Læknablaðið - 15.10.1952, Side 10
22
LÆKN ABLAÐIÐ
Arið 1948 fann Dalldorf við
slika tilraun nýtt virus í saur frá
2 sjúklingum, sem voru haldnir
poliomyelitis ant. acuta. Sjúkl-
ingarnir voru frá Coxsackie,
sem er smábær skammt frá
New York í Bandaríkjunuin. -
Þar sem annað nafn þótti ekki
hentugra á þeim tíma, var þetta
nýfundna virus kennt við bæinn
og kallað Coxsackie virus (C
virus). Þegar farið var að rann-
saka C virus nánar, kom brátt i
ljós, að um fleiri en eitl afbrigði
var að ræða. Hafa nú verið að-
greindir 2 flokkar af C virusi,
A og B, en til þessa hafa fundiz t
a.m.k. 10 virus stofnar í báðum
flokkum, og er bægt að greina
stofnana bvern frá öðrum með
immunbiologiskum aðferðum.
Einu tilraunadýrin, sem bægl
er að sýkja með C virus, eru
nýfæddar mýs og nýfæddir
hamstrar. Ef dýrin eru eldri cn
3 sólarbringa gömul, gengur
mjög illa að sýkja þau. Dýrin
eru sjTkt á þann hátt, að virusi
er dælt inn í lieila, í kviðarhoi
eða undir lnið. Meðgöngutíminn
fer eftir virnsmagninu, venju-
legast sýkjast dýrin innan 8 sól-
arhringa og deyja 1 til 3 dögum
síðar. Virus úr A flokki veldur
lömun á afturfótum dýranna,
en virus úr B flokki lömun á
afturfótum og krömpum . Við
vefjarannsókn sést, að flokk-
arnirvalda misjöfnum breyting-
um í líffærum dýranna. A flokk-
urinn veldur viðtækum breyt-
ingum í þverrákuðum vöðvum,
það er hrörnun, drep og bólga,
einkum i vöðvum al'turlima, en
einnig i þynd, bol- og kviðar-
vöðvum. B flokkurinn veldur
einnig breytingum í vöðvum, en
ekki alltaf. Þegar þær finnast,
eru þær í blettum, en ekki víð-
tækar, að öðru ley ti eru þær eins
og áðurnefndar breytingar. — -
Einnig finnast ákveðnar breyt-
mgar í heilavef dýranna . En
það, sem einkum einkennir B
flokkinn, er það, að hann veld-
ur breytingum í fituvefnum,
það er drep og kalkskellur, ef
dýrin lifa nógu lengi. Báðir
flokkarnir geta valdið breyting-
um i lifur og hjartavöðva.
Þegar leitað er að virusi í líf-
færum dýranna, þá finnst mest
af því í vöðvum. Hægast er að
einangra virus á þann bátt, að
hakka hræin í þar til gerðri vél,
og extrahera virus með fysio-
logisku saltvatni. Extractið er
skilið í skilvindu með hæl'ileg-
um hraða til þess að botnfella
allt grugg. Ilálsskolvatn frá
sjúklingum og extract úr saur
er skilið á sama hátt. Virus-
extractið er hægt að geyma
frosið árum saman, án þess að
virus veiklist. Einnig geymist
það vel í frystum músahræum.
Virusstofninn er hægt að á-
kvarða með tvennu móti, ann-
aðhvort með neutralisations-
prófi eða complement-bindingu.
Fyrrnefnda aðferðin er á-
reiðanlegri og handhægari og