Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.09.2012, Blaðsíða 31

Fréttatíminn - 28.09.2012, Blaðsíða 31
H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 12 -1 99 4 VIÐ KOMUM ÞVÍ TIL SKILA www.postur.is Við getum séð um hvað sem er fyrir fyrirtæki. Allt frá gluggaumslögum yfir í stærri sendingar. Við getum sótt allan þann póst sem þú þarft að senda, ásamt því að koma með sendingar til þín. Við sérsníðum lausnir fyrir þitt fyrirtæki sem falla eins og flís að þínum rekstri. FYRIRTAK FYRIR FYRIRTÆKI! mínu allan tímann, en hann lét mig tala við Kjartan. Hann spurði: Hvað myndir þú segja við hann ef þú hittir hann núna. Ég lá á bekknum og grét. Tárin láku. Ég hafði ekki grátið Kjartan svo ég muni. Ég grét látlaust í klukkutíma. Svo sendi hann mig heim með heimaverkefni. Þau gerði ég og upplifði alls konar tilfinningar sem ég hefði eflaust átt að upplifa miklu fyrr. Þarna fór ég í gegnum sorgarferli; reiði en jafn- framt þakklæti fyrir tímann með honum. Eftir sat þakklæti fyrir að hafa átt hann að og tárin. Ég öðlað- ist hugarró.“ Guðný eignaðist síðar soninn Kjartan. „Þegar hann fæddist fannst mér hann líta út eins og Kjartan og ég fann að það var nafn- Hugsar til hans með söknuði „Þegar Kjartan dó meðtók maður það ekki strax. Núna þegar ég er orðin fullorðin og á fjölskyldu þá hugsa ég oft til baka og get ekki ímyndað mér hvaða áhrif þetta hafði á fjölskyldu hans,“ segir Ingibjörg Bene- diktsdóttir, fyrrum bekkjarfélagi Kjartans í grunnskólanum á Hólmavík. „Í minningunni er hann aðaltöffarinn; í leðurjakka. Hann var sá sem talaði við alla, átti samleið með öllum hópum. Ég hugsa til Kjartans með söknuði og er þakklát fyrir það hafa kynnst honum.“ Rúntuðu saman á dánardeginum „Ég hugsa oft til hans og minnist hans með hlýhug og um það hvernig lífið hefði getað orðið ef hann hefði ekki lent í þessu slysi. Ég á margar góðar minningar um hann. Hann var mjög góður vinur,“ segir Guðmundur Vignir Þórðarson, sem var árinu eldri og félagi Kjartans frá Hólmavík. „Fyrr um daginn höfðum við Kjartan verið á rúntinum, á bílnum sem hann lét lífið í um kvöldið. Við höfðum verið að keyra aðeins um, borða harðfisk og spjalla saman. Eftir slysið skoðaði ég bílinn og tók þá strax eftir tómum harðfiskpoka á milli sætanna. Þá áttaði ég mig fyrst á hversu stutt var á milli lífs og dauða.“ Sé hann fyrir mér í leðurjakkanum „Ég sé hann stundum fyrir mér í leðurjakkanum eða kuldagall- anum og alltaf skælbrosandi. Kjartan var sannur vinur vina sinna og það var alltaf líf og fjör í kringum hann,“ segir Berglind Maríusdóttir, sem var ári eldri en Kjartan. „Þessi yndislegi fjörkálfur var tekinn frá okkur alltof snemma og svona atburðir setja mark sitt á mann og minna mann á hversu lífið er hverfult. Það er ofboðslega erfitt að trúa að 19 ár séu liðin en minningin um hann Kjartan okkar lifir endalaust.“ Ekki séð fallegri augu „Hver man ekki eftir því þegar Kjartan og fjölskylda fluttu til Hólmavíkur? Fallegri augu höfðum við ekki séð! Við féllum bókstaflega í stafi,“ segir Guðrún Helga Ás- mundsdóttir, fyrrum bekkjar- systir Kjartans um komu hans frá Ísafirði, þá um átta ára. „Ég man að við vorum nokkur á leið á ball í Laugarhóli kvöldið sem Kjartan dó. Þvílíkt sjokk sem við fengum og ekki nokkur leið að stoppa tárin,“ segir hún. „Nú á ég sjálf 17 ára ungling og get ekki ímyndað mér skelfinguna sem fylgir því að missa barn. Ég hugsa mjög oft til Kjartans, hvernig hann væri í dag. Væri hann orðinn pabbi, hvað hann ynni við? Hann mun alltaf eiga sérstakan stað í hjarta mínu. Eitt er ég allavega viss um við værum enn góðir vinir enda ekki annað hægt þegar Kjartan, töffarinn mikli, átti í hlut.“ Ómetanlegt að hafa kvatt Kjartan „Kjartan var frábær strákur, skemmtilegur töffari og góður vinur. Ég var mikið inni á heimili fjölskyldunnar og kynntist honum því vel. Hann var mikill grínisti og gerði oft grín að því hvað ég var (og er) lágvaxin,“ segir Harpa Jóhannsdóttir, ein besta vinkona Guðnýjar systur Kjartans. „Ég gleymi aldrei þegar ég sá hann síðast. Ég var á leið til Akureyrar í skóla og hann kom við til að kveðja mig. Eftir á var það ómetanlegt að hafa faðmað og kvatt hann í síðasta sinn. Andlát hans hafði djúp- stæð áhrif á mig eins og aðra – ekki bara af því að besta vinkona mín missti bróður sinn, heldur missti ég líka góðan vin. Ég hugsa oft til Kjartans. Hann mun alltaf eiga sérstakan stað í hjarta mínu.“ ið sem ég vildi gefa honum,“ segir Guðný góðlátlega og við vinkon- urnar sem sitjum í minningaflóðinu á kaffihúsinu og ég spyr hvernig Kjartan væri í dag? Sneri sorginni í góða minningu „Ég leyfi mér ekkert að hugsa það. Það er ekki hægt. Ég get ekki verið að syrgja það sem aldrei varð. Ég leyfi mér að hugsa um að nú væri hann 36 ára gamall. Ég leyfi mér ekki að fara lengra. Það eykur á sorgina. Þá myndi ég einnig gráta brostnar vonir.“ En að vera hrein og bein, góð við sína og stökkva á tækifæri sem gef- ast er það sem bitur reynslan hefur kennt henni. Hún hefur einblínt á að snúa sorginni í góða minningu og hefur lofað sjálfri sér að fara vel með lífið og takmarka sig ekki af röngum ástæðum. Fjölskyldan öll er nánari og þau Kári, yngri bróðir hennar, eru nátengd þrátt fyrir níu ára aldursmun. Minningin um Kjartan lifir. „Þegar ég hitti fyrri vini hans og fólk sem ég hitti ekki oft nefnir það hann oft fyrst af öllu. Þeir sjá mig og minningin um Kjartan lifnar við,“ segir hún. „Kjartan verður alltaf hluti af mér. Ekkert í heim- inum fær því sem gerðist breytt. Ég býst ekki við því að vera minna sorgmædd eftir tíu ár yfir því að þetta hafi gerst. Það þýðir samt ekki að ég sé leið alla daga. En Kjartan bróðir minn á sér alltaf stað í hjarta mínu.“ Fjórtán og sextán á skólaballi á Ísafirði, þar sem systkinin bjuggu fyrstu árin. viðtal 31 Helgin 28.-30. september 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.