Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.09.2012, Blaðsíða 26

Fréttatíminn - 28.09.2012, Blaðsíða 26
GAS, ELDUR, VATN OG INNBROT STATTU KLÁR Á ÖRYGGI ÞÍNU. Við hjá Securitas höfum að bjóða forvarnir sem stórauka vernd þína gegn slysum af völdum gass, elds eða vatns og snarminnka hættuna á innbrotum. Skoðaðu úrval öryggislausna á securitas.is, hafðu samband við okkur í síma 580 7000 eða sendu okkur tölvupóst í securitas@securitas.is og við göngum í málið. ÍS LE N SK A S IA .IS S E C 6 11 76 0 9. 20 12 HEIMAVÖRN É g byrja að taka næstu mynd eftir tvær og hálfa viku,“ seg- ir Sólveig sem gaf sér þó tíma til þess að skreppa til Íslands til þess að vera viðstödd frumsýningu Queen of Montreuil á RIFF. „Þetta er mynd sem byggir á myndasögu og ég ætla að taka hana í Frakklandi,“ segir Sólveig. Queen of Montreuil tengist hins vegar Íslandi á ýmsa vegu enda hálfgert fram- hald af myndinni Skrapp út sem Sólveig gerði á Íslandi fyrir nokkrum árum með skáldinu Diddu í aðalhlutverki. „Ég hafði ofboðslega gaman af því að gera Skrapp út og ég og meðhöfundur- inn minn, Jean-Luc Gaget, vildum gera aðra mynd sem væri einhvers konar framhald af Skrapp út. Við byrjuðum að skrifa handrit sem ég ætlaði að taka upp á Íslandi en eftir hrunið og allt sem því fylgdi fannst mér það kannski ekki alveg nógu góð hugmynd. Meðal annars vegna þess að það er fjöldi leikstjóra á Íslandi sem þarf að afla sér fjármagns á Íslandi. Þannig að við breyttum handritinu og ákváðum að gera þetta í Frakklandi í Montreuil-hverfinu þar sem ég bý.“ Íslensku senuþjófarnir Sólveig frumsýndi Queen of Montreuil á kvikmyndahátíðinni í París síðsumars þar sem hún fékk afar góðar viðtökur. Meðal annars í Hollywood Reporter þar sem myndin var ausin lofi og talað um Diddu og son hennar Úlf Ægisson sem senuþjófa myndarinnar. Þau leika mæðg- in í myndinni og endurtaka hlutverk sín úr Skrapp út. „Við ákváðum bara að fara með Diddu og Úlf til Montreuil. Í lok Skrapp út ákveða þau að fara til Jamaíka og í Queen of Montreuil sitja þau föst í París, á leið- inni heim, vegna þess að íslenska flug- félagið þeirra fer á hausinn. Þau eru samt ekki í aðalhlutverkum. Franska leik- konan Florence Loiret Caille leikur konu, Agathe, sem missir eiginmann sinn og kemur heim til Montreuil með öskuna hans. Hún á mjög erfitt með að komast yfir þennan missi og þessir furðulegu Íslendingar, Didda og Úlfur, fá að dvelja hjá henni og þau reyna á einhvern undar- legan hátt, með aðstoð sels, að hjálpa Agathe að jafna sig á dauða eiginmanns- ins. Þannig að það má segja að þetta sé kómedía um dauðann.“ Sólveig er nýkomin frá kvikmyndahá- tíðinni í Feneyjum þar sem hún sýndi myndina og rétt eins og í París var henni vel tekið þar. Ég er ánægð með þessa mynd vegna þess að hún virðist gleðja fólk og hreyfa við því. Þetta gleður mig og meðhöfund minn mjög enda eyddum við miklum tíma í að skrifa þessa mynd. Það er mjög gefandi að finna það á áhorf- endum að myndin nær til þeirra.“ Sólveigu þykir vænt um að Queen of Montreuil hefji Alþjóðlegu kvikmyndahá- tíðina í Reykjavík og ekki síður um að hún sé sýnd á Íslandi. „RIFF er orðin stór hátíð og fyrir mér er þetta mikill heiður. Mér er líka mjög mikilvægt að hún sé sýnd á Íslandi og hlakka mjög til þótt ég hafi auðvitað ekki hugmynd um hvernig íslenskir áhorfendur muni bregðast við henni. En myndin hefur á sinn hátt mikið að gera með Ísland. Tvær persónur og svo tengist selurinn, sem gegnir mikil- vægu hlutverki, Íslandi.“ Kvikmyndaleikstjór- inn Sólveig Anspach er íslenskur ríkis- borgari og segist bera sterkar taugar til Íslands þótt hún hafi ekki búið hérna. Hún hefur gert nokkrar kvikmyndir á Íslandi. Skáldkonan Didda hefur leikið fyrir hana í þrígang með góðum árangri og nýjasta sam- starfsverkefni þeirra, Queen of Montreuil, opnaði RIFF-kvik- myndahátíðina á fimmtudagskvöld. Sólveig greindist ekki alls fyrir löngu með krabbamein í annað sinn á ævinni og var veik þegar hún gerði Queen of Montreuil sem er gamanmynd um dauðann. Hún segist hafa það gott í dag, er með margar myndir á dagskránni, og lætur ekkert stöðva sig. Glímir við krabbamein og gerði kómedíu um dauðann Lífið er þannig að maður veit aldrei hvenær því lýkur og það getur gerst hratt þannig að maður verður að nota þann tíma sem maður hefur og ég er að flýta mér. Heimsborgari með íslenskar rætur Sólveig er fædd í Vestmannaeyjum í desember 1960, Hún er dóttir Högnu Sigurðardóttur arkitekts en faðir hennar er bandarískur, fæddur í Berlín og foreldrar hans rúmenskir og þýskir. Högna er fyrsti Íslendingurinn sem nam í Ecole des Beaux Arts í París en hún hóf nám þar árið 1949. Högna er jafnframt fyrsta konan sem hannaði byggingu á Íslandi og er í fremstu röð íslenskra arkitekta. Sólveig hefur ekki búið á Íslandi Sólveig Anspach hefur í hyggju að gera framhald af opnunarmynd RIFF, Queen of Montreuil, og er að velta fyrir sér hvernig hún getur fléttað Diddu vinkonu sína inn í söguna. Ljósmynd/Isabelle Razavet Framhald á næstu opnu 26 viðtal Helgin 28.-30. september 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.