Fréttatíminn - 28.09.2012, Blaðsíða 48
Helgin 28.-30. september 201248 tíska
Höldum erlendum tísku-
áhrifum í skefjum
Í tvö ár hef ég haldið úti þessum tískusíðum hér í Frétta
tímanum og í hverri viku fæ ég einhvern til að útskýra
fyrir mér hvaðan innblástur er helst sóttur þegar kemur að
tísku og klæðavali. Svörin sem ég fæ eru eins ólík og þau
eru mörg, en öll tengjast þau hnattvæðingunni á einn eða
annan hátt.
Það er ótrúlegt hvað tæknin sem fylgdi hnattvæðingunni
hefur haft mikil áhrif á okkar daglega líf. Það má segja að
við séum orðin háð snjallsímunum okkar, samskiptavefjum
á borð við Twitter, Facebook og myndaforritinu Instagram
þar sem við erum flest í lífsgæðakapphlaupi við aðra neyt
endur. Við sköpum okkar eigin ímynd sem við viljum að
aðrir sjái af okkur með því að hlaða inn myndum, mynd
böndum, greinum og fleira sem öðrum gæti þótt spennandi.
Þannig sköpum við okkar eigin fullkomna heim.
Samhliða því að auglýsa okkur sjálf fylgjumst við svo
með öðrum, bæði í nálægð eða úr fjarlægð, gegnum ver
aldar vefinn og það má segja að helsti innblástur tískunnar
komi þaðan. Tískublogg og myndasíður eru einnig orðinn
stór hluti af því hvernig við klæðumst og er úrvalið af þeim
í þúsundatali. Íslensk tískublogg eru sem betur fer orðin
meira áberandi en á árum áður, sem er eitthvað sem ís
lenskt tískusamfélag þurfti mikið á að halda, því undan
farin ár hefur tíska skandinavískra tískubloggara tröllriðið
íslenskri tísku. Nú er tími fyrir okkar tísku að blómstra og
reyna halda erlendum áhrifum í boði hnattvæðingarinnar
í skefjum.
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
Stígur upp úr hverSdagSleikanum í SparidreSSið með Sömu flíkinni
Förðun breytir
heildarlúkkinu
Hversdagsdressið Sparidressið
Sara Björk Þorsteinsdóttir, 21 árs hjúkrunarfræðinemi í Háskóla Íslands, hefur lengið leitað sér að svörtum
kjól sem fer vel við öll tilefni. Draumakjólinn fann hún svo í Kaupmannahöfn á dögunum, í versluninni Urban
Outfitters, og hefur hún notað hann óspart síðan. „Það sem heillaði mig við kjólinn var opið bæði í hálsmálinu
og bakinu“ segir Sara. „Fyrst notaði ég hann eingöngu við sérstök tilefni, en eins og með svo margt annað þá
fannst mér tilgangslaust að láta svona fína flík hanga uppi á herðatré og fór að nota hann hversdagslega.
Það er auðvelt að breyta þessum fallega kjól í hversdagsdress og finnst mér bæði skór og jakkar spila mikið
inn í. Förðun finnst mér einnig skipta máli, enda ótrúlegt hvað einn varalitur gerir mikið fyrir mann.“
Adele snýr
sér að fata-
hönnun
Aðalhönnuður tískuhúss-
ins Burberry, Christpher
Bailey, hefur fengið
ófrísku söngkonunna
Adele í lið með sér og
saman munu þau hanna
fatalínu fyrir konur í
yfirstærð fyrir tískuhúsið.
Línan kemur á markað á
næsta ári. Adele hefur alla
tíð verið mikill aðdáandi
tískuhússins og ósjaldan
látið sjá sig í hönnun
þess á rauða dreglinum.
Aðdáun hennar á merkinu vaknaði þó áður en hún varð fræg og
viðurkenndi hún í nýlegu viðtali við tímaritið Vogue, að eitt sinn
sparaði hún í þrjú ár fyrir handtösku frá tískuhúsinu.
Tekur sér frí frá
fatahönnun
Rapparinn og fatahönnuðurinn
Kanye West, sem fyrst frum-
sýndi hátískufatalínuna sína á
tískuvikunni í París í fyrrahaust og
aftur í febrúar á þessu ári, ætlar
ekki að hanna aðra línu fyrir vor/
sumarið 2013. Þetta staðfesti Karla
Otto, talsmaður línunnar, við tísku-
tímaritið WWD á dögunum.
Þegar Kanye mætti á tískupall-
ana í fyrrahaust fékk hann mikla
og harða gagnrýni fyrir línuna og
hefur hann kannski ákveðið að
einbeita sér að tónlistinni. Ekki er
þó vitað hvort hann hefur gefist
upp fyrir fullt og allt með fata-
línuna sína eða hvort hann mætir
sterkur til leiks í febrúar með
haust/vetrartískuna fyrir árið 2013.
Með átta sólgleraugu í töskunni
Fyrrum raunveruleikastjarnan og nú fatahönnuðurinn Nicole Richie hefur lengi
verið þekkt fyrir að vera mikill sólgleraugnaaðdáandi og er hún mikill frumkvöðull
þegar kemur að setja ný trend. Það sýndi sig og sannaði þegar hún tæmdi hand-
tösku sína fyrir tískutímaritið Harper's Bazaar á dögunum, en upp úr töskunni
dró hún upp átta stykki af ólíkum sólgleraugum, flest frá línunni sinni House of
Harlow. „Ég gæti ekki lifað án sólgleraugna. Ég hef vanið mig á að hlaða upp
birgðum í töskuna, ef eitthvað kemur upp á,“ sagði Nicole í viðtali við tímaritið.
Ásamt öllum sólgleraugunum dró hún einnig upp tvo hárbursta, nýja ilmvatnið
frá House of Harlow, vítamín og veski frá Goyard.
Gina Tricot
Gs Skór
Urban
Outfitters
Urban Outfitters
Urban
Outfitters
Urban
Oufitters
Cheap
Monday
Spúútnik
Oroblu
Jeffrey Campbell