Fréttatíminn - 25.05.2012, Qupperneq 72
Þ etta er gamanleikur á ensku. Bjarni Haukur Þórsson er eini leikarinn
og höfundur og Sigurður Sigur-
jónsson leikstýrir,“ segir Birna
Hafstein, einn skipuleggjenda
How to become Icelandic in 60
minutes sem sýna á í Hörpu í
sumar, í samtali við Fréttatímann.
Birna segir að aðalmarkhópurinn
séu útlendingar en vissulega sé
gert ráð fyrir að Íslendingar komi
líka því sýningar Bjarna Hauks og
Sigurðar, Hellisbúinn, Pabbinn og
Afinn, hafa verið vinsælar. „Það er
gert ráð fyrir metsumri í ferða-
þjónustunni. Fjölmörg flugfélög
eru að fljúga hingað, farþegum á
skemmtiferðaskipum á að fjölga
verulega og allir vilja fara í Hörpu,“
segir Birna.
Bjarni Haukur segir í samtali við
Fréttatímann að hann hafi lengi velt
sér upp úr eðli þjóðarinnar og það
hafi undið upp á sig og orðið að sýn-
ingu. „Við rennum auðvitað blint í
sjóinn. Maður veit ekkert hvort út-
lendingar vilja setjast niður í fríinu
sínu og horfa á leikhús en á þeim
þremur forsýningum sem við höf-
um verið með hefur salurinn skipst
jafnt á milli Íslendinga og útlend-
inga og allir hafa skemmt sér vel,“
segir Bjarni Haukur og bætir við
að það hafi mikið að segja að sýna í
Hörpu. „Hún hefur mikið aðdráttar-
afl fyrir útlendinga og hjálpar til.“
Bjarni Haukur hefur verið iðinn
við einleikina undanfarin ár en
hann segir það vera tilviljun frek-
ar en nokkuð annað. „Þetta hefur
þróast svona hjá okkur Sigga. Við
höfum verið að vinna með þetta ein-
leiksform en auðvitað vinn ég með
öðru fólki þess á milli,“ segir Bjarni
Haukur.
Og í sýningunni tekur hann fyrir
ýmsa þá þætti sem gera Íslendinga
að Íslendingum og ber þá saman við
aðrar þjóðir. „Ég fer til dæmis inn
á það hvernig við tölum. Við tölum
ekki mjög tilfinningaríkt líkt og
Ítalir, Spánverjar eða Japanir. Við
tölum eintóna, svolítið dauð. Ekki
jafn slæmir og Finnar en við syngj-
um ekki eins og Svíar. Síðan tala ég
um matargerð okkar Íslendinga. Í
mörgum löndum gengur hefðbund-
in maratgerð út á ferskmeti en við
einblínum á gamlan mat og helst
súran. Síðan eru það auðvitað dans-
arnir. Gömlu dansarnir eru ekki
þeir kynþokkafyllstu og steindauð-
ir við hliðina á tangó,“ segir Bjarni
Haukur og bætir við að hann láti
ekki bókmenntirnar vera.
„Ég tek líka Íslendingasögurnar
á sextíu sekúndum. Bara kjarnann.
Þær eru ekki ósvipaðar og Bold and
the Beautiful. Um leið og þú ert bú-
inn að sjá einn þátt þá þarftu ekki
að sjá meira. Í Íslendingasögunum
er þetta hverjir eru skyldir hverjum
og svo er hefnt. Ekkert flóknara.“
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Íslendingasögur eins og
Bold and the Beautiful
Leikhús enska í hörpu
Bjarni Haukur Þórsson ætlar að setja upp einleik í Hörpu í sumar þar sem hann sýnir Íslendinga í
sínu rétta ljósi. Sýningin er stíluð á erlenda ferðamenn en Íslendingar eru að sjálfsögðu velkom-
nir.
Bjarni Haukur Þórsson ætlar að færa útlendingum heim sanninn um Íslendinga á
60 mínútum í Hörpu í sumar. Ljósmynd/Hari
sýning húsgögn
Handverksmenn og hönnuðir
s ænsku hönnuðirnir og hús-gagnasmiðirnir Olle og Stephan opna sýningu á
verkum sínum í Sparki að Klapp-
arstíg 33 í dag, föstudag. Þeir hafa
starfað saman undanfarin ár og
njóta að sögn Sigríðar Sigurjóns-
dóttur hjá Sparki þeirrar sérstöðu
að smíða alla sína hluti sjálfir ólíkt
því sem flestir aðrir gera. „Það er
eitthvað heillandi og fagurt við
þessa hefðbundnu vinnuaðferð
sem skilar sér í verkum þeirra,“
segir Sigríður.
Olle og Stephan vinna að eigin
sögn út frá þeirri sýn að heimilið
eigi að vera friðsæll, hlýlegur og
notalegur staður. „Handverkið
hefur spilað æ mikilvægara hlut-
verk í verkefnum okkar og hönn-
unin snýst jafn mikið um að smíða
á vinnustofunni eins og að teikna á
blað. Við leitum innblásturs í hefð-
bundna trésmíðahefð og getum
ekki hugsað okkur lífið án verk-
stæðisins og því má líklega kalla
okkur handverksmenn ekki síður
en hönnuði.” -óhþ
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS CAFÉ/BAR, opið 17-23
VERTU FASTAGESTUR!
Ódýrara í bíó með aðgangskortum!
Sjá sýningartíma á BIOPARADIS.IS og MIDI.IS
SKÓLANEMAR: 25% afsláttur
gegn framvísun skírteinis!
NÝTT Í BÍÓ PARADÍS!
TYRANNOSAUR
****-The Guardian
****-Roger Ebert
SKEMMD EPLI
TYRANNOSAUR, APPLAUSE,
SVINALANGORNA, SUBMARINO
Í SAMVINNU VIÐ SÁÁ:
KVIKMYNDAHÁTÍÐIN
SKEMMD EPLI
24.-29. MAÍ
Olle og Stephan hanna og smíða eigin húsgögn.
568 8000 | borgarleikhus.is
Tengdó – HHHHH–JVJ. DV
Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið)
Fös 25/5 kl. 20:00 13.k Fös 1/6 kl. 20:00 aukas Mið 6/6 kl. 20:00 19.k
Þri 29/5 kl. 20:00 14.k Lau 2/6 kl. 20:00 17.k Fös 8/6 kl. 20:00 aukas
Mið 30/5 kl. 20:00 15.k Sun 3/6 kl. 20:00 18.k Lau 9/6 kl. 20:00 20.k
Fim 31/5 kl. 20:00 16.k Þri 5/6 kl. 20:00 aukas Sun 10/6 kl. 20:00 lokas
Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Hrífandi saga um þrá og eftirsjá
Rómeó og Júlía (Stóra svið )
Sun 3/6 kl. 20:00 Fös 8/6 kl. 20:00 Sun 10/6 kl. 20:00 aukas
Ógleymanleg uppfærsla Vesturports. Síðustu sýningar!
Tengdó (Litla sviðið)
Fös 25/5 kl. 20:00 Sun 3/6 kl. 20:00 Fös 8/6 kl. 20:00 lokas
Sönn saga. Í samstarfi við CommonNonsense. Síðustu sýningar!
Bastards - fjölskyldusaga (Stóra sviðið)
Fim 31/5 kl. 20:00 fors Fös 1/6 kl. 20:00 Lau 2/6 kl. 20:00
Í samstarfi við Vesturport ofl. Aðeins þessar sýningar á Listahátíð
Beðið eftir Godot (Litla sviðið)
Fös 1/6 kl. 20:00 Lau 2/6 kl. 20:00 Lau 9/6 kl. 20:00 lokas
Tímamótaverk í flutningi pörupilta
TRYGGÐU ÞÉR SÆTI!
4 sýningar á 11.900 kr.
með leikhúskorti
Allar kvöldsýningar
hefjast kl. 19.30
Les Misérables - Vesalingarnir (Stóra sviðið)
Fös 25/5 kl. 19:30 Fös 8/6 kl. 19:30 Lau 16/6 kl. 19:30
Lau 26/5 kl. 15:00 Lau 9/6 kl. 19:30 Fim 21/6 kl. 19:30
Fös 1/6 kl. 19:30 Sun 10/6 kl. 19:30 Fös 22/6 kl. 19:30
Lau 2/6 kl. 19:30 Fös 15/6 kl. 19:30 Lau 23/6 kl. 19:30 Síð. sýn.
Fimm stjörnu stórsýning! Síðasta sýning 23. júní.
Dagleiðin langa (Kassinn)
Sun 3/6 kl. 19:30 Fim 7/6 kl. 19:30 Lau 16/6 kl. 19:30 Allra
síð.sýn.
Mið 6/6 kl. 19:30 Mið 13/6 kl. 19:30 Aukasýn.
Eitt magnaðasta fjölskyldudrama 20. aldarinnar. Síðustu sýningar.
Afmælisveislan (Kassinn)
Fös 25/5 kl. 19:30 13.sýn Fim 31/5 kl. 19:30 16.sýn Lau 1/9 kl. 19:30
Lau 26/5 kl. 19:30 14.sýn Fös 1/6 kl. 19:30 Sun 2/9 kl. 19:30
Mið 30/5 kl. 19:30 15.sýn Lau 2/6 kl. 19:30
Eitt vinsælasta verk Pinters. Sýningar í september komnar í sölu.
Gamli maðurinn og hafið (Kúlan)
Lau 26/5 kl. 17:00 Frums. Lau 9/6 kl. 19:30 Fim 14/6 kl. 19:30
Fös 8/6 kl. 19:30 Sun 10/6 kl. 19:30 Fös 15/6 kl. 19:30
Brúðusýning fyrir fullorðna eftir Bernd Ogrodnik. Listahátíð 2012
Pétur Gautur (Stóra sviðið)
Mið 30/5 kl. 19:30
Gestasýning frá Sviss í leikstjórn Þorleifs Arnarssonar. Listahátíð 2012
Glymskrattinn (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fös 25/5 kl. 22:30 Lau 2/6 kl. 22:30
Fös 1/6 kl. 22:30 Sun 3/6 kl. 16:00
Danssýning eftir Melkorku Sigríði og Sigríði Soffíu Níelsdóttur. Listahátíð
tryggðu
þér sæti
67% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent okt.-des. 2011
64 menning Helgin 25.-27. maí 2012