Fréttatíminn - 28.09.2012, Page 66
„Við í Júpiters höfum hist svona
einu sinni til tvisvar á ári undan-
farið og spilað á hinum ýmsu
árum en það eru 20 ár síðan við
vorum hvað frægust og ríkust,“
segir Hörður Bragason einn af
forsprökkum Júpiters sem telja
11-14 manns (yfirleitt). Þau ætla
að leika fyrir dansi í Edrúhöll-
inni í Von, Efstaleiti 7, annað
kvöld. Húsið opnar klukkan 20
en Magga Stína byrjar að hita
upp klukkan 21 en ráðgert er að
Júpiters stigi á stokk klukkan 22.
„Við ætlum að athuga hvort
borgin þolir edrúball og kosturinn við þetta allt saman er að fólk
getur farið heim á miðnætti og sent barnapíurnar á fyllirí niðri
í bæ. Þannig að þetta er gráupplagt fyrir alla,“ útskýrir Hörður
hlæjandi og bætir því við að Engilbert nokkur Jensen muni
syngja með Júpiters annað kvöld.
Styrkt af Reykjavíkurborg og Tónlistarsjóði
Aðrir tónleikar Stórsveitar Reykjavíkur eftir
flutningana í Hörpu. Gestur sveitarinnar verður
sænski píanóleikarinn og tónskáldið Lars
Jansson en hann hefur verið í hópi fremstu
jazztónlistarmanna Svía undanfarna áratugi og
telst til þekktustu jazznafna Norðurlanda.
Jansson mun stýra sveitinni í heilli dagskrá
eigin verka, auk þess að leika á píanó.
Lars Jansson
Miðar á harpa.is og í miðasölu Hörpu
HARPA / Kaldalón
sunnudag. 1. sept kl. 14:00
Miðaverð kr. 2.500 / 2.000Styrkt af
Stórsveit
Reykjavíkur
Jazzstjarna frá Svíþjóð
í H
ör
pu
Jóhann Jóhannsson
hefur gefið út á geisladiski
tónlist sína úr kvikmynd-
inni Copenhagen Dreams.
Krakkarnir í Retro Stefson senda frá sér sína þriðju plötu á þriðjudaginn. Hér eru frá vinstri Logi, Gylfi, Sveinbjörn Hermi-
gervill, Þórður, Jón Ingvi og Þorbjörg fremst. Unnsteinn var veikur og Haraldur Ari er í leiklistarskóla í London. Ljósmynd/Hari
Engilbert Jensen
ásamt hljóm-
sveitinni Júpiters
á æfingu á mið-
vikudagskvöld.
Ball Júpiters og engilBert Jensen
Athuga hvort borgin þolir edrúball
útgáfa ný plata Jóhanns Jóhannssonar
Semur lög um stræti
Kaupmannahafnar
Tónlist Jóhanns Jóhannssonar við kvik-
myndina Copenhagen Dreams eftir Max
Kestner er komin út á geisladiski. Mynd-
in var sýnd á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð
í Reykjavík í fyrra.
Í kvikmyndinni er varpað ljósi á Kaup-
mannahöfn; byggingarnar, hraðbraut-
irnar, garðbekkina og fólkið í daglegu
amstri. Borgin sjálf er í aðalhlutverki en
fólkið er í aukahlutverki. Tónlist Jóhanns
leikur stórt hlutverk í að búa til hlýlega
heildarmynd af borginni en tónlistin
samanstendur af nítján stuttum tónverk-
um. Í fréttatilkynningu frá útgefanda
segir að platan sé ein svipmesta plata
Jóhanns frá upphafi.
12 Tónar gefa Copenhagen Dreams út
á Íslandi, en erlendis er það plötuútgáfa
sem Jóhann hefur stofnað sjálfur undir
nafninu NTOV. Flytjendur á plötunni,
auk Jóhanns, eru meðal annars Hildur
Guðnadóttir, Ólafur Björn Ólafsson, Una
Sveinbjarnardóttir og Hrafnkell Orri
Egilsson.
Tónlistarvefsíðan Pitcfork.com fjallaði
á dögunum um plötuna og fékk hún 7,5
í einkunn, en Jóhann hefur lengi verið
í miklu uppáhaldi hjá Pitchfork. Mynd-
band við eitt lag plötunnar var jafnframt
frumsýnt á vefsíðunni í síðustu viku.
Jóhann Jóhannsson er sem fyrr með
mörg járn í eldinum. Hann er meðal tón-
listarmanna sem endurvinna tónlist Phi-
lips Glass í tilefni af 75 ára afmæli hans,
en það var tónlistarmaðurinn Beck sem
valdi þátttakendur í því verkefni.
Ég er að
vinna
með 6-7
ára krökk-
um við að
perla, lita
og horfa á
leikrit og
svona.
gleði ÞorBJörg í retro stefson ánægð með nýJu lögin
Gott partí á þriðju plötunni
Þriðja plata Retro Stefson kemur út í næstu viku. Þorbjörg hljómborðsleikari hlakkar til að spila
nýju lögin á væntanlegum útgáfutónleikum. Hún horfir fram á bjarta tíma með hljómsveitinni
en hvílir sig aðeins á samvistum við strákana með því að vinna á frístundaheimili fyrir börn.
É g er rosalega ánægð með útkomuna. Þetta er búið að vera langt ferli og það verður gaman að fá plötuna í
hendurnar,“ segir Þorbjörg Roach Gunn-
arsdóttir, hljómborðsleikari Retro Stef-
son. Þriðja plata Retro Stefson kemur út á
þriðjudaginn, 2. október, og ber hún nafn
sveitarinnar.
Nýja platan var unnin með þeim Styrmi
Haukssyni og Sveinbirni Thorarensen sem
oftast kallar sig Hermigervil. Þegar hafa
tvö lög af plötunni farið í spilun í útvarpi,
Qween sem naut mikilla vinsælda í vor og
sumar, og Glow sem nýlega fór í umferð.
Síðasta plata Retro Stefson, Kimbabwe,
kom út fyrir tveimur árum og hefur sveitin
fylgt henni eftir með stífu tónleikahaldi all-
ar götur síðan. Meðlimir sveitarinnar voru
til að mynda búsettir í Berlín um sjö mán-
aða skeið en sveitin er einmitt á samningi
hjá Universal í Þýskalandi. „Það er búið að
vera brjálað að gera. Hljómsveitin er búin
að taka mestan part af lífi okkar allra síðan
þá,“ segir Þorbjörg.
Upptökur á plötunni fóru fram í nokkrum
lotum að sögn Þorbjargar. Þær fyrstu voru
í Sundlauginni í október í fyrra og síðan
hefur sveitin tekið upp í Orgelsmiðjunni,
Hljóðrita og í hljóðveri sem þau settu upp í
Austurstræti með Hermigervli. „Þetta var
allt öðruvísi en verið hefur hjá okkur, hinar
tvær plöturnar voru kláraðar á mjög stutt-
um tíma en nú var allt lengur í þróun,“ segir
Þorbjörg. „Það var mikið lagt upp úr hljóm-
heiminum, allt saman útpælt. Við fengum
mikla hjálp frá Sveinbirni og Styrmi.“
Unnsteinn Manuel semur flest lögin á
plötunni en Logi Pedro bróðir hans á eitt
og Þórður gítarleikari eitt. Þorbjörg segir
að lögin nú séu dálítið öðruvísi en á fyrri
plötunum, þó þau séu í anda sveitarinnar.
„Platan er kannski aðeins rólegri en samt
alveg gott partí.“
Retro Stefson er ein besta tónleikasveit
landsins og þó víðar væri leitað. Fæst lögin
af nýju plötunni hafa verið spiluð á tón-
leikum til þessa og því standa yfir stífar
æfingar fyrir útgáfutónleika. Uppselt er
á útgáfutónleikana í Iðnó föstudaginn 5.
október en aukatónleikar verða 6. október
klukkan 22 á sama stað. Þá verða einnig út-
gáfutónleikar á Hjálmakletti í Borgarnesi
11. október og á Græna hattinum á Akur-
eyri 12. október. Miðasala fer fram á Miði.
is.
Þorbjörg sér fram á bjarta tíma með
Retro Stefson. „Ég hef mjög gaman af þessu
og er ekkert að fara að hætta. Þetta er auð-
vitað dálítil vinna og mikil skuldbinding.
Þetta stangast náttúrlega stundum á við
annað félagslíf svo stundum er leiðinlegt
að geta ekki mætt í partí þegar við erum að
spila. En svo er auðvitað yfirleitt rosalega
gaman að spila svo það er allt í lagi,“ segir
Þorbjörg sem byrjaði nýverið að vinna á
frístundaheimili. „Mér finnst það geðveikt
skemmtilegt. Ég er að vinna með 6-7 ára
krökkum við að perla, lita og horfa á leikrit
og svona.“
Aðspurð segir Þorbjörg að ekkert tón-
leikahald erlendis sé enn skipulagt. Nóg
verði að gera hér heima nú þegar platan
kemur út. „Við erum svo peningalítil, platan
var svo dýr. Við verðum bara að vera dug-
leg að spila hérna á Íslandi og safna smá
pening. Svo förum við örugglega út á næsta
ári.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
66 tónlist Helgin 28.-30. september 2012