Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.09.2012, Blaðsíða 70

Fréttatíminn - 28.09.2012, Blaðsíða 70
Skuggalegt ástand Vinsældir bókmenntagreinar þeirrar er kennd er við „mömmuklám“ nýtur slíkra vinsælda á Íslandi og víðar um heim um þessar mundir að mörgum finnst nóg um. Bókin Fimmtíu gráir skuggar, eftir E L James, er einna mest áberandi í þessum kima um þessar mundir og rokselst hér sem annars staðar. Bókin telur einar 500 blautlegar blaðsíður með krassandi kynlífs- lýsingum sem virðast falla vel í kramið. Hinum hagyrta Hjálmari Jónssyni, dómkirkjupresti og fyrrverandi al- þingsmanni, varð þetta ástand innblástur fyrir vísukorn sem hann kastaði fram á Faceboook-síðu sinni: Haustið blæs um hlíð og nes, hrím er á sálarglugga og fósturlandsins freyja les 50 gráa skugga.  Hollywood AnnAr Íslendingur Í stórmynd stillers Gunni Helga í mynd Bens Stiller Leikarinn Gunnar Helgason fer með lítið hlutverk í Hollywoodkvikmyndinni The Secret Life of Walter Mitty sem Ben Stiller leikstýrir. Myndin er sem kunnugt er að stórum hluta tekin upp hér á landi. Gunnar var staddur í Svíþjóð þeg- ar Fréttatíminn náði tali af honum í vikunni, en þar var verið að frumsýna Hellisbúann í í leikstjórn hans. Gunn- ar vildi ekki tjá sig um hlutverk sitt í myndinni. Samkvæmt upplýsingum Frétta- tímans leikur Gunnar hóteleiganda í myndinni og leikur hann í senum með Stiller sjálfum. Mun hann hafa komið tökuliðinu á óvart með ökufærni sinni þegar hann keyrði Lödu sport-bifreið. Tökur á atriðum Gunnars fóru fram á Seyðisfirði. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum fer Ólafur Darri Ólafsson með hlutverk í The Secret Life of Walter Mitty. Ben Stiller birti mynd af honum við tökurnar á Twitter-síðu sinni í vikunni. Gunni Helga leikur hóteleiganda í The Secret Life of Walter Mitty. Höskuldur Daði Magnússon hdm@ frettatiminn.is  iðnHönnun nýtt Íslensk fyrirtæki HAnnAr leikföng Skar út heiðursorðu Bandaríkjaforseta P álmi Einarsson iðnhönnuður var fenginn til að framleiða heiðursorðu Bandaríkjaforseta sem leikmun í mynd Ben Stiller sem verið er að taka upp hér á landi um þessar mundir. Pálmi stofn- aði nýverið eigið hönnunarhús og fram- leiðir módelleikföng og gjafavöru undir nafninu Geisli. Auk þess sker hann út með svokölluðum geislaskurði eftir pöntunum og nýttu leik- myndahönnuðir myndar Stiller, The Secret Life of Walter Mitty, sér þekkingu hans og reynslu nú í vikunni. „Þeir birtust bara hér einn morguninn og báðu mig um að framleiða þessa orðu fyrir sig sem ég gerði,“ segir Pálmi. Hann fann myndir af orðunni á netinu, teiknaði upp og skar út í geislaskurðvél. Leik- myndahönnuðirnir luku sjálfir við frágang- inn og máluðu orðuna svo hún líktist fyrir- myndinni. Pálmi lærði iðnhönnun í Hollandi og hefur starfað hjá stoðtækjaframleiðandan- um Össuri frá árinu 1994, bæði hér á landi og í Kalíforníu, meðal annars sem þróunar- stjóri. Hann kom heim með fjölskylduna árið 2010 en Pálmi á eiginkonu og tvo syni, fjögurra og sex ára. „Draumurinn var alltaf að vera með eigin hönnunarstúdíó en hér á landi er takmarkaður iðnaður þannig að maður verður bara að framleiða eitthvað sjálfur,“ segir Pálmi. „Þetta hófst í raun allt með því að ég fann hve strákarnir mínir voru áhugasamir um leikföng sem ég smíð- aði handa þeim, í raun miklu áhugasamari en um leikföng sem voru úr plasti. Sjálfur byrjaði ég að saga út leikföng úr krossviði þegar ég var sex ára,“ segir hann. Hann sagaði því vörubíl út í krossvið sem hann límdi saman með hjálp drengj- anna sinna sem fengu síðan að mála hann. „Þeim fannst þetta stórkostlegt og tókum við ákvörðun í framhaldinu að koma á fót þessu hönnunarhúsi,“ segir Pálmi. Leikföngin eru skorin út í tré og sett saman eftir að heim er komið og máluð og skreytt að vild. „Börn eyða miklu meiri tíma í leikföng sem þau búa sjálf til enda eiga þau sjálf í þeim,“ segir Pálmi sem notar drengi sína óspart til að prufukeyra ný leikföng. „Leikföngin verða lifandi lista- verk sem börnin eru endalaust að bæta við. Drengirnir mínir voru að mála þyrluna sína í fjórða sinn nú á dögunum enda eru þetta leikföng sem má föndra við,“ segir hann. Geisli hannar einnig gjafavöru sem er framleidd á sama hátt og leikföngin, skorin út í þar til gerðri vél. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is Börn eyða miklu meiri tíma í leikföng sem þau búa sjálf til enda eiga þau sjálf í þeim. Pálmi Einarsson iðnhönnuður skar út eftirmynd af heiðursorðu Bandaríkjafor- seta sem notuð verður sem leikmunur í kvikmynd Ben Stiller. Hann framleiðir leikföng sem börn geta sjálf sett saman og málað. „Börn eyða miklu meiri tíma í leikföng sem þau búa sjálf til enda eiga þau sjálf í þeim,“ segir Pálmi Einarsson iðnhönnuður sem notar drengi sína óspart til að prufukeyra ný leikföng. Ljósmynd/Hari Segðu það með Hestasveinn Baltasars Nýjasta kvikmynd Baltasars Kormáks, Djúpið, hefur gengið vel frá frumsýningu og fólk hópast á hana í bíó. Myndin hefur fengið prýðilega dóma enda valin maður í hverju rúmi við gerð hennar. Hestar koma lítillega við sögu í einu atriði myndarinnar og Baltasar sparaði hvergi til þar frekar en annars staðar í framleiðslunni en samkvæmt kreditlista Djúpsins sá stór- leikarinn og félagi Baltasars í hestamennskunni, sjálfur Hilmir Snær Guðnason, um hrossin á tökustað. Gyðja verðlaunuð í Hollywood Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, stofnandi Gyðju Collection, heldur áfram að gera sig gildandi á bókamarkaði í Bandaríkjunum og á fimmtudagskvöld tók hún við Golden Quill-verðlaunum á hátíð metsöluhöfunda á Roosevelt-hótelinu í hjarta Hollywood. Sigrún Lilja skrifaði bókina The Success Secret ásamt Jack Canfield ásamt fleiri sérfræðingum úr viðskiptalífinu. Bókin kom út í Bandaríkjunum í ágúst og skaust strax ofarlega á þrjá metsölulista og fór í annað sæti hjá bóksöluris- anum Amazon.com. Sigrún Lilja hélt því til Los Angeles þar sem hún tók við verðlaunum fyrir þátt sinn í gerð bókarinnar. Með þessu er Sigrún Lilja orðin tvöfaldur metsöluhöfundur í Bandaríkjunum en fyrsta bók hennar The Next Big Thing sem kom út í fyrra varð einnig metsölubók og hún fékk sambærileg verðlaun fyrir hana á hátíðinni í fyrra. „Ég stefni að því að hafa reglulega gaman af þessu og njóta augnabliksins,“ sagði Sigrún Lilja fyrir afhendinguna. Hún hefur í nógu að snúast þar sem hún er að undirbúa nýja vetrarlínu Gyðju og nýtt ilmvatn. Sigrún Lilja tók við verðlaununum í sérgerðum kjól sem hún hannaði sjálf. Kjólameistarinn og klæðskerinn Sigrún Elsa Stefáns- dóttir saumaði kjólinn frá grunni. 70 dægurmál Helgin 28.-30. september 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.