Fréttatíminn - 28.09.2012, Side 32
Um þetta og margt fleira fjallar Ólafur Rastrick
sagnfræðingur í skýrslu um flug og sjálfsmynd sem
unnin var fyrir Icelandair Group um menningar- og
samfélagsleg áhrif greiðari flugsamgangna Íslendinga
við umheiminn. Þar er fjallað um þær breytingar sem
urðu á flugrekstri á Íslandi á árunum í kringum 1990
og varpað fram sjónarmiðum um þau menningarlegu
áhrif sem tengja má þróun samgöngunetsins og þau
áhrif sem bætt tengsl við umheiminn hafa haft á sjálfs-
mynd Íslendinga.
Bættar samgöngur vegna skiptistöðvarinnar
Í upphafi skýrslu Ólafs segir: „Í samtímanum mynda
flugsamgöngukerfi heimsins hnattrænt net (e. global
network) milli borga veraldarinnar. Ólíkt veraldarvefn-
um og öðrum fjarskiptakerfum flytur flugnetið fólkið
sjálft og varning milli staða og stuðlar þannig að bein-
um samskiptum milli fólks augliti til auglitis. Mjög er þó
misjafnt hvernig einstakar borgir eru tengdar við þetta
net; hvort borgin er fyrst og fremst endastöð þeirra sem
eiga erindi til hennar og frá eða skiptistöð farþega sem
eru á leið eitthvað annað. Eftir því sem borgin er minni
skiptir þessi munur meira máli fyrir það hversu vel eða
mikið borgin og bakland hennar er tengd við netið. Sem
skiptistöð getur flugvöllur við tiltölulega fámenna borg
staðið undir beinu flugi á fleiri áfangastaði og aukinni
tíðni flugferða heldur en heimamarkaðurinn einn og sér
gæti mögulega gert. Sem skiptistöð eiga heimamenn
þannig kost á mun betri samgöngum við borgir annars
staðar en ella væri kostur og í þeim skilningi mun
greiðari leið að veröldinni.“
Flest stærri flugfélög gera út frá slíkum skipti-
stöðvum. Frá og með árinu 1987 mótuðu Flugleiðir þá
stefnu að byggja upp Keflavíkurflugvöll.
Forstjóri félagsins lýsti því síðan árið 1991 að áætl-
anir félagsins væru þannig upp settar að flugvélarnar
mættust í Keflavík á tilsettum tíma. „Með þessu
eru félaginu kleift, að flytja farþega á milli nær allra
áfangastaða Evrópu og Bandaríkjanna,“ sagði hann.
„Með því að samhæfa komu- og brottfarartíma flugvéla
í Keflavík gat félagið laðað að sér farþega sem voru
á leið frá einum áfangastað í Bandaríkjunum til allra
áfangastaða félagsins í Evrópu og öfugt. Félagið hafði
langa reynslu af því að flytja farþega frá Luxemborg til
Bandaríkjanna en gat nú boðið upp á mun fjölbreyttari
samsetningu ferðaáætlana en áður. Með því að stækka
markaðssvæðið með árangursríkum hættum, svo að
hver leið gat staðið undir sér fjárhagslega, gat félagið
aukið ferðatíðni og fjölda áfangastaða mun meira en
ef félagið byggði afkomu sína eingöngu á tiltölulega
fámennum heimamarkaði.“
Ólafur vitnar til skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla
Íslands frá árinu 2004 um flug- og ferðaþjónustu á Ís-
www.noatun.is
H a m r a b o r g – N ó a t ú n 1 7 – H r i n g b r a u t – A u s t u r v e r – G r a f a r h o l t
F
erðaþjónusta er sú atvinnugrein
sem örast hefur vaxið hérlendis.
Fjöldi erlendra ferðamanna hér
á landi hefur sjöfaldast á liðnum
tveimur áratugum. Forsenda þess
er öflugt flugnet til og frá landinu. Það er hins
vegar síður en svo sjálfsagt að fámenn þjóð
sem býr langt frá nágrönnum sínum sé vel
tengd við öflugt alþjóðlegt samgöngukerfi, að
Íslendingar hafi eins greiðan aðgang að um-
heiminum og raun ber vitni. Nú er það svo að
einstaklingur í Reykjavík, á hvaða degi ársins
sem er, getur daginn eftir verið kominn til
hvaða annarrar borgar á jarðarkringlunni sem
er, að því gefnu að ákvörðunarstaðurinn sé
jafn vel tengdur hinu hnattræna samgönguneti
og Reykjavík.
Breytt sjálfsvitund þjóðarinnar
Leiðakerfið, með tengiflugi um Keflavíkur-
flugvöll er ekki náttúrufyrirbrigði heldur við-
skiptahugmynd sem hrint var í framkvæmd
með verulegum tilkostnaði og tók langan tíma
að koma á legg. Þessi viðskiptahugmynd er
hins vegar merkileg fyrir þær sakir að hún
breytti Íslandi. Hún lagði grunn að langtum
meira flugi til og frá Íslandi en heimamarkað-
urinn stóð undir. Þetta mikla flug, og mark-
aðsstarfið fyrir það, er undirstaða þeirrar
ferðaþjónustu sem við þekkjum í dag. Áður en
það kom til komu árlega til landsins undir 100
þúsund ferðamenn á ári, nú eru þeir um 700
þúsund. Það er mikil breyting á 20 árum.
Breytingin er ekki aðeins efnahagsleg, með
auknum gjaldeyristekjum og fjölda starfa.
Vitneskjan um að Ísland sé álitinn spennandi
og merkilegur staður hefur breytt sjálfsvit-
und þjóðarinnar, breytt afstöðu fólks, fyrir-
tækja og stofnana um allt land til þess hver við
erum. Alls staðar er lögð áhersla á aðlaðandi
umhverfi, vingjarnlegt viðmót, að leita að sér-
stöðu og áhugaverðri sögu að segja gestum.
Áhrifin ná ekki aðeins til okkar sem þjóðar
heldur einnig nærumhverfis um land allt.
Sveitarstjórnir og íbúar þéttbýlisstaða hring-
inn í kringum landið leggja áherslu á sögu og
sérkenni og taka stoltir á móti gestum í því
ljósi. Franskir dagar eru á Stöðvarfirði, dansk-
ir í Stykkishólmi, galdrasetur á Hólmavík,
stríðsárasetur í Hvalfirði og svo mætti lengi
telja. Vegna þessarar viðskiptahugmyndar
er Ísland mun skemmtilegra land að búa á en
áður.
Viðskiptahugmynd
breytti sjálfsmynd Íslendinga
Leiðakerfið, með
tengiflugi um
Keflavíkurflugvöll,
er ekki náttúru-
fyrirbrigði heldur
viðskiptahug-
mynd sem hrint
var í framkvæmd
með verulegum
tilkostnaði. Þessi
viðskiptahug-
mynd er hins
vegar merkileg
fyrir þær sakir
að hún breytti
Íslandi. Hún lagði
grunn að langtum
meira flugi til
og frá Íslandi en
heimamarkað
urinn stóð undir
– og hún hefur
breytt sjálfsvitund
þjóðarinnar.
Áhugi erlendra
gesta hefur
fengið jákvæða
merkingu í hugum
Íslendinga um
sjálfa sig. Ólafur
Rastrick sagn-
fræðingur fjallar
í nýrri skýrslu
um breytingar
sem urðu við mót
níunda og tíunda
áratugarins
og áhrif þeirra
breytinga á sjálfs-
mynd Íslendinga.
„Á síðusta aldarfjórðungi hafa
samgöngur Íslands við umheim-
inn tekið stakkaskiptum. Kefla-
víkurflugvöllur hefur orðið að
fjölþjóðlegri miðstöð flugs milli
Evrópu og Norður-Ameríku.
Þessi uppbygging hefur tryggt
Íslendingum tíðar og hagkvæm-
ar ferðir til fjölda borga austan
hafs og vestan. Keflavíkurflug-
völlur er nú tengdur við alþjóð-
legt net flugvalla allra helstu
borga heims sem gerir farþegum
kleift að komast um víða veröld
á tiltölulega skömmum tíma,“
segir á baksíðu skýrslu Ólafs
Rastrick.
„Í skýrslunni er fjallað um
þær breytingar sem urðu í flug-
rekstri í lok níunda og í upphafi
tíunda áratugarins og um áhrif
þeirra breytinga á sjálfsmynd Ís-
lendinga. Spurt er á hvaða hátt
bættar samgöngur við útlönd
hafa breytt íslensku samfélagi
og hvernig skilningur Íslend-
inga á sjálfum sér hefur þróast.
Sjálfsmynd Íslendinga var langt
fram eftir tuttugustu öld mótuð
af þjóðerniskennd sem ræktuð
var í landfræðilegri einangrun.
Í samtímanum byggist sjálfs-
skilningur samfélagsins í ríkari
mæli en áður á því að flestir Ís-
lendingar hafa reynslu frá fyrstu
hendi af því að dvelja í útlöndum,
í frístundum, vegna vinnu eða
náms,“ segir enn fremur. Þar
kemur og fram að þorri Íslend-
inga á vini eða samstarfsaðila í
útlöndum eða tengjast fjölskyldu-
böndum út fyrir landsteinana.
Fjöldi þeirra sem búa á Íslandi en
eiga ættir að rekja til útlanda hef-
ur margfaldast á síðustu tveimur
áratugum og sömuleiðis fjöldi
ferðamanna sem leggur leið sína
til Íslands. Tilkoma og tilvist
samgöngunetsins við útlönd er
grunnþáttur í þessari þróun sem
hefur haft margslungin áhrif í
íslensku samfélagi, þar á meðal
á menningu og sjálfsmynd Ís-
lendinga.
Ólafur Rastrick er doktor í
sagnfræði og rannsóknastöð-
ustyrkþegi við Sagnfræðistofn-
un Háskóla Íslands. Skrif Ólafs
eru einkum á sviði íslenskrar
menningarsögu nítjándu og
tuttugustu aldar og hefur hann
birt fjölda greina og bókarkafla
á því sviði.
Forsenda aukins fjölda erlendra ferðamanna á
Íslandi er tilkoma og tilvist leiðanetsins um
Keflavíkurflugvöll. Frá og með árinu 1987
mótuðu Flugleiðir þá stefnu að byggja upp
völlinn. Forstjóri félagsins lýsti því árið 1991
að áætlanir félagsins væru þannig upp settar
að flugvélarnar mættust í Keflavík á tilsettum tíma.
Með því væri félaginu kleift að flytja farþega á milli nær allra
áfangastaða Evrópu og Bandaríkjanna.
Flug og sjálfsmynd
Ólafur Rastrick, doktor í sagnfræði. Mynd Hari
Framhald á næstu opnu
32 úttekt Helgin 28.30. september 2012