Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.09.2012, Blaðsíða 42

Fréttatíminn - 28.09.2012, Blaðsíða 42
42 heilsa Helgin 28.-30. september 2012  Heilsa NáttúrulækNiNgafélag ÍslaNds fræðir um óHollustu sykurs a ukin sykurneysla undanfar-inna áratuga er talin eiga sinn þátt í mörgum nútímasjúk- dómum sem hrjá okkur, líkt og segir á vef Náttúrulækningafélags Íslands, nlfi.is. Margar rannsóknir hafa sýnt fram á tengsl sykurs við offitu, sykur- sýki, ofvirkni og hjartasjúkdóma, líkt og þar kemur fram. Vísindamennirnir Lustig, Schmidt og Brindis gengu svo langt í frægri grein sinni „The toxic truth about sugar“ í tímaritinu Nature fyrr á þessu ári að krefjast þess að sykur verði meðhöndlaður á sama hátt og áfengi og tóbak vegna þess hversu mikið eitur hann sé, segir í greininni. Sykurbragðið sé merki um mat sem öruggt er að borða. Það sé engin nátt- úruleg matartegund sem er bæði sæt og eitruð og því erum við frá náttúr- unnar hendi sólgin í sykur. „Vanda- málið er hins vegar að sykurmagnið sem við innbyrðum í dag er langt um- fram það sem við getum innbyrt í nátt- úrulegri fæðu. Mikið af þeim sykri sem við innbyrðum er falinn. Hann leynist í stórum hluta þeirra mat- væla sem við kaupum og getur farið í yfir 60% af innihaldi vörunnar. Dæmi um vörur sem innihalda mikinn sykur eru ýmsar mjólkurvörur, brauð, sultur, sósur, kjöt sem er kryddlegið, morgunkorn, tómatsósa, fitusneyddar vörur þar sem sykur er oft notaður til að bæta upp bragðmissinn og fleira og fleira.“ Náttúrulækningafélagið heldur því fram að meðal Íslendingurinn inn- byrði um 1 kg. af sykri á viku, sem sé með því mesta sem þekkist í heim- inum. Meðal barna sé hlutfall sykurs í fæðunni jafnvel enn hærra en hjá fullorðnum. „Leikskólabörn neyti að meðaltali 54 gr. af sykri á dag, eða yfir 19 kg. af hreinum sykri á ári. Það er rúmlega meðalþyngd 4 ára drengja. Þetta er meðaltalið sem þýðir að mörg börn borða talsvert meira magn en þetta af sykri. Á myndinni má sjá fjög- urra ára barn með 1.620 gr af sykri fyrir framan sig, sem er það magn sem það innbyrðir að meðaltali á mán- uði. Þetta gríðarlega magn af sykri er einfaldlega meira en lifrin getur unnið úr,“ segir í greininni. Dr. Kimber Stanhope við Kaliforn- íuháskóla sýndi fram á í nýlegri rann- sókn að þegar lifrin fær meira magn af sykri og sætuefnum en hún getur unnið úr breyti hún sykrinum í fitu sem fer út í æðakerfið og myndar þar meðal annars kólesteról. Þetta kólest- eról sest í æðarnar og eykur líkurnar á hjartasjúkdómum. „Sykur er ávanabindandi og þó ekki sé hægt að kenna sykri um alla offitu og heilsuvandamál henni tengdri, þá er sykurinn einn aðalhvatinn í of- neyslu á mat“, segir í greininni. Þeim mun meira sem þú neytir af sykri, þeim mun meira kalli líkaminn á hann og þarf stöðugt stærri skammta til að fullnægja þörfinni. Þess vegna er mikilvægt að venja börn strax á sykur- litla fæðu til að forða þeim frá því að lenda í vítahring sykurfíknar, segir jafnframt. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is Sykur kallar á meiri sykur Náttúrulækningafélag Íslands hefur hrint af stað herferð á vef sínum, nlfi.is, í því skyni að fræða um óhollustu sykurs sem þar er sagður eiga sinn þátt í mörgum nútímasjúkdómum sem hrjá okkur. Sykur er einn aðalhvatinn í ofneyslu á mat
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.