er kannski ekki erfitt fyrir
hana) og fyndna stúlku í New Orleans sem verður óvænt ástfangin af lækninum sínum,
sem leikinn er af mexíkóska sjarmatröllinu Gael Garcia Bernal. Ungfrúin hefur ávallt
neitað að horfast í augu við sanna ást og skuldbindingar en í heimsókninni til læknisins
breytist líf hennar til frambúðar. Í framhaldinu opnast flóðgáttir tilfinninga á báða bóga
– nokkuð sem kemur þessum tveimur lokuðu manneskjum í opna skjöldu. Myndin hefur
fengið slæma dóma, vægast sagt, en allir þeir sem eru hrifnir af Kate Hudson og Gael
Garcia Bernal fá væntanlega eitthvað fyrir sinn snúð.
Aðrir miðlar: Imdb 6,0, Rotten Tomatoes 4%, Metacritic 14%
Hudson ástfangin af lækni sínum
Sacha Baron Cohen er með fyndn-
ari mönnum. Það verður ekki af
honum tekið og flippmynd hans
um sjónvarpsmanninn Borat frá
Kazakstan er með betra gríni sem
ratað hefur í bíó á liðnum árum en
þar var manni bókstaflega hætt við
uppköstum af hlátri.
Cohen hélt ekki sama dampi í
næstu mynd um tískufríkið Bruno
en þrátt fyrir það má gera miklar
kröfur til Cohen en hann stendur
því miður ekki undir þeim í The
Dictator. Hann fer að þessu sinni
út fyrir þægindaramma sinn en allt
frá því hann sló í gegn með Da Ali G
Show hefur hann verið bestur þeg-
ar hann sigar kengrugluðum pers-
ónum sínum, Ali G, Borat og Bruno,
á fólk sem á sér einskis ills von og
afhjúpar sig í fáránlegum aðstæðum
sem persónur Cohens skapa þeim
með óvæntum og ágengum spurn-
ingum.
The Dictator er ekki neitt raun-
veruleikaskotið grín heldur býður
Cohen upp á þunna sögu um ein-
ræðisherrann Aladeen sem dregur
dám af skítalöbbum og stallbræðr-
um hans á borð við Saddam Hussein
og Muammar Gaddafi. Myndin er
öðrum þræði eins og áramótaskaup
þar sem þessir föllnu og brengluðu
kúgarar eru tættir sundur og sam-
an í gríni en þar fyrir utan er The
Dictator sorglega ófrumleg saga um
skítalabba sem lendir í hremming-
um í New York, sér ljósið og tekur
út ákveðinn þroska.
Rauði þráðurinn er fenginn að
láni úr ævintýrinu um prinsinn og
betlarann en þegar Aladeen mætir
til New York til þess að messa and-
lýðræðislegan boðskap sinn yfir
þingi Sameinuðu þjóðanna tekst
fjendum hans heima fyrir að koma
honum langleiðina til vítis og setja
sauðheimskan geitahirði í hans
stað.
Þar sem Aladeen stendur uppi
slippur, snauður, skegg- og valda-
laus á götum stórborgarinnar þarf
hann að reiða sig á hjálp góðgerðar-
liðs og femínista til þess að leiðrétta
misskilninginn og eins og gefur að
skilja lærir hann sitthvað um eigið
skítlega eðli í leiðinni.
Þótt The Dictator valdi umtals-
verðum vonbrigðum er hún ekki al-
slæm og Cohen býður upp á ágætis
groddahúmor og klámbrandara
sem kalla fram bros og stöku sinn-
um hlátur en auðvitað þarf miklu
meira ef duga skal.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Bíódómur The dicTATor
Einræðisherrann og betlarinn
Frumsýning men in BlAck iii
Svalir í svörtu
Jakkafataklæddir brandarakarlar berjast við geimverur á strætum New York-borgar. Hljómar undar-
lega en engu að síður er þriðja mynd félaganna Will Smith og Tommy Lee Jones um mennina í svörtu
fötunum á leiðinni í kvikmyndahús. Fyrri tvær myndirnar höluðu inn rúman milljarð dollara.
Ú tsendararnir James Darrell Edwards III og Kevin Brown, betur þekktir sem J og K úr leyniþjónustunni MIB,
eru mættir í þriðja sinn á hvíta tjaldið í svörtu
jakkafötunum, hvítu skyrtunum, með svörtu
bindin og sólgleraugun til að stoppa glæp-
samlegar geimverur. Fimmtán ár eru liðin
frá því að fyrsta myndin um mennina í svörtu
fötunum leit dagsins ljós í túlkun Will Smith
(útsendari J) og Tommy Lee Jones (útsendari
K) og tíu ár frá annarri myndinni. Myndirnar
eru gerðar eftir teiknimyndasögunni Men in
Black eftir Lowell Cunningham sem kom út
hjá Malibu/Marvel.
Hugmyndin að myndinni kviknaði hjá
Will Smith við tökur á mynd númer tvö fyrir
tíu árum þar sem hann kom að máli við
leikstjórann Barry Sonnenfeld og bar upp
þá hugmynd að í næstu mynd myndi hans
karakter (útsendari J) ferðast aftur í tímann
til að bjarga útsendara K. Og eftir mikið japl,
jaml og fuður er söguþráðurinn einmitt sá
að útsendari J þarf að ferðast aftur til ársins
1969 til að koma í veg fyrir að glæpageimvera
að nafni Boris, leikin af Jermaine Clemente,
drepi útsendara K á fyrri hluta æviskeiðs
hans. Vandamál útsendara J er að hann hefur
aðeins 24 tíma til að leysa málið áður en hann
festist að eilífu í fortíðinni.
Josh Brolin leikur útsendara K á hans
yngri árum og sagði í viðtölum að það erf-
iðasta við hlutverkið hefði verið að ná öllum
töktunum sem Tommy Lee Jones var búinn
að byggja upp hjá útsendara K í fyrstu tveim-
ur myndunum. Auk þess er breska óskars-
verðlaunaleikkonan Emma Thompson í stóru
hlutverki. Hún leikur útsendara O í fortíðinni
en er í dag yfirmaður MIB.
Töluverð pressa er á tríónu Smith, Jones
og Sonnenfeld. Fyrsta myndin sló í gegn en
önnur þótti töluvert lakari að gæðum. Því er
mikilvægt að þessi þriðja mynd falli í kramið
enda hafa félagarnir uppi hugmyndir um að
gera fjórðu myndina. Það veltur þó líklega á
þeim viðtökum þessi mynd fær en hún var
frumsýnd á miðvikudaginn. Hún er í þrívídd
og hefur Will Smith látið hafa eftir sér að þeir
ætli að láta þrívídd líta vel út.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Minnisleysi Tækið góða hefur nýst félögunum tveimur vel í myndunum en það þurrkar út atburði hjá þeim sem horfir í það.
Tekjur
Men
in Black
Men in Black I
589 milljónir
dollara.
Men in Black II
442 milljónir
dollara.
Glæpageimveran Boris er ófrýnilegur.
Njóttu gæðanna og bragðsins og kældu þig niður í leiðinni með hollustu.
Joger - hollur og góður og fæst víða.. Prófuaðu bara!