Fréttatíminn - 28.09.2012, Page 45
heilsa Bandarískur læknir um hveiti
heilsa 45Helgin 28.-30. september 2012
Nýtt
ENGIFER
Í 1 lítra af Floridana Engifer er safi úr
150 g af fersku engifer
eða um 20 cm af engiferrót
Nýr og öflugur safi með eplum, vínberjum, gylltu kiwi,
lime og engifer hefur bæst í hóp Floridana safa. Bragðið
er kröftugt og hressandi og hefur frískandi áhrif. Engifer
hefur verið notað sem lækningarjurt í þúsundir ára og
inniheldur meðal annars kalíum, magnesíum, kalk,
zink, fosfór og C-vítamín og andoxunarefni.
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Áhrifaríkt gegn kvefi
Bæta meltingu
Hafa forvarnarmátt
gegn krabbameini
Engifer er talið:
n útíma hveiti er „fullkomið, krónískt eitur“, að sögn bandarísks hjartalækn-is, dr. William Davis, sem hefur gefið
út bók um þessa vinsælustu korntegund heims,
Wheat Belly, eða hveitibumba.
Davis segir að hveitið sem ræktað er í dag sé
ekki hið sama og það sem ömmur og afar okkar
gæddu sér á. „Hveitið sem ræktað er í dag er
afsprengi erfðarannsókna sem gerðar voru á
fimmta og sjötta áratug síðustu aldar,“ segir
Davis. Ástæðan fyrir erfðabreytingu hveitisins
er fyrst og fremst sú að gera kornið auðræktan-
legra.
„Þetta nútíma hveiti hefur marga eiginleika
sem fólki er almennt ekki sagt frá, til að mynda
að í því er prótein sem nefnist glíadín, sem er
breytt frá því áður,“ segir hann.
Glíadín virkar eins og ópíum á heilann, að
sögn Davis. „Það binst ópíum viðtökum í heil-
anum og eykur matarlyst hjá flestu fólki á þann
hátt að við neytum 440 fleiri hitaeininga á dag,“
bendir hann á.
Davis færir rök fyrir því að glíadín geti orsak-
að hegðunarbreytingar í börnum með ADHD
og einhverfu og segir það geta aukið einkenni
hjá fólki með geðhvörf. Einnig geti það ýtt
undir maníu hjá „bipolar“ einstaklingum.
Hann segir að rekja megi þróun offitu í
Bandaríkjunum meðal annars til neyslu á
þessu nútíma hveiti og áhrifum glíadíns. Ekki
eingöngu þó, því einnig hafi aukin neysla maís-
sýróps með háu frúktósainnihaldi (e. high-fruc-
tose corn syrup) mikið að segja, sérstaklega
meðal ungra karla. En mynstrið er greinilegt,
að hans sögn.
Nútíma
hveiti er
„fullkomið,
krónískt
eitur.“
Nútíma hveiti hefur marga eiginleika sem fólki er almennt ekki sagt frá, til að
mynda að í því er prótein sem nefnist glíadín, sem er breytt frá því áður.
Eins og ópíum
fyrir heilann
Bandarískur læknir segir að með því að sneiða hjá hveiti dragi
úr hitaeininganeyslu um 400 á dag því prótínið glíadín, sem
finnst í nútíma hveiti, virki eins og ópíum á heilann og auki
matarlyst.
Hálft kíló á viku
Með því að minnka neyslu um 400 hitaeiningar á dag er hægt að léttast um hálft
kíló af fitu á viku, rúm tvö kíló á mánuði og um 25 kíló á einu ári, samkvæmt full-
yrðingum Davis. Í einu kílói af fitu eru um 7000 hitaeiningar.
KYNNING
Umsögn dómnefndar um Floridana
Andoxun: „Frábær andoxunarblanda
í umbúðum sem kemur innihaldi og
hlutverki skýrt á framfæri við neytend-
ur. Gott dæmi um drykk sem stendur
undir öllum sínum loforðum. Í honum
er að finna allt það sem er gott fyrir
sálartetrið og markar vörunni skýra
stöðu sem ekta andoxunardrykkur.
Floridana Andoxun skarar fram úr
hvað varðar uppruna innihaldsins og
byggir á sterkum og hollum grunni.“
Spennandi safar
sem virka
Floridana Engifer og Floridana Andox un
eru bragðgóðir ávaxtasafar sem Öl
gerðin Egill Skallagrímsson framleiðir
og dreifir. Floridana Andoxun kom á
markað í ágúst 2011 og í sumar kom
Floridana Engifer á markað. Báðir
þessir safar flokkast undir virkni safa í
Floridana línunni. Virknisafar innihalda
alltaf heilsubætandi hráefni sem hafa
einhverja holla virkni, samanber engi fer
og andoxunarríka ávexti.
„Við leggjum mikinn metnað í öfluga
vöruþróun og í dag er mikill fók us á
heilsuvörur almennt. Floridana And
ox un og Engifer falla algjörlega þar
undir,“ segir Guðni Þór Sigurjónsson,
matvælafræðingur og vöruþróunar-
stjóri hjá Ölgerðinni. Í hverja safategund
eru valin saman hráefni af kostgæfni
sem öll eru náttúruleg og hafa einhverja
ákveðna virkni. „Ef við horfum á löndin
í kringum okkur stöndum við mjög
framar lega hvað varðar vöruþróun
fyrir ávaxtasafa. Safamarkaðurinn er
spennandi markaður sem býður upp á
mikla vaxtarmöguleika. Um allan heim
eru fyrirtæki að horfa til frekari vöru
þróunar í heilsutengdum vörum og þá
ekki síst í ávaxtasöfum.“
Í febrúar 2012 fékk Floridana And oxun
gullverðlaun í alþjóðlegri drykkjar-
vörukeppni á vegum Foodbev.com
(The 2011 Foodbev.com Awards), sem
besti virkni drykkurinn (best functional
drink).
Foodbev er eitt þekktasta útgáfu-
fyrirtækið í matvæla og drykkjarvöru
geiranum og hefur haldið allar helstu
verðlaunahátíðir á þessu sviði um
ára bil. Um 100 tilnefningar bárust í
keppnina frá 22 löndum og heiðurinn
því mikill að vinna gullið.
„Eins og neytendur þekkja, þá er
mikið úrval af drykkjum sem líta út fyrir
að vera andoxunarsafar, en eru það í
raun alls ekki. Floridana Andoxun er
eini andoxunarsafinn á markaði sem til-
greinir magn andoxunarefna og stendur
þannig undir nafni. Dómnefndin ytra leit
ekki síst til þess þegar drykk urinn vann
gullverðlaunin. Samkeppnin var hörð
og margir drykkir tilnefndir. Það var því
mikil viðurkenning fyrir okkur að vinna
keppnina.“
„Það er í sjálfu sér ekki til nein
reglu gerð um ráðlagðan dagskammt
af andoxunarefnum“, segir Guðni, „en
samkvæmt bandarískum heimildum
er talað um að 500 mg sé það magn
sem fólk ætti að neyta daglega. Í 1 lítra
flösku af Floridana Andoxun eru 700 mg
af polýfenólum eða andoxunarefnum.
Í sumar bættist svo Floridana Engifer
safinn við safalínuna. „Floridana Engi
fer hefur hlotið frábærar viðtökur á
markaði,“ segir Guðni. „Safinn er ein-
staklega bragðgóður og í hverja 1 lítra
flösku notum við safa úr a.m.k. 150 g af
fersku engifer eða sem samsvarar um
20 cm af engiferrót. Þetta er kraft mikill
safi og það sem skiptir miklu máli er að
við notum ferskt engifer við framleiðslu
á safablöndunni. Við tökum eingöngu
safann, en notum ekki hratið. Kostir
engifers eru Íslendingum vel kunnir
og neytendur kunna greinilega vel að
meta þessa bragðgóðu og hollu nýjung í
safaflórunni.“
Aðspurður segir Guðni að ýmsar
spennandi nýjungar séu til skoðunar.
„Við erum alltaf að reyna að hugsa út
fyrir boxið og leita nýrra tækifæra, enda
er fyrirtækið leiðandi í vöruþróun á
drykkjarmarkaði í dag.“