Bændablaðið - 08.05.2013, Síða 50
50 Bændablaðið | Miðvikudagur 8. maí 2013
Birgitte Bærendtsen og Árni
Hafstað tóku við búi af foreldrum
Árna árið 1993. Það hafði lengi
verið ætlað Árna, en foreldrar
Birgitte, sem eru stórbændur í
Danmörku, höfðu sennilega ætlað
henni blíðari örlög en að setjast
að við kotbúskap norður við
Dumbshaf.
Hefðbundinn kúabúskapur var
þá, með 40 kýr, mjaltabás. Árið
1997 fara Birgitte og Árni í nám til
Danmerkur en eru bæði heimkomin
2001. Á meðan var ráðsfólk á búinu.
Fjósi var breytt í áföngum og
kúm fjölgað smátt og smátt. Árið
2003 var keyptur mjaltaþjónn sem
hefur þjónað síðan (þetta hljómar
eins og hann hafi verið prestsvígður,
en svo er ekki!). Árni hefur störf
sem heyrnarfræðingur um svipað
leiti, ferðast um landið og sinnir
heyrnartækjaþjónustu..
Árið 2008 er byggt kálfahús og þá
losnar bygging sem hafði gegnt því
hlutverki fram að því. Sú bygging
var þá tekin í gegn og þar fyrirkomið
bruggverksmiðjunni Gæðingi, sem
hefur starfað í tvö ár og þar innan
veggja er margt í gerjun.
Nýjasta aukabúgreinin er síðan
barinn Microbar í Austurstræti. Þar
hefur í bráðum eitt ár verið rekinn
sá bar sem leggur áherslu á að hafa
bjóra frá íslensku örbrugghúsunum
á krana og svo um 140 tegundir
aðrar af sérbjórum.
Býli? Útvík.
Staðsett í sveit? Of norðarlega, en
í Skagafirði.
Ábúendur? Birgitte Bærendtsen,
Árni Hafstað, Baltasar og Apríl.
Stærð jarðar? Frekar lítil, en
dugar. Sama sagan alltaf.
Gerð bús? Mjólkurkýr, bjór, bar
og heyrnartæki.
Fjöldi búfjár og tegundir? Um 60
kýr og milljón gæðingar.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Ein fer í fjósið, einn stillir
heyrnartækin, einn bruggar bjór. Oft
endar dagurinn á Microbar.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Bjórsmökkunin/allt hitt.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir
ykkur á jörðinni eftir fimm ár?
Allt öðruvísi.
Hvaða skoðun hafið þið á félags-
málum bænda? Tja, örugglega
gaman.
Hvernig mun íslenskum land-
búnaði vegna í fram tíðinni?
Spurðu mig þá.
Hvar teljið þið helstu tækifærin í
útflutningi íslenskra búvara? Bjór.
Hvað er alltaf til í ísskápnum? Of
gamall rjómaostur.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Ekki rjómaosturinn.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Þegar allir misstu stjórn
á skapi sínu við að sækja geldneyti
af engjum. Tveir snéru sig á ökla og
misstu röddina. Einn þurfti að snara
og binda við dráttarvél. Ég man
ekki hver það var.
Með hækkandi sól fer að koma
tími lautarferða að nýju. Þá
er alltaf skemmtilegt að prófa
eitthvað nýtt sem hentar fyrir alla
fjölskyldumeðlimi. Hér kemur því
sýnishorn af brauðmeti sem nota
má í samlokugerð, sem er einkar
hentugt fyrir þá sem eru viðkvæmir
fyrir mjöli og geri, því hér er því
sleppt og höfð með sæt og holl sósa.
Oopsies-klattar
6 stk.
› 3 egg
› 100 g rjómaostur
› 1 tsk. salt
Aðferð:
Skiljið eggin. Þeytið saman rjóma-
osti, eggjarauðum og salti með hand-
þeytara eða í hrærivél. Þeytið síðan
hvíturnar í annarri skál þar til þær eru
loftkenndar og hvítar. Blandið eggja-
hvítunum saman við rjómaostblönd-
una. Blandið varlega svo að deigið
haldist loftkennt, setjið rúmlega 1-3
msk. af deigi í einu á ofnplötu sem
þakin hefur verið bökunarpappír og
bakið í 15-20 mínútur við 180°C.
(Fengið að láni hjá Gunnari Má
Sigfússyni, heilsuráðgjafa, úr bók
hans Lág kolvetna lífsstíllinn.)
Mangókarrísósa
› 2 msk. mangómauk
› 1 tsk. karrí
› 2 tsk. tamarisósa
› 125 ml hrein jógúrt eða AB mjólk.
Einnig má nota sojajógúrt
Aðferð:
Hrærið allt saman og kælið.
(Uppskrift frá Café Sigrún). /ehg
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
MATARKRÓKURINN
Hugmyndir
Útvík
fyrir
lautarferðina
Með Oopsies-klöttunum getur
hver og einn leikið sér með hráe-
fnið sem sett er á þá, hægt er að
nota góða sósu, salat, kjöt og/eða
uppáhalds áleggið, smyrja þá með
íslensku smjöri eða hreinlega borða
þá eintóma.