Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.09.2012, Page 6

Fréttatíminn - 28.09.2012, Page 6
Niðurföll og rennur í baðherbergi EVIDRAIN Mikið úrval – margar stærðir COMPACT VERA 30cm 9.590,- AQUA 35cm 13.990,- Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Reykjavík Reykjanesbæ Akureyri - Húsavík Vestmannaeyjum PROLINE NOVA 60 cm 23.990,- Fundir og ráðstefnur Veislusalurinn er vel tækjum búinn og er því tilvalinn fyrir hvers kyns ráðstefnur og fundi, stóra sem smáa. Í salnum er meðal annars hágæða hljóðkerfi, skjávarpi, flettitafla og púlt. Starfsfólk okkar veitir þér ráðgjöf varðandi veitingar og annað sem huga þarf að. GLÆSILEGUR VEISLUSALUR! Náttúruparadís í hjarta borgarinnar www.nautholl.is www.facebook.com/nautholl nautholl@nautholl.is sími 599 6660 Nóatúni 4 · Sími 520 3000 www.sminor.is Tækifæri H x b x d: 186 x 60 x 65 sm 99.900 139.900 Kæli- og frystiskápar KG 36VNW20 (hvítur) KG 36VVI30 (stál) Tækifærisverð: kr. stgr. (hvítur) (Fullt verð: 129.900 kr.) Tækifærisverð: kr. stgr. (stál) (Fullt verð: 179.900 kr.) 67% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann* *konur 25 – 80 ára á höfuðborgarsvæðinu. Capacent okt.-des. 2011 Andri Már Kristinsson, framkvæmdastjóri Kansas, starf- aði um hríð í höfuðstöðvum Google í Evrópu. Ljósmynd/Hari  Ráðstefna séRfRæðingaR Ræða kRossmiðlun Google kynnir í Hörpu Fjórir sérfræðingar munu fjalla um aukið mikilvægi krossmiðlunar í markaðsmálum á ráðstefnu í Hörpu næstkomandi föstudag, 5. október. Krossmiðlun vísar til þess þegar sömu skilaboðin eru útfærð sérstaklega fyrir hvern miðil, allt frá dagblaðaauglýsingu til snjall- síma og ólíkir eiginleikar miðlanna þannig nýttir til að ná athygli. Fyrirlesararnir eru Magnús Hafliðason, rekstrarstjóri Domino’s, Gustav Radell, einn af æðstu yfirmönnum Go- ogle á Norðurlöndunum, Marin Harrison hjá Huge Inc og Alexander Kahn sem starfar fyrir SAS, Fiat og Easyjet. Bakhjarlar ráðstefnunnar eru Auglýsingastofan Fíton, vefstofan Skapalón, Auglýsingamiðlun, Miðstræti og Kansas sem allt eru fyrirtæki í Kaaberhúsinu. Nánari upplýsingar má finna á krossmidlun.is. é g man ekki hvort ég fékk tví-greitt, en það er líka orðið nokk-uð síðan þetta var,“ segir Lee C. Buchheit, fyrrum formaður íslensku samningarnefndarinnar um Icesave. Svarið barst í tölvupósti til Fréttatím- ans sem bar þá sögusögn undir hann. Sagt er að tvígreiddi reikningurinn hafi hljóðað upp á tugi milljóna og sé meðal þeirra sem ríkið hafi tvígreitt úr gölluðu bókhaldskerfi sínu. Fréttatím- inn bað hann að láta athuga bókhald sitt. Ef rétt reynist er ekki útilokað að aðrir hafi einnig fengið tvígreitt, en ekki verið eins heiðarlegir og Buch- heit. „Fólkið sem sér um það í kringum mig er mjög upptekið á þessum tíma árs svo ég veigra mér við því að biðja það um að fara yfir pappíra vegna verk- efna sem fyrir löngu er lokið,“ segir hann. Kastljósið hefur beint sjónum að óút- kominni skýrslu Ríkisendurskoðunar til Alþingis um úttekt og innleiðingu fjárhags- og mannauðskerfis ríkisins sem það keypti af Skýrr, nú Advania – skýrslu sem óskað var eftir fyrir átta árum. Gallar kerfisins séu margþættir. Sá stærsti líklegast að sá sami geti stofnað reikning, tekið á móti honum og greitt hann. Þótt margir þættir kerfisins hefðu ekki verið tilbúnir á réttum tíma eða í boði yfirhöfuð hafi embættismenn ritað undir verkloka- samning. Sagði Kastljós að það væri nokkurn veginn eina dagsetningin sem hafi haldist í samningnum. Valgerður Bjarnadóttir, fulltrúi Sam- fylkingar í fjárlaganefnd Alþingis, segir traustið milli ríkisendurskoð- anda og Alþingis brostið. „Við þurfum að láta ljúka skýrslunni og ríkisendur- skoðandi getur það ekki,“ segir hún. „Ég tel stöðu hans mjög erfiða,“ svarar hún því hvort einhver eigi að víkja vegna málsins. Lögfræðistofa Buchheits fékk 86 milljónir króna greiddar fyrir vinnu hans samkvæmt svörum fjármálaráð- herra á Alþingi. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is  Bókhaldsskandall skýRsla sem aldRei kom út eR svöRt Lee Buchheit man ekki hvort hann fékk tvígreiddan reikning Sagt er að aðal samningamaður ríkisins í Icesave-deilunni hafi fengið tvígreiddan reikning úr gölluðu bókhaldskerfi ríksins og að sjálfsögðu skilað fénu. Sjálfur segist hann ekki muna það og að starfsfólk hans sé of upptekið til að grúska eftir slíku. Kastljósið fullyrðir að fyrirtæki sem hafi fengið tví- greiddan reikning upp á hundruð þúsunda hafi ekki borgað ríkinu til baka. Eygló Harðardóttir, þingmaður Fram- sóknarflokksins, vill að skoðað verði hvort hægt sé að rifta undirritun verk- lokasamningsins og hugsanlega sækja 200 þúsund króna dagsektirnar vegna hlutanna sem dróst að innleiða: „Ríkið verður að fá þá vöru sem það keypti og er margbúið að borga fyrir.“ Einnig vill hún sjá bókhald ríkisins fínkembt og að endur- greiðslna verði krafist sé rétt sem fram hefur komið að reikningar hafi verið tvígreiddir og fénu ekki skilað aftur. „Mér skilst að þegar ríkið undirritaði verklokasamninginn hafi viðskipti Skýrr og ríkisins hætt að flokkast sem kaup á kerfinu og talist til rekstrar á hugbúnaðinum. Því sé ekki hægt að krefjast sekta. Hins vegar var kerfið ekki tilbúið og því greinilega mikil mistök að samþykkja að verkinu væri lokið.“ Ríkið fínkembi reikninga og sæki tvígreiðslurnar Lee Buchheit var formaður samninganefndar ríkisins í Icesave-deilunni. Sagt er að ofgreiðslur til hans hafi numið tugum milljóna. Hann skilaði fénu. Mynd/ 6 fréttir Helgin 28.-30. september 2012

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.