Læknablaðið - 01.12.1948, Page 37
L .1- K X A B L A 1) I J)
111
fram á Alþingi. Ekki var mér
kunnugt um það, cn hitt veit
ég, að bæjarstjórn Reykjavíkur
samþykkti einróma áskorun til
Alþingis um að samþykkja
frumvarpið, cn í bæjarstjórn-
inni sitja fulltrúar úr öllum
stjórnmálaflokkunum. Þótt B.
J. sé á öðru máli, þá þykir
flestum það mæla frekar með
málefni en móti, ef stjórnmála-
flokkarnir geta sameinazt um
framgang þess. — Þá má og
geta þess, að Læknafél. Reykja-
vikur lýsti yfir fylgi sínu við
frumvarpið, eftir að hafa rætt
það á tveim fundum félagsins.
B. J. finnur að því, að ég
skuli ekki vera viðurkenndur
heilbrigðisfræðingur. Það skal
fúslega játað, að slíkt væri
æskilegt. En mér vitanlega,
hefur enginn starfandi læknir
hér á landi fengið slíka viður-
kenningu, og heilbrigðisstjórn-
in hefur ekki enn sett neinar
ákveðnar reglur fyrir veitingu
hennar. — A undanförnum
árum hafa stærri stöður
en mín er verið veittar
læknum, sem ekki liafa haft
sérfræðingsviðurkenningu í við-
eigandi sérgreinum, án þess
að B. J. eða aðrir hafi fundið að'
því opinberlega. I grein sinni
í Lbl. og á umræddum fundi í
L. R., sýnir B. J. því stöðuveit-
ingu minni alveg undraverðan
áhuga og viðkvæmni.
Eins og B. J. skýrir frá, var
frumvarpinu frestað. Ég hafði
þá beðið í næslum 2 ár, og að
miklu leyti óvirkur, eftir að
taka við hinu sjálfstæða heil-
hrigðiseftirlitsstarfi, sem ég
var ráðinn til að gegna. Frestnn
frumvarpsins byggðist á sam-
komulagi á milli heilbrigðis-
stjórnarinnar og bæjarvfirvalda
um, að ég annaðist fyrst um
sinn, og þangað til öðru vísi
yrði ákveðið, allt heilbrigðis-
eftirlit í bænum samkvæmt
heilbrigðissamþykkt í fullu um-
hoði héraðslæknis.
Mér voru veittir til aðstoð-
ar 3 heilbrigðiseftirlitsmenn (en
samtímis voru 2 heilbrigðislög-
regluþjónsstöður lagðar niður)
og skrifstofumaður, og 1. júní
s. 1. opnaði ég skrifstofu til að
taka við heilbrigðiseftirlitinu á
þeim grundvelli, sem um getur
í nefndu samkomulagi. Einmitt
þann sama dag fékk ég tilkynn-
ingu um, að héraðslæknir hafi
tekið aftur yfirlýsingu þá, sem
samkomulagið um frestun
frumvarpsins ljyggðist á. —
Fylgdi sú ein skýring tilkynn-
ingunni, að bæjarstjórn hefði
breytt stöðuheiti mínu úr heil-
brigðisfulltrúa í borgarlækni
(en bæjarstjórn hafði jafn-
framt falið mér að vera ráðu-
nautur hennar í heilbrigðismál-
um). Og við þetta situr enn.
Þá ávitar B. J. bæjarstjórn
Revkjavíkur fyrir að hafa ekki
beðið með nafnbreytinguna á
stöðunni. Ólæknisfróðir menn
hafa í nokkra áratugi setið í