Læknablaðið - 15.10.1952, Qupperneq 11
LÆKNABLAÐIÐ
23
því víðast notuð. Til þess að
hægt sé að gera neutralisations-
próf, verður að hafa specifik
immunsera gegn öllum þekkt-
um C virusstofnum. Fást þau
með því móti, að dæla virusi
inn i fullþroska dýr, t.d. mýs,
hamstra eða apa. Dýrin sýkjast
ekki, en í hlóði þeirra myndast
mótefni gegn þeim virusstofni,
sem dælt var í dýri'n, en öðrum
ekki. Blöndu af immunserum og
kvörðuðu (standardiseruðu)
virusextracti í tilteknum hlut-
föllum er dælt inn í kviðarhol
á nýfæddum músarungum og
gefur það immunserum, sem
verndar dýrin gegn sýkingu,
upplýsingar um virusstofninn í
extractinu.
C virus finnst fyrst og fremst
í saur og í hálsskolvatni frá
sjúklingum, en einnig hefir það
fundizt í heilbrigðu fólki, sem
hefir haft samvistir við sjúk-
linga. Hvort menn geta verið
virusberar í langan tíma, er eld<i
vitað með vissu ennþá. Það hef-
ir fundizt í skolpræsum og i
flugum.
Til þessa hefir C virus fund-
izt í eftirtöldum löndum: —
Bandaríkjunum, Canada, Al-
aska, Cuha, Danmörku, Svíþjóð,
Englandi, Sviss og Israel. Það
finnst tíðast seinni part sumars
og á haustin. Smitnæmi er jafnt
hjá konum og körlum, og virð-
ist mest hjá fólki undir tvílugs
aldri, þó menn geti sýkzt hve-
nær sem er á lífsleiðinni. Alitið
er að menn smitist bæði beint
frá manni til manns og óbeint af
hlutmn, vatni, mjólk og öðrurn
fæðutegundum. Meðgöngutím-
inn er 2—9 dagar, algengast er
að menn sýkist 3—5 dögum eft-
ir að þeir smitast.
Fysiskir og biologiskir eigin-
leikar C virus og pohomyelitis
virus eru að ýmsu leyti hkir,
en ekki að öllu leyti. T.d. er
hitaþol C virus meira. Smit-
næmi dýra er frábrugðið og
einnig ræktunareiginleikar. C
virus sýkir ekki önnur dýr en ný
fæddar mýs og hamstra. Polio-
myelitis virus sýkir ekki önnur
dýr en rhesus apa, þegar Lans-
ing stofninn er undanskilinn, en
meðhonum má sýkja fullorðnar
mýs. C virus er hægt að rækta
í frjógvuðum hænsnaeggjum, i
kjúldingafóstrum og í gulu-
poka vef, en poliomyelitis virus
ekki. A mönnum valda þessar
sóttkveikjur ákveðnum, og
venjulega mjög ólíkum sjúk-
dómum, en þó geta þær, eins og
síðar verður minnzt á, valdið
sjúkdómsmyndum, sem ekki er
hægt að greina hvora frá annari
með almennri kliniskri rann-
sókn. Báðar valda þær mótefna-
myndun í blóði sjúklingsins.
Mótefni gegn C virus finnast
nokkrum dögum eftir sýkingu
og ná hámarki 2—3 vikum eftir
að sjúkdómseinkenni byrja. I
mannsblóði hafa þau fundizt <S
mánuðum eftir sýkingu. Lengii
athugunartimi er ekki kunnur.