Fréttatíminn - 25.05.2012, Side 74
Smur-ogSmáviðgerðir
BremSuSkipti
á 1.000 krónur!
Fram til 1. júní Skiptum við um BremSukloSSa
að Framan Fyrir aðeinS þúSund krónur.
tilBoðið gildir aF vinnu eF þú kaupir BremSuhluti hjá okkur.
dugguvogi rvk auSturvegi SelFoSS
pitStop.iS www
helluhrauni hFjrauðhellu hFj
568 2020 Sími
Samhjálp Nytjamarkaður
Stjörnur breiða út
boðskapinn
Björk valin flytj-
andi ársins
Hin árlegu Webby-verðlaun voru haldin
í vikunni með pompi og prakt þar sem
okkar íslenska Björk tók við verðlaunum
sem flytjandi ársins – fyrir plötu sína
Biophilia. Að vanda vakti hún mikla athygli
með klæðarburði sínum; klædd kjól frá
Iris Van Herpen, brúnum skóm í stíl og
skartaði bláu mikilfengnu hári. Þegar
komið á svið var komið þakkaði hún fyrir
sig með óvenjulegum hætti, sagði aðeins
þessa fimm stafi: A, E, I, O, U og hneigði
sig svo
.Kardashian-systur
selja föt á eBay
Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian
og systir hennar Kourtney hafa ákveðið
að selja flíkur sínar, það er þeim sem
aðeins safna ryki í fataskápnum, á upp-
boðsvefnum eBay. Um er að ræða dýrar
hátískuvörur í bland við ódýrari fatnað,
sem þær hafa sjaldan sem aldrei notað.
Þær systur hafa mjög ólíkan fatasmekk;
Kim á meira af glamúrfötum á meðan
Kourtney sækir meira í þægilegri klæðnað
og verður þetta því fjölbreytilegur
fatamarkaður sem ætti að höfða til sem
flestra. Uppboðið, sem hefst í byrjun
næsta mánaðar, má finna undir nafninu
Kardashian's Closet á söluvefnum eBay.
S tjörnur á boð við Ásdísi Rán Gunnarsdóttur hafa tekið að sér að auglýsa húsgagna-
markað Samhjálpar í Skeifunni. Á
fésbókarsíðu Ásdísar Ránar mátti
sjá skilaboð þess efnis að allir
ættu að drífa sig á markaðinn til að
styrkja gott málefni. „Kæru vinir,
vinsamlegast deilið þessu út um
allt. Samhjálp hefur áskotnast mikið
magn af húsgögnum og dóti sem nú
þarf að selja til að rýma húsnæðið
sem við fengum lánað. Þurfum að
vera búin að tæma þetta 10 júní eða
fyrr. Þetta er í kjallaranum á Elko
í Skeifunni, gengið niður rampinn
hægra megin á húsinu þegar keyrt
er að því. Þarna er hægt að gera hin
bestu kjarakaup. Þarna eru rúm,
sófar hillur, hillusamstæður, stólar
og margt fleira. Opið öll kvöld eitt-
hvað fram í júni frá klukkan 19-22.
Lokað verður um hvítasunnuhelg-
ina. Það hefur verið dræm aðsókn
þar sem við höfum ekki haft mik-
inn auglýsingapening. Gætuð þið
því vinsamlegast deilt sem víðast og
beðið vini ykkar að deila þessu enn
víðar. Kærar þakkir. Allur ágóði
rennur til hjálparstarfsins,“ sagði í
skilaboðum Ásdísar Ránar.
Marta Hauksdóttir hjá Samhjálp
segir í samtali við Fréttatímann að
um sé að ræða húsgögn sem fólk
hafi gefið. „Það hringir og við sækj-
um endurgjaldslaust. Þetta höfum
við gert í þrjú ár og er mikilvæg fjár-
öflun fyrir kaffistofu okkar í Borg-
artúni,“ segir Marta.
Eins og fram kemur hjá Ásdísi
Rán þá er Samhjálp að missa hús-
næðið í Skeifunni og leitar sér að
nýju húsnæði undir húsgagnamark-
aðinn. „Við erum að leita að öðru
húsnæði sem við getum fengið lán-
að því við eigum engan pening. Við
fengum að vera í þessu húsnæði þar
til það var selt,“ segir Marta. -óhþ
Ásdís Rán tekur þátt í því að auglýsa
markað Samhjálpar. Ljósmynd/Arnold
Björnsson
Athafnamaðurinn Jón Ólafsson ásamt Geira og Sverri.
Bækur æviSaga athafNamaNNS
Sverrir skrifar ævisögu
Geira á Goldfinger
Sverrir Stormsker ætlar að skrifa ævisögu Ásgeirs Þórs Davíðssonar eða Geira á Goldfinger. Þeir voru perluvinir og gerir Sverrir
ráð fyrir því að hún komi út á næsta ári.
É g ætla að gera það,“ segir Sverrir Stormsker aðspurður hvort hann ætli að láta af því verða að skrifa
ævisögu góðvinar síns Ásgeirs Þórs
Davíðssonar, betur þekktur sem Geira á
Goldfinger, en hann lést 20. apríl síðast-
liðinn. „Ég er búinn að tala við nokkra úr
hans stórfjölskyldu og þeir eru bara alveg
hæstánægðir með þetta,“ segir Sverrir og
bætir við að hann og Geiri hafi oft talað
um að skrifa ævisögu þess síðarnefnda.
Og Sverrir segir af nógu af taka þegar
líf Geira er annars vegar. „Hann lifði mjög
fjölbreytilegu og skemmtilegu lífi enda
maðurinn sjálfur mjög fjölbreytilegur og
skemmtilegur. Hann lifði eins og hann var
og það gera ekki allir get ég sagt þér. Ég
held það þurfi verulega langt leiddan fem-
inista í bólstruðum klefa kynjafræðinnar
á Melakleppi til að ná að búa til drepleið-
inlega bók um þennan stórskemmtilega
“klámkóng.” Ég býst við að bókin verði
álíka frjálsleg að forminu til og
Geiri var andlega og líkamlega.
Sjálfur óx hann í allar áttir og
bókin mun eflaust gera það
líka. Þetta tekur sinn tíma og
ég er ekkert að rembast alveg
löðursveittur með útglennt
blóðhlaupin augun í tryllings-
legum taugaæsingi til að geta
nú alveg örugglega farið að
brimbrettast á jólabókaflóð-
bylgjunni. Það myndi ég
gera ef ég væri í gullgreftri
en ég er hinsvegar að gera
þetta af virðingu við minn-
ingu míns góða vinar með
gullfingurinn og gullhjart-
að.“
Sverrir óttast ekki að erfitt verði að finna
útgefanda að bókinni. „Þeir hafa talað við
mig nokkrir og það hefur ekki verið neitt
mál fyrir þá að finna mig, en ég er ekki
búinn að krota undir neitt,” segir Sverr-
ir sem býst við að einhverjir hópar sam-
félagsins muni lát a í
sér heyra við útkomu bókar- innar.
„Öfgafeministakellingar munu eflaust
reita hár sitt og skegg eins og venjulega,
kannski yfir því að bókarkápan skuli vera
blá á litinn, og fara fram á að kápan verði í
kynlausum litum og að Geiri verði helgrár
í framan á kápumyndinni, en ég held að
allt tiltölulega heilbrigt fólk í sæmilegu
jafnvægi muni hinsvegar skemmta sér
konunglega yfir lestrinum um „klámkóng-
inn“, ef það er þá ekki búið að banna alla
skemmtun yfir höfuð,“ segir Sverrir.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Öfgafemin-
istakell-
ingar munu
eflaust reita
hár sitt og
skegg eins
og venju-
lega...
Félagarnir Sverrir Stromsker og Geiri á
Goldfinger á góðri stund.
66 dægurmál Helgin 25.-27. maí 2012