Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.09.2012, Blaðsíða 18

Fréttatíminn - 28.09.2012, Blaðsíða 18
J ó n s s o n & L e ’m a c k s • jl .i s • s Ía landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn Velkomin í Eignastýringu Landsbankans Eignastýring Landsbankans starfar með viðskiptavinum sínum að traustri uppbyggingu eignasafna. Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu, ábyrga ráðgjöf og upplýstar ákvarðanir. Verið velkomin í Eignastýringu. Vigdís Sif Hrafnkelsdóttir Ráðgjafi í Einkabankaþjónustu É g er orðin hundleið á að hlusta á fólk hlæja að kvenna-menningu og gefa í skyn að hún sé annars flokks. Flestir þekkja orðtök eins og „konur eru konum verstar“ eða „köld eru kvennaráð,“ og gera sér grein fyrir að í þeim felst ekki beint viska um vináttu og systralag kvenna. Kvennamenning hefur ekki þótt sérlega eftirsóknarverð, saumaklúbbar hafa löngum verið annálaðar kjaftamaskínur og meira að segja hvers- dagslegt kaffispjall nálægt eldhúsglugga hefur átt undir högg að sækja. Því ætla ég að skrifa nokkur orð til heiðurs sorapytti íslenskrar kvennamenningar: Barnaland.is. 75% femínistar Fyrirlitningin sem vefurinn Barnaland sætir er í raun stórmerki- leg. Orðið „barnalandskona“ hefur svo neikvæða merkingu að skammaryrði á borð við „kjaftakelling“ bliknar í samanburði. Svo djúpt ristir neikvætt álit á Barnalandi að fyrir nokkru sat ég námskeið uppi í Háskóla þar sem ónefndur prófessor ræddi deilur um grein sem hún hafði birt og til að lýsa á hversu lágu plani umræðurnar um greinina höfðu verið lauk hún frásögninni á orðunum: Og svo var þetta komið á Barnaland! Það er nátt- úrulega alger hryllingur þegar málefni eru tekin til umræðu á Barnalandi. Hvað í fjandanum hafa þessar ómerkilegu almúga- konur um samfélagið sitt að segja? Hvað vita þær eiginlega? Því er auðsvarað, ég er búin að lesa Barnaland í mörg ár og geri mér vel grein fyrir því hvað barnalandskonur vita. Þær vita allt. Blandskonur vita nákvæmlega hvern einasta hlut sem hægt er að spyrja að og ef það er nokkur vafi á einhverju atriði þá geta þær gefið upp símanúmer, veffang eða aðra heimild um málið. Barnalandskonur eru líffræðingar, þær eru kennarar, þær eru lögregluþjónar, þær eru skáld, fegurðardrottingar, þær eru með doktorspróf og þær eru mótorhjólatöffarar. Við þetta má bæta að nýleg, en óvísindaleg, könnun á Barnalandi sýndi líka að um 75% Barnlendinga eru femínistar. Sumar barnalandskonur eru ekki einu sinni konur, þær eru karlar. Karlar sem eru pabbar, þýðendur, blaðamenn og lög- fræðingar og hafa reglulega gaman af því samfélagi sem kvenna- menningin á Barnalandi hefur alið af sér. Þeir eru margir hverjir líka femínistar og taka þátt í umræðum af sama kappi og stall- systur þeirra. Samfélagið dæmir þær Barnalandskonur vita líka hvernig samfélagið dæmir þær og gera óspart grín að sjálfum sér fyrir það. Þær þykjast vera stað- alímyndin sem varpað er á þær og segjast ganga eingöngu í flí- speysum, kvennahlaupsbol, kvartleggings og í gervi crocs. Vita- skuld eru margar umræður á Barnalandi ómálefnalegar, enda eru margar umræður sem fara fram í lífinu mjög ómálefnalegar. Barnaland er samt ekki ómálefnalegra en kommentakerfi fjöl- miðlanna, þvert á móti, þar á fólk oft og tíðum mjög kurteisar og yfirvegaðar umræður um menn og málefni. Þar er femínistum ekki svo glatt sagt að halda kjafti eða að þeir þurfi bara að fá sér að ríða. Það kemur fyrir en það er ekki daglegt brauð eins og á öðrum síðum á netinu. Mér er minnistæð umræðan um konuna sem vorkenndi börn- unum sínum fyrir að fá brokkolíbuff að borða í skólanum sínum. Vissulega komst upp um þekkingarleysi konunnar á næringar- fræði og það hefði verið afskaplega auðvelt að segja að hún væri heimsk eða vitlaus. En þau voru ekki öll köld kvennaráðin sem hún fékk. Umræðurnar spunnust aðallega um hvað væri hollt og gott mataræði. Þekking þeirra sem vissu betur tók yfir. Um- ræðunnar var þörf og upplýsingarnar sem komu fram voru mikilvægar. Söfnun á Barnalandi Barnalandskonur söfnuðu tugum, ef ekki hundruðum þúsunda fyrir konuna sem gat ekki eignast börn og þurfti að eyða stórfé í tæknifrjóvganir og yfirvofandi ættleiðingarkostnað. Barna- landskonur kryfja pólitík, bækur og samfélagsmál á vettvangi þar sem fólk af öllum stigum þjóðfélagsins kemur saman. Barna- landskonur hafa stutt hverja aðra í námi og sumar þeirra hefðu aldrei gert það án stuðningsnetsins á Barnalandi. Þessar konur fara saman í gegnum skilnaði og dauðsföll, þær hjálpa sjálfum sér og öðrum konum út úr hræðilegum ofbeldissamböndum, undan kúgun og undan ömurð. Gerum ekki lítið úr því. Fjandsamleg umræða um samfélag barnalandskvenna er því í raun óskiljanleg. Ég hef aldrei séð neinar konur jafn góðar við aðrar (og oft ókunnugar) konur og barnalands- konur. Þær eru sannarlega konum bestar. 100 þúsund krónur kostaði slökkvistarf í Laugardal í Ísafjarðardjúpi hvern íbúa í Súðavík. Sinueldur brann á fjórtán hektara svæði og kostaði slökkvi- starf alls um 20 milljónir króna. Súðvíkingar bera kostnaðinn að lang- mestu leyti. Vikan í tölum 9 mörk hefur Aron Jóhannsson skorað í síðustu fjórum leikum AGF í dönsku úrvals- deildinni í fótbolta. Hann er markahæstur í deildinni með tíu mörk eftir tíu umferðir. Stórlið á borð við Ajax og Arsenal fylgjast með kappanum um þessar mundir. Varnarræða Barnalandskvenna V i ð h o r f h e l g u Þ ó r e y j a r j ó n S d ó t t u r helga Þórey jónsdóttir Könnun á Barnalandi sýndi að um 75% Barnlendinga eru femínistar. 4.875 vegabréf voru gefin út hér á landi í ágúst sem er tæplega tíu prósent fleiri en á sama tíma í fyrra. Gera það gott í slitastjórninni Steinunn Guðbjartsdóttir, lögmaður og formaður slitastjórnar Glitnis, hefur sam- tals fengið 313 milljónir frá 2009 og Páll Eiríksson, lögmaður og slitastjórnarmað- ur, 241 milljón. Í fyrra fengu þau samtals 180 milljónir en þau hafa fengið tæpar 100 milljónir á þessu ári. Vill taka rannsókn úr höndum ríkisendurskoðanda Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri- grænna, vill að rannsókn ríkisendurskoð- anda á kaupum á bókhaldskerfi ríkisins verði tekin úr höndum Sveins Arasonar ríkisendurskoðanda. Ætlar að kæra leka Ríkisendurskoðun ætlar að kæra til lög- reglu að leyniskýrsla frá stofnuninni hafi borist Kastljósi Ríkissjónvarpsins. Uppsagnir í Straumsvík Nálægt fimmtán manns verður sagt upp fyrir mánaðamót hjá Rio Tinto Alcan sem rekur álverið í Straumsvík. Alls verður fækkað um 27 stöðugildi. Kynntu sér tjón sauðfjárbænda Hópur frá almannavarnardeild ríkislög- reglustjóra var á ferð um Norðurland um síðustu helgi. Hann kynnti sér tjón sauðfjárbænda vegna óveðursins sem gekk yfir Norðurland 10. september síðastliðinn. Smokkar flokkaðir sem munaðarvara Smokkar eru flokkaðir sem munaðarvara og skattlagðir af ríkinu. Fóstureyðingum fer fjölgandi og rannsóknir sýna að allt að helmingur kvenna sem fer í fóstur- eyðingar notar engar getnaðarvarnir. Benedikt og Helgi hæfastir Benedikt Bogason og Helgi I. Jónsson hafa verið metnir hæfustu umsækjend- urnir um tvö embætti hæstaréttardómara sem auglýst voru laus til umsóknar í júlí. Fatlaðir velji sér aðstoðarfólk Ríkisstjórnin hefur afgreitt lagafrumvarp um að fatlaðir fái að velja sér aðstoðar- fólk við kosningar. Innanríkisráðherra býst við að það verði orðið að lögum áður en kosið verður um stjórnarskrártillögur 20. október. 1,5 milljarða hagnaður var á rekstri Haga frá mars fram í ágúst. Á sama tíma í fyrra var hagnaðurinn einn milljarður og árið 2010 var hann 470 milljónir króna. 84 ára var bandaríski söngvarinn Andy Williams þegar hann lést í vikunni. Hann hlaut óskarsverðlaun fyrir lagið Moon River í kvikmyndinni Breakfast at Tiffanys árið 1961. 30 milljóna afgangur var af rekstri Vinstri grænna á síðasta ári. 18 fréttir vikunnar Helgin 28.-30. september 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.