Fréttatíminn - 28.09.2012, Síða 68
68 dægurmál Helgin 28.-30. september 2012
Andrea Röfn er úr
mikilli fótboltafjöl-
skyldu og fylgist sjálf
vel með íþróttum.
Hún er fyrirsæta hjá
Eskimo og hefur unnið
mikið fyrir Nikita og
Kronkron. Ljósmynd/Hari
Í takt við tÍmann andrea röfn Jónasdóttir fyrirsæta
Kvenlegur töffari sem fylgist með fótbolta
Andrea Röfn Jónasdóttir er tvítug Vesturbæjarmær. Hún varð stúdent síðasta vor og starfar nú sem fyrirsæta auk þess
að blogga á Trendnet.is. Andrea er mikil áhugamanneskja um íþróttir og dreymir um að eignast hvítan Mini Cooper.
Staðalbúnaður
Stíllinn minn er frekar einfaldur en samt
töffaralegur. Ég held að það megi kalla
hann kvenlegan töffarastíl. Ég geng mikið
í strigaskóm og vel frekar buxur en pils.
Ég get samt alveg dottið í algeran stelpugír
með háum hælum og öllu. Hér heima kaupi
ég mikið föt af íslenskum hönnuðum sem
eru margir mjög skemmtilegir og svo í búð-
um eins og GK Reykjavík. Erlendis versla
ég bara í búðum sem mér finnst flottar,
sama hvað þær heita. Mér finnst skemmti-
legra að kaupa fáar fínar flíkur heldur en
margar sæmilegar.
Hugbúnaður
Þegar ég fer út að skemmta mér fer ég yfir-
leitt á Vegamót og b5 en svo er ég líka úr
Vesturbænum sem þýðir að ég fer stundum
á Prikið. Ég drekk ekki áfengi þannig að
ég panta mér yfirleitt óáfengan Mojito eða
vatn á barnum. Besta kaffið er á Kaffifélag-
inu á Skólavörðustíg en ég fer á Laundro-
mat Café ef ég ætla að setjast niður. Ég fer
sjaldan í bíó og einu sjónvarpsþættirnir
sem ég gef mér tíma til að fylgjast með eru
Modern Family og Suits. Annars horfi ég
eiginlega bara á íþróttir í sjónvarpinu enda
er annað óhjákvæmilegt því öll fjölskyldan
mín er viðriðin fótbolta og KR.
Vélbúnaður
Ég á Macbook tölvu og iPhone 4 og nota
hvort tveggja rosalega mikið. Svo á ég
Beats by Dre-heyrnartólin sem eru góð
þegar maður er að ferðast. Þau passa líka
ágætlega því ég er stundum kölluð Dre. Ég
á 1.450 vini á Facebook og nota Instagram
líka. Uppáhaldsöppin mín eru samt þau
sem bróðir minn hefur búið til. Svo fylgist
ég vel með á Twitter. Mér finnst gaman að
sjá hvað allir eru að segja um íþróttir. Já,
það leynist smá strákastelpa í mér! En ég
nota Twitter líka til að fylgjast með módel-
skrifstofum úti í heimi og fyrirsætum.
Aukabúnaður
Langbesti maturinn sem ég fæ hérna
heima er grillað kjöt á sumrin. Ef
við stelpurnar förum út að borða
er það yfirleitt á Tapasbarinn eða
Vegamót. Svo fáum við okkur oft
sushi líka. Ég fór á Grillmarkaðinn
þegar ég átti afmæli og væri alveg
til í að fara þangað oftar. Miðað við
hvað ég er mikið í kringum snyrti-
vörur þá hef ég voða lítinn áhuga á
þeim og mála mig lítið. Ég kaupi mér
þó stundum eitthvað fínt. Eitt af aðal-
áhugamálum mínum er tíska og ég pæli
mikið í henni. Svo finnst mér mjög gaman
að ferðast og ég hef gaman af dansi. Ég
spila stundum golf með fjölskyldunni en
eitt það skemmtilegasta sem ég geri er
að renna mér á snjóbretti. Sérstaklega ef
maður kemst í góðar brekkur. Ég ferðast
um á litlum silfurlituðum Polo en væri
alveg til í að eignast hvítan Mini Cooper.
Það er draumabíllinn, enda er ég með tvo
litla þannig á náttborðinu. Ég á nokkra
uppáhaldsstaði, til dæmis Vesturbæinn og
svo á fjölskyldan bústað í Kiðjabergi. Ég
er byrjuð að fara frekar þangað en út að
djamma. Það er allt svo ljúft við sveitina.
Kvikmyndamógúl-
arnir Ingvar Þórðarson og
Júlíus Kemp hjá Íslenska
kvikmyndafélaginu hafa
keypt kvikmyndaréttinn á
skáldsögunni Leikaranum
eftir Sólveigu Pálsdóttur.
Leikarinn kom út í vor
og fékk góðar viðtökur. Til
að mynda fékk hún fjórar
stjörnur hjá Páli Baldvin
Baldvinssyni hér í Frétta-
tímanum. Leikarinn er
fyrsta skáldsaga Sólveigar
sem er bæði leikari og
framhaldsskólakennari.
Júlíus og Ingvar hafa
verið stórtækir í framleiðslu
kvikmynda síðustu misseri.
Á dögunum var Frost frum-
sýnd en ekki er langt síðan
Reykjavík Whale Watching
Massacre og Astrópía voru
frumsýndar.
Hilmar tilnefndur til Hörpuverðlauna
Norrænu kvikmyndatónlistarverðlaunin, sem nú kallast
Hörpuverðlaunin, verða afhent í fjórða sinn 6. október
á veglegri athöfn í Hörpu. Verðlaunin sem hétu til
skamms tíma Norrænu kvikmyndatónlistarverðlaunin
voru fyrst afhent í Noregi 2009, síðan á Gautaborgarhá-
tíðinni 2010 og á kvikmyndahátíðinni í Kaupmanna-
höfn 2011. Sérstakar sýningar verða á hinum fimm
tilnefndu kvikmyndum Norðurlandanna dagana 5. og 6.
október auk þess sem gestum gefst kostur á að hlýða
á tónskáldin tilnefndu fjalla um verk sín og nálgun í
sérstökum pallborðsumræðum síðdegis laugardaginn 6.
október. Verðlaunin nema tíu þúsund evrum auk sérstaks
verðlaunagrips sem Ragnar Kjartansson hefur hannað. Það er Hilmar Örn Hilmarsson
sem er tilnefndur fyrir Íslands hönd að þessu sinni fyrir tónlist sína í kvikmyndinni
Andlit norðursins.
Hilmar Örn Hilmars-
son.
Tryggðu sér Leikarann
Júlíus Kemp, Sólveig Pálsdóttir og Ingvar Þórðarson fengu sér popp og kók til
að fagna því að þeir ætla að kvikmynda Leikarann.