Fréttatíminn - 28.09.2012, Blaðsíða 64
Niðurstaða:
Stundum gengur
allt upp í leikhúsi
og Rautt er þannig
sýning. Hún er nær
hnökralaus og Jóhann
Sigurðarson og Hilm-
ar Guðjónsson sem
sniðnir í hlutverkin.
Rautt
Höfundur: John Logan.
Leikstjórn: Kristín Jóhannesdóttir.
Þýðing: Guðrún Vilmundardóttir.
Leikmynd: Helga I. Stefánsdóttir.
Lýsing: Björn Bergsteinn Guð-
mundsson.
Hljóð: Thorbjørn Knudsen.
Leikarar: Jóhann Sigurðarson og
Hilmar Guðjónsson.
Jóhann Sigurðarson leikur Mark Rothko en Hilmar Guðjónsson leikur uppskáldaðan aðstoðarmann. Rothko svipti sig lífi 66
ára gamall.
FRumsýning Á sama tíma að ÁRi í BoRgaRleikhúsinu
Á sama tíma að ári – aftur
Í kvöld frumsýnir Borgarleikhúsið nýja
uppfærslu á leikritinu Á sama tíma að ári
sem hefur tvisvar áður slegið í gegn á Ís-
landi. Fyrst árið 1978 en þá léku Margrét
Guðmundsdóttir og Bessi Bjarnason þau
George og Doris sem hittast eitt febrúar-
kvöld á hóteli og eyða nótt saman. Tveim-
ur áratugum síðar léku Tinna Gunn-
laugsdóttir og Sigurður Sigurjónsson
parið sem þurfti ekki nema eina nótt til
að kveikja neistann. Þau hittast á hverju
ári, sagan endurtekur sig, ár eftir ár, og
í ár leika Guðjón „Gói“ Karlsson og Nína
Dögg Filippusdóttir turtildúfurnar. Á
þessum árvissu fundum finnum við fyrir
umróti sögunnar; kvenfrelsisbaráttunni,
hippatímanum, Víetnamstríðinu og því
hvernig viðhorf þeirra til lífsins breytast.
Verkið naut mikillar hylli á sínum tíma.
Það var frumflutt í New York árið 1975
og stuttu síðar var gerð vinsæl bíómynd.
Umfjöllunarefnið var strax eldfimt en parið
umrædda lifir sínu lífi alla hina daga árs-
ins, fyrir utan þessa einu nótt, og giftir sig
og eignast fjölskyldu. Verkið er því í raun
um framhjáhald og þykir sprenghlægilegt
á köflum.
Guðjón „Gói“ Karlsson og Nína Dögg Filippus-
dóttir leika turtildúfurnar að þessu sinni.
Alvöru listaverk í
Borgarleikhúsinu
Um síðustu helgi var frumsýnt í Borgarleikhúsinu leikritið Rautt eftir John Logan í leikstjórn
Kristínar Jóhannesdóttur. Jóhann Sigurðarson og Hilmar Guðjónsson fara með aðalhlutverkin í
þessari sýningu en í henni gengur allt upp.
leikdómuR Rautt
B orgarleikhúsið frumsýndi um síð-ustu helgi leikritið Rautt eftir hand-ritshöfundinn John Logan (fræg-
astur fyrir The Aviator, Gladiator og fleiri
Hollywood-handrit) í leikstjórn Kristínar
Jóhannesdóttur (enn eitt meistaralega vel
unna stykkið frá henni). Aðeins tveir leik-
arar eru á sviðinu, þeir Jóhann Sigurðar-
son og hinn ungi Hilmar Guðjónsson, sem
báðir standa sig með prýði.
Hjákátlegur og ofbeldisfullur
Leikritið fjallar um hinn fræga abstrakt-
expressjónista Mark Rothko (Jóhann Sig-
urðarson) sem var samtíðarmaður Jackson
Pollock og Willem de Kooning. Um er að
ræða skáldverk sem byggir að einhverju
leyti á sönnum atburðum. Í lok sjötta ára-
tugarins voru Rothko borgaðar svimandi
háar upphæðir til að mála málverk sem
áttu að prýða veitingastað Four Sesons
hótelsins á Manhattan. Honum er mikið
niðri fyrir, eins og fyrri daginn, og vægast
sagt skrúðmæltur um gildi listaverkanna
við uppdiktaðan aðstoðarmann (Hilmar
Guðjónsson). Þeirra samtöl eru listilega vel
skrifuð og í fyrri hluta verksins er Rothko
hjákátlegur, ofbeldisfullur og uppfullur af
háum hugmyndum um eigið ágæti.
Frábær leikur
Stundum gengur allt upp í leikhúsi og Rautt
er þannig sýning. Hún er nær hnökralaus
og Jóhann Sigurðarson og Hilmar Guð-
jónsson sem sniðnir í hlutverkin. Jóhann
bætti upp frumsýningartafs á texta með
Mikael
Torfason
mikaeltorfason@frettatiminn.is
stórbrotinni nærveru og Hilmar lét Jó-
hann aldrei drekkja sér í öllum sínum
mikilfengleik (sem er þó nokkuð afrek
fyrir ungan leikara). Þetta verk er enn
ein rósin í hnappagat Kristínar Jóhann-
esdóttur sem leikstýrir sýningunni af
ástríðufullri nærgætni (í alvörunni).
Leikmyndin hæfir verkinu, risamálverk
upp um alla veggi og terpentínuilmur í
salnum. Þýðingin rennur vel og tónlist-
in bæði skemmtileg og fléttast vel inn í
söguna og styrkir frábærar samræður á
milli persónanna.
Snilldarlega vel skrifað
Mark Rothko var erfiður og margbrot-
inn persónuleiki. Hann kom ungur til
Ameríku frá Rússlandi og var drykk-
felldur og uppreisnargjarn. Meðalgóður
málari sem fann sig í framvarðarsveit
abstrakt-expressjónistanna sem margir
hverjir lifðu öfgafullu lífi. Rothko hljóm-
ar í fyrstu sem hrokagikkur og leiðinda
karlskarfur en hægt og hægt fer manni
að þykja vænt um hann. Líf hans og list
endurspeglar lífið sjálft á mjög abstrakt
hátt og þetta skilja aðstandendur sýn-
ingarinnar (í lokin er maður farinn að
halda með Rothko).
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Á sama tíma að ári – frumsýnt í kvöld
Gulleyjan (Stóra sviðið)
Lau 29/9 kl. 14:00 6.k Lau 6/10 kl. 14:00 9.k Sun 14/10 kl. 14:00 12.k
Sun 30/9 kl. 16:00 7.k Sun 7/10 kl. 14:00 10.k Lau 20/10 kl. 14:00 13.k
Sun 30/9 kl. 19:00 8.k Lau 13/10 kl. 14:00 11.k Sun 21/10 kl. 14:00 14.k
Ævintýralegasta fjársjóðsleit allra tíma
Á sama tíma að ári (Stóra sviðið og Hof)
Fös 28/9 kl. 20:00 frums Sun 7/10 kl. 20:00 5.k Lau 20/10 kl. 22:00 aukas
Lau 29/9 kl. 20:00 2.k Fös 12/10 kl. 19:00 6.k Fim 1/11 kl. 20:00
Lau 6/10 kl. 19:00 3.k Lau 13/10 kl. 19:00 7.k Fös 2/11 kl. 20:00
Lau 6/10 kl. 22:00 4.k Lau 20/10 kl. 19:00 8.k Lau 10/11 kl. 19:00
Hjartnæmur og bráðfyndinn gamanleikur. Nóvembersýningar í Hofi
Rautt (Litla sviðið)
Fös 28/9 kl. 20:00 6.k Fim 4/10 kl. 20:00 10.k Fim 11/10 kl. 20:00 14.k
Lau 29/9 kl. 20:00 7.k Fös 5/10 kl. 20:00 11.k Fös 12/10 kl. 20:00 15.k
Sun 30/9 kl. 20:00 8.k Lau 6/10 kl. 20:00 12.k
Mið 3/10 kl. 20:00 9.k Sun 7/10 kl. 20:00 13.k
Margverðlaunað meistaraverk sem hreyfir við, spyr og afhjúpar
Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið)
Fös 28/9 kl. 20:00 10.k Fös 5/10 kl. 20:00 13.k Mið 10/10 kl. 20:00 17.k
Lau 29/9 kl. 20:00 11.k Lau 6/10 kl. 20:00 14.k Fim 11/10 kl. 20:00 18.k
Sun 30/9 kl. 20:00 12.k Sun 7/10 kl. 20:00 15.k
Fim 4/10 kl. 20:00 aukas Þri 9/10 kl. 20:00 16.k
Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Sýningum lýkur 11/10
Saga Þjóðar (Litla sviðið)
Fös 26/10 kl. 20:00 1.k Lau 10/11 kl. 20:00 6.k Lau 24/11 kl. 20:00 11.k
Lau 27/10 kl. 20:00 2.k Sun 11/11 kl. 20:00 7.k Fim 29/11 kl. 20:00 12.k
Fös 2/11 kl. 20:00 3.k Fös 16/11 kl. 20:00 8.k Fös 30/11 kl. 20:00 13.k
Lau 3/11 kl. 20:00 4.k Lau 17/11 kl. 20:00 9.k Fim 6/12 kl. 20:00 14.k
Fös 9/11 kl. 20:00 5.k Fös 23/11 kl. 20:00 10.k Fös 7/12 kl. 20:00 15.k
Íslandssagan á hundavaði í tónsjónleik með Hundi í óskilum.
Gói og baunagrasið (Litla sviðið)
Sun 7/10 kl. 13:00 1.k Sun 14/10 kl. 13:00 2.k Sun 21/10 kl. 13:00 3.k
Leikhústöfrar með Góa og Þresti fyrir börn á öllum aldri
Íslenski Dansflokkurinn: Októberuppfærsla (Stóra sviðinu)
Fös 5/10 kl. 20:00 frums Sun 14/10 kl. 20:00 Sun 18/11 kl. 20:00
Fim 11/10 kl. 20:00 Sun 21/10 kl. 20:00 Sun 25/11 kl. 20:00
It is not a metaphor, Cameron Colbert og Hel haldi sínu, Jérôme Delbey
TRYGGÐU ÞÉR SÆTI!
4 SÝNINGAR Á 11.900 KR.
MEÐ LEIKHÚSKORTI
Allar kvöldsýningar
hefjast kl. 19.30
Við sýnum tilfinningar
Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is
Við sýnum tilfinningar
Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is
Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið)
Sun 30/9 kl. 14:00 7.sýn Lau 20/10 kl. 17:00 aukas Sun 18/11 kl. 14:00 21.sýn
Sun 30/9 kl. 17:00 táknm Sun 21/10 kl. 14:00 13.sýn Sun 18/11 kl. 17:00 22.sýn
Sun 7/10 kl. 14:00 9.sýn Sun 21/10 kl. 17:00 14.sýn Sun 25/11 kl. 14:00
Sun 7/10 kl. 17:00 10.sýn Sun 28/10 kl. 14:00 15.sýn Sun 25/11 kl. 17:00
Lau 13/10 kl. 14:00 aukas Sun 28/10 kl. 17:00 16.sýn Sun 2/12 kl. 14:00
Lau 13/10 kl. 17:00 aukas Sun 4/11 kl. 14:00 17.sýn Sun 2/12 kl. 17:00
Sun 14/10 kl. 14:00 11. sýn Sun 4/11 kl. 17:00 18.sýn Sun 9/12 kl. 14:00
Sun 14/10 kl. 17:00 12.sýn Sun 11/11 kl. 14:00 19.sýn Sun 9/12 kl. 17:00
Lau 20/10 kl. 14:00 aukas Sun 11/11 kl. 17:00 20.sýn
Sýningar í desember komnar í sölu. Tryggið ykkur sæti því miðarnir fljúga út!
Með fulla vasa af grjóti (Stóra sviðið)
Fös 28/9 kl. 20:30 7.sýn Fös 5/10 kl. 20:30 10.sýn Sun 14/10 kl. 20:30 15.sýn
Lau 29/9 kl. 20:30 aukas Lau 6/10 kl. 20:30 12.sýn Lau 20/10 kl. 20:30 16.sýn
Sun 30/9 kl. 20:30 8.sýn Sun 7/10 kl. 20:30 13. sýn.
Fim 4/10 kl. 20:30 9.sýn Lau 13/10 kl. 20:30 14.sýn
Sýningin sem sló öll aðsóknarmet aftur á svið. Sýnd í september og október.
Tveggja þjónn (Stóra sviðið)
Fös 12/10 kl. 19:30 frums Fös 19/10 kl. 19:30 3.sýn Lau 27/10 kl. 19:30 5.sýn
Fim 18/10 kl. 19:30 2.sýn Fös 26/10 kl. 19:30 4.sýn
Óborganlega skemmtilegur nýr gamanleikur!
Gamli maðurinn og hafið (Kúlan)
Mið 7/11 kl. 19:30 Fim 8/11 kl. 19:30 Fim 15/11 kl. 19:30
Miðasala hafin. Aðeins þessar fjórar sýningar í nóvember.
FRUMSÝNING 20. OKTÓBER KL. 20
2. sýn: Föstudaginn 26. október
3. sýn: Laugardaginn 27. október
4. sýn: Sunnudaginn 4. nóvember
5. sýn: Laugardaginn 10. nóvember
6. sýn: Laugardaginn 17. nóvember
Miðasala í Hörpu og á www.harpa.is - sími 528 5050 - midasala@harpa.is
www.opera.is
64 leikhús Helgin 28.-30. september 2012