Læknablaðið - 01.08.1959, Qupperneq 72
66
LÆKNABLAÐIÐ
Við aðgerðina kom í Ijós, að
gallblaðran hafði sprungið, og
voru samvextir miklir umhverf-
is hana. Einnig voru í henni
stórir steinar. Konunni lieilsað-
ist vel eftir aðgerðina og fór
hún úr spítalanum 22. ágúst.
Hefur hún síðan verið við góða
heilsu.
Þessi atburður hefur oft
hvarflað í liuga minn siðar. Ekki
hefði verið skemmtilegt fyrir
mig, ef ég hefði sofnað fast og
ekki vaknað fyrr en að morgni
og komið að konunni látinni í
hvílu sinni. Það befði verið saga
til næsta bæjar. Sennilegt verð-
ur að telja, að konan liafi verið
búin að fá of mikið af deyfilyf-
inu. Dreg ég þá ályktun af því,
liversu fljótt hún rétti við eftir
coramin-inngjöfina. — Það má
því teljast ástæða til að minna
á, að láta fylgja nákvæmar upp-
lýsingar með sjúklingum, sem
fengið hafa inngjöf sterkra
lyfja, þegar þeir eru sendir á
milli lækna. Ég tel óvíst, hvern-
ig farið hefði í þesssu tilfelli,
ef ég hefði ekki haft coramin
við hendina.
Þessi atburður hefir einnig
gefið mér tilefni til liugleiðinga
um gallsteina. — Það má telja
sjaldgæft að gallblaðra springi.
Nú á tímum eru sjúklingar
venjulegast það fljótt komnir
í hendur skurðlækna, að slíkt
skeður ekki. Á hinn bóginn eru
gallsteinar algengur sjúkdómur
og' bólgubreytingar i blöðrunni
samfara þeim- — Sumir sjúk-
dómafræðingar telja, að næst
á eftir botnlanganum, sem er
það líffæri, er oftast kemur til
umsagnar þeirra, komi gall-
blaðran. Enda þótt gallsteinar
eigi þar ekki alla sök, má telja
þá meðvirka í langflestum til-
fellanna.
Nokkuð eru sérfræðingar ó-
sammála um tiðni gallsteina.
Liggur nær að balda, að nokkru
ráði þar um mataræði, hnatt-
staða og veðurfar. Segja má,
að þeir fyrirfinnist bjá fólki frá
vöggu til grafar, enda þótt til-
fellunum fjölgi með aldrinum.
Fjöldi fólks gengur með steina,
án þess að verða þeirra vart.
Áreiðanlegustu yfirlit um gall-
steina koma frá krufninga-
skýrslum.
Courvoisier telur, að gallstein-
ar finnist við krufningar hjá
fullorðnum í 10. bverju líki.
Aðrir láta sér nægja lægri tölur
(Lotzin 8.52%, W- Fischer 7%).
Enn aðrir telja, að 11—25%
muni nær sanni, þar á meðal
Svend Hansen. Við krufningu á
1191 líki fann hann gallsteina i
25% tilfella (karlar: 19%; kon-
ur 81%). 23% steina voru í öðr-
um stöðum en í gallblöðrunni.
í skýrslu þessari hefir Svend
Hansen sleppt þeim, sem krufð-
ir hafa verið innan 20 ára ald-
ui's. — Hvort hinir höfundarnir,
sem vitnað hefir verið til, hafa