Læknablaðið - 01.04.1965, Síða 21
LÆKNABLAÐIÐ
GEFIÐ ÚT AF LÆKNAFÉLAGI ÍSLANDS OG
LÆKNAFÉLAGI REYKJAVÍKUR
Aðalritstjóri: ÓLAFUR BJARNASON. Meðritstjórar: MAGNÚS
ÓLAFSSON og ÞORKELL JÓHANNESSON (L. í.), ÓLAFUR
GEIRSSON og ÁSMUNDUR BREKKAN (L. R.)
49. árg. Reykjavík, apríl 1965. 2. hefti. .
3 ^urÉur (ju&munJi.
iion:
HYPERPARATHYREOIDISMUS
PRIMARIA.
Sögulegt yfirlit.
Árið 1852 lýsti enskur líffæra-
fræðingur og dýrafræðingur,
Richard Owen að nafni, fvrstur
manna glandulae parathyreoi-
deae, svo nefndum vegna ná-
lægðar þeirra viðskjaldkirtilinn.
Ekki var skepnan, sem þennan
heiður hlaut nein smásmíði, því
að hér var um sjálfan hippopo-
tamus, flóðhestinn, að ræða.
Ekki var Owen Ijóst, hver
starfsemi þessara kirtla væri,
og gerist lítt í sogunni fvrr en
50 árum seinna, að Erdheint
og Askenazy koma fram með
kenninguna um, að samband sé
á milli æxlis í kölkungum (gll.
parathyreoidea) og osteitis fib-
rosa cystica, en þeim sjúkdómi
lýsti von Reeklinghausen árið
1890 án þess að gera grein fyr-
ir réttri orsök hans.
Eftir uppgötvun þeirra Aske-
nazy og Erdheim árið 1903
verður heldur afturför en hitt
í leit manna að sannleikanum
um þessi mál, því að hald
manna varð smám saman, að
kalkkirtlastækkun eða æxliværi
afleiðing fremur en orsök bein-
sjúkdóma. Þetta er að vísu skilj-
anlegt, þegar á það er litið, að
þeir settu beinkröm og osteo-
malacia í flokk með osteitis fi-
hrosa cyslica, en um þá fyrst-
nefndu er það nú vitað, að kalk-
skortur þeirra veldur stækkun
á kölkungum. Samt kemur
uppástunga frá meinafræðing-
unum Schlangenhaufer og Ma-
resh, að hugsanlegt sé, að æxli
í kölkungum geti e.t.v. verið or-
sök osteitis fihrosa cystica, og
því mögulegt, að lækna megi
sjúkdóminn með hrottnámi