Bændablaðið - 08.05.2013, Side 36
36 Bændablaðið | Miðvikudagur 8. maí 2013
Fróðleiksbásinn
Vilmundur Hansen garðyrkjufræðingur
Íslendingar þekkja bambus aðal-
lega sem byggingarefni í hús gögn
og sem forvitnilega viðbót í austur-
lenskri matargerð. En bambusrækt
á sér langa sögu í Austurlöndum og
segja má að þar sé hann ómissandi
hluti af daglegu lífi fólks.
Í Austurlöndum fjær er bambus ein
helsta nytjajurtin ásamt hrísgrjónum.
Bambus er grastegund eins og hrísgrjón,
hveiti, húsapuntur og vallarfoxgras.
Talið er að bambus skipist í sextíu
til sjötíu ættkvíslir sem greinast í
mörghundruð mismunandi tegundir.
Bambusar eru langlífir og sígrænir. Þeir
geta náð allt að þrjátíu metra hæð og
er því sannkallað risagras, en flestir
eru þeir á bilinu tveir til þrír metrar.
Bambusinn er harðgerður en þrífst best
í hlýju og röku loftslagi og frjósömum
jarðvegi og margir þeirra þola talsvert
frost. Jarðvegurinn sem þeir vaxa í
má þó ekki vera of blautur því þá fúna
ræturnar.
Vex frá fjöru til fjalla
Bambusinn hefur mesta útbreiðslu
í Austur- og Suðaustur-Asíu en
á náttúruleg heimkynni í öllum
heimsálfum utan Evrópu og
Suðurskautslandsins.
Í náttúrulegum heimkynnum sínum
vex hann allt frá sjávarmáli og upp á
fjallsbrún. Bambus þykkir einstaklega
góður til að binda jarðveg vegna
rótasprota sem hann myndar og er því
oft ræktaður í hlíðum þar sem hætta er
á flóðum. Bambus vex mjög hratt og
dæmi er um allt að 30 sentímetra vöxt
á einum sólarhring og sagt að það megi
horfa á fljótsprottnustu tegundirnar
vaxa.
Allt fyrir suma eitthvað fyrir alla
Talið er að Austurlandabúar hafi verið
farnir að nýta bambus fyrir rúmum
fjögur þúsund árum. Jurtin er talin
svo mikilvæg að kínverskur málsháttur
segir að bambusinn sé allt fyrir suma
og eitthvað fyrir alla.
Úr jurtinni eru ofnir nytjahlutir eins
og körfur og mottur, búinn til pappír,
blek og skriffæri. Smíðaðar eru flautur
og margs konar hljóðfæri og dæmi er
um pípuorgel sem eingöngu var gert
úr bambus. Fátækir bændur reisa hús
úr bambus, burðarbitar, vegir, gólf,
þak og rennur, allt úr bambus. Það
er þó ekki eingöngu í Austurlöndum
sem menn hafa notfært sér eiginleika
bambussins. Þegar Thomas Edison var
að prófa sig áfram með glóðarperuna
var hann búinn að reyna nokkur þúsund
mismunandi efni í þráðinn þegar hann
reyndi bambusþráð og viti menn – það
kom ljós. Burðargrindin í fyrstu flugvél
Wright-bræðra var gerð úr bambus.
Stönglar bambussins eru holir
að innan og því léttir og þola mikla
sveigju. Þetta hafa Austurlandabúar
notfært sér og smíðað báta úr bambus.
Þessar merkilegu plöntur tengjast
bátum einnig á annan hátt og segir
Marco Polo frá því í ferðasögu sinni
frá þrettándu öld að Kínverjar flétti
kaðla úr bambusþráðum og noti þá til
að draga báta á land. Hann telur einnig
ástæðu til að nefna kaðlarnir séu á
engan hátt lélegri en hampkaðlarnir
sem notaðir voru í Evrópu á þeim tíma.
Bambuseiginkona
Í Japan er til það sem kallast
bambuseiginkona. Það er hólkur
ofinn úr bambus sem er lagður í rúm
og menn sofa með þá við hliðina á sér.
Tilgangurinn er að leggja annan fótinn
yfir hólkinn en um hann streymir kalt
loft sem kemur í veg fyrir að menn
svitni mikið á heitum nóttum. Bambus
hefur ekki alltaf verið notaður í svo
friðsamlegum tilgangi, heldur einnig
sem pyntingatæki. Menn voru bundnir
yfir nýsprota og hann látinn vaxa inn
í augun eða kviðarholið og gegnum
fórnalambið.
Margir indverskir kotbændur lifa í
eins konar bambusveröld allt frá vöggu
til grafar. Börn sofa í bambusvöggu,
fullorðnir vinna á bambusökrum og
notast við bambusverkfæri. Bændurnir
nota bambus sem fóður fyrir búfé
og borða hann sjálfir og að loknu
ævistarfinu eru þeir bornir til grafar á
bambusbörum.
Bambusbækur
Eins og fyrr segir skipar bambus
stóran sess í menningarheimi
Austurlanda fjær. Í Kína eru til
tvö þúsund ára gamlar skráðar
heimildir á þrjátíu sentímetra langar
bambusrullum sem bundnar eru
saman í bók. Rullurnar eru ótrúlega
endingar góðar og margar þeirra vel
læsilegar enn í dag. Qis Shi Huang
keisari, sem uppi var 259 til 210
fyrir Krist, skipaði svo fyrir að
bækur Konfúsíusar yrðu brenndar
og nokkrir munkar grafnir lifandi.
Bókunum var komið undan með
því að grafa þær í jörð. Hundrað
árum síðar voru þær teknar í sátt að
nýju og grafnar upp. Þær voru að
mestu óskemmdar og grundvöllur
þess sem vitað er um kenningar
Konfúsíusar.
Bambus í matinn
Bambus þykir hið mesta lostæti og er
víða nýttur sem fæða. Búddamunkar
líta á bambus sem sælgæti og ekki
að undra, þar sem hann er ein er
af fáum fæðutegundum sem þeir
mega neyta.
Kínverjar og Taílendingar
framleiða mikið af bambus til
útflutnings. Sprotarnir þykkja bestir
rétt áður en þeir koma upp úr jörðinni
og segir sagan að bændur sem rækta
bambus fari um akrana berfættir
og leiti þannig að sprotum sem eru
að skjóta upp kollinum. Til þess að
halda þeim mjúkum hreykja þeir upp
smá þúfum til að tefja fyrir því að
vaxtarsprotinn komist í birtu.
Pandabirnir eru mjög háðir
bambus og nærast nánast eingöngu
á einni tegund af bambus en þetta
einhæfa mataræði hefur reynst þeim
mjög afdrifaríkt. Þrátt fyrir að sumar
bambustegundir geti lifað í allt að 120
ár eru þær þeirri náttúru gæddar að
blómstra aðeins einu sinni og deyja
svo.
Allir einstaklingar sömu tegundar
blómstra á sama tíma á svipuðum
slóðum í heiminum og það tekur fræin
allt að fimm ár að spíra og ná þeirri
stærð að pandabirnirnir geti nærst á
þeim. Meðan á endurnýjuninni stendur
drepast margir pandabirnir úr hungri
og eins og gefur að skilja hefur þetta
einnig veruleg áhrif á efnahag bænda
sem lifa af bambusrækt.
Bambusjurtin er einnig þekkt sem
lækningajurt og enn eru hefðbundin
lyf úr þeim notuð á sjúkrahúsum í
Kína gegn margsháttar sjúkdómum
í öndunarveig. Jurtin er notuð í
ástarhvata, en nýsprotarnir líkjast
nashyrningshornum. Um tíma og
eflaust enn flytja bændur á Indlandi þá
út sem slík, en eins og flestir vita þykir
fátt betra til að hressa upp á kynlífið en
mulið nashyrningshorn.
Bambushljóð
Eins og áður hefur komið fram eru
smíðuð hljóðfæri úr bambus en
bambusinn á líka sín eigin hljóð og
sumir segja að það séu fallegustu
hljóð í heimi. Þegar vindurinn blæs
milli sverðlaga blaðanna myndast
eins konar blanda af gusti og skrjáfi
sem hefur róandi áhrif á sál og lík-
ama.
Þegar jurtin er í sem örustum
vexti gefur hún einnig frá sér hljóð.
Krafturinn er svo mikill þegar
ný vöxturinn brýtur sér leið upp úr
jarðveginum og rífur sig gegnum
rótarbjörgina að það heyrist hljóð ekki
ósvipað því og þegar tappi er tekinn
úr kampavínsflösku. Þeir sem hafa
upplifað þetta segja að það sé eins og
að ganga í gegnum ævintýraskóg og
heyra skógarpúkana gera sér glaðan
dag.
Bambus á Íslandi
Á Íslandi er lítið af bambus í görðum
en sem komið er. Gulbambus sem
upprunninn er í Himalajafjöllum
hefur reynst ótrúlega harðgerður og
hefur vaxið ágætlega og í nokkrum
görðum Reykjavík.
Þrátt fyrir að bambus sé sjaldgæfur
ætti það ekki að koma í veg fyrir að
hann sé ræktaður í garðskálum.
Bambus er afskaplega blaðfallegur
og fljótsprottinn og auðvelt er að
fjölga honum með skiptingu og fátt
er unaðslegra en að sitja í fallegum
gróðurskála eða úti í garði og horfa á
lítinn bambus og drekka rauðvín með
elskunni sinni.
Garðyrkja & ræktun
Bambus – planta framtíðarinnar