Læknablaðið - 01.08.1959, Blaðsíða 58
52
LÆKNABLAÐIÐ
chorioidea og retina og draga
þannig losnaða retina út að út-
vegg augans. Gonin varð til þess
að benda á hver nauðsyn var að
finna rifurnar i retina, sem
valda losinu og að loka þeim.
Þetta er enn í dag megin til-
gangur allra aðgerða við þess-
um sjúkdómi. Weve kom 1930
með Diathermi eða brennslu
bæði yfirhorðs og djúpbrennslu
á sclera og þar með var fundin
örugg og viðráðanleg leið til að
lækna amotio retinae í 60—70%
sjúklinga og jafnvel betur, ef
snemma náðist til að gera að-
gerðina.
Segja má, að þessi aðgerð sé
nú nærri einvörðungu notuð, þó
með ýmsum tilbreytingum sé-
Einkum liafa verið gerðar all-
miklu stærri aðgerðir þar sem
venjuleg aðgerð hefir ekki náð
árangri. Sclera er þá losuð frá al-
veg út undir chorioidea og felld
saman, þannig að felling mynd-
ast inn á við og minnkar þá
bæði rúmtak augans og eins
minnkar bilið milli retina og
cliorioidea og meiri líkur verða
á því að þroti sá, sem myndast
við hitann frá Diatermi nálinni,
nægi til þess að lóða saman
himnurnar aftur. Scbepens hef-
ir tekið plastið til þess að mynda
slika og öllu myndarlegri fell-
ingu, er skagar inn i glervökv-
ann i aftara hólfi augans. Þrír
fjórðu hlutar af þykkt Sclera
eru skornir burtu á 4 mm
breiðri ræmu, sem getur náð allt
í kringum yfirborð augans (bulb-
us), en er vanalega allmiklu
styttri og er breytileg eftir
því, sem við á i bvert sinn.
Inn i þetta gróp er síðan
lögð plastpipa 3 mm víð.
Siðan er sárið á sclera saumað
saman utan um pípuna, sem
verpist þá inn á við og liggur i
rauf inni i glervökvanum. Aug-
að þolir þessa aðgerð vel, pípan
er úr Polyethylen plasti, veldur
mjög sjaldan viðnámi og er
þægileg í meðferð. Þó eru þess-
ar aðgerðir mjög tímafrekar, en
árangur virðist betri en með
venjulegri aðferðum, sérstak-
lega þar sem fyrri tilraunir með
Diatermi bafa ekki borið á-
rangur.
Þó það eigi ekki beint beima
bér, má til gamans minnast á,
að einn af ókostunum við Dia-
termi aðgerðir eru gruggflyks-
ur, sem myndast i glervölcvan-
um við hitann frá Diatermi nál-
inni og valda töluverðum trufl-
unum. Tilraunir á dýrum
benda eindregið til þess, að ann-
að plastefni, Silicone, geti kom-
ið að gagni bér. Er því þá spýtt
inn í glervökvann og virðist þol-
ast þar mjög vel- Vera má því,
að í náinni framtíð megi skipta
að verulegu leyti um glervökva
augans, ef sjúklegar breytingar
þar trufla starfsemi augans. —
Þrjár aðgerðir með plastpípu ad
modum Scbepens bafa verið
gerðar á St. Jósephsspítala í
Rvík, allar á sjúklingum, sem