Læknablaðið - 01.12.1948, Page 23
L Æ K X A B L A Ð IÐ
97
kveldi. Fyrstu 2 daga sjúk-
dómsins liafði hann þurran
hósta, en á 3. degi iióstaði hann
upj) ryðlituðum lirákum. Hann
fékk sulfatöflur i 2 sólarhringa,
en þoldi lyfið heldur illa og
var því vistaður á deildina til
penicillin meðferðar.
Við komu á deildina var
sjúkl. ekki þungt haldinn. Hiti
var 39,5, púls 94, öndun eðlileg.
í koki var mikill roði, tonsillur
voru stækkaðar, en hvorki sá-
ust skánir né tajjjjar. Smá eill-
ar 'fundust við anguli. Rann-
sókn á ltingum: Yfir öllu v.
lunga er létt deyfa. Öndun er
aðeins veikluð þeirn megin.
Innan við angulus scajjulae v.
megin og niður að basis heyr-
ist veikt hlásturshljóð. í regio
sujiraspinata og framan til í ax-
illu v. megin lieyrast bæði fín
og meðalgróf þutr slímhljóð.
Raddtitringur og raddhljómur
er aðeins aukinn v. megin.
Núningshljóð heyrast ekki.
Aðrar rannsóknir: Hb. %: 107.
R. blk.: 4,25 mill. Hv. blk.: 7260.
Smásjárrannsókn: Létt v.
hneigð. (Eosinof. 1%. Stafkj.
5%. Segmkj. 58%. Lymfoc.
31%. Monoc. 2%). Sökk: 50
mm. Þvag eðlilegt. Kuldaagglu-
tinin í blóði: 19/5. 1:160. 24/5:
1:5120. 29/5.: 1:2560. 12/6.:
1:640. 18/6: 1:100. Berklasýkl-
ar fundust ekki í liráka, ekki
var leitað að lungnabólgusýld-
um. Mantoux neikvæður. Rönt-
genrannsókn á lungum: 18/5.:
Smá skuggar sjást um mestall-
an v. lungnareit, frá viðbeini og
niður að basis. Þéttastir eru
skuggarnir um miðbik lungans
og niður með v. rönd bjart-
ans. Töluverður þroti sést í liil-
useitlum v. megin. H. lunga er
eðlilegt. R. diagn.: Infiltratio
pulm.sin. et lymfogland. sin.
26/5.: Rólgueinkenni sjást nú
ekki eins og við röntgenskoð-
un þ. 18/5. Lungnamyndin er
nánast eðlileg.
Sjúkl. fékk penicillin i vöðva,
50,000 ein. 6 sinnum á sólar-
hring i 5 daga, siðan 30,000
ein. 6 s. í 3 daga. Eftir að hann
kom á deildina var líðan góð;
hann lióstaði öðru hvoru ujojj
graftrar- og slímhrákum, en
hvorki sást blóð né ryðlitur á
þeim. Eftir viku var uppgangur
horfinn og hlustun eðlileg. Á 3.
degi frá komu tók hitinn að
falla og var eðlilegur þegar
sjúkl. hafði fengið jienicillin í
5 daga. Líðan var góð við brott-
för og he'fir verið það siðan.
Yfirlit: 17 ára gamall jnllur
fær lungnabólgu, hósta og upjj-
gang. Við hlustun á lungum
heyrast einkenni, sem benda á
bólgu i öðru lunga, en einkenn-
in eru lílil í samanburði við
þær breylingar sem sjást á
röntgenmynd. Fjöldi hvítra
blóðkorna er eðlilegur. Á 8.
degi sjúkdómsins eru kulda-
agglutinin í blóði greinilega
aukin, og aukast mikið næstu
daga. Erfitt er að segja um