Fréttatíminn - 16.09.2011, Side 38
Ekkert miðað við pabba
T
Tvisvar á ári grípur menn megrunar- og þjálfunar-
æði, eftir áramót að lokinni matarorgíu stórhá-
tíðanna og á haustin, að loknum sumarleyfum. Á
þessum tímamótum vilja menn byrja nýtt líf og
margir gera það eflaust – aftur og aftur. Janúar er
sennilega aðaltíminn en september gefur honum
lítið eftir. Í blöðum og bæklingum sem berast inn
um lúgurnar um þessar mundir blasa við auglýs-
ingar um bætt líf og betri heilsu með breyttu mat-
aræði og hreyfingu. „Við getum það allar,“ segir Linda Pé og
brosir blítt til allra kynsystra sinna, nánast fullkomin í forminu,
borðar bara hollt og hreyfir sig dagana langa.
Karlarnir fá sinn skammt og á vinnustöðum er jafnvel boðið
upp á bumbukeppni nú þegar hausta tekur. Slíkum áskorunum
mun fremur beint á karlkyninu enda hættir því fremur til að
safna bumbu en kvenkyninu. Menn eru hvattir til að ryðja öll-
um eftirlegubjór sumarsins úr kæliskápnum og fylla hann þess
í stað af próteinsjeik og skyri. Vömbin skal burt. Bjór ku vera
helsta orsök kúlumyndunar á miðju karla. Majónesur og fleira
jukk sem karlar nota til að koma grænfóðri niður þykir heldur
ekki fegurðaraukandi.
En maturinn einn er ekki nóg. Menn verða víst að hreyfa sig
líka til að bæta líkamsvöxtinn eftir því sem hægt er og náttúran
leyfir; ganga, hlaupa og lyfta. Ég horfi á starfsfélaga mína plana
haustræktina, matarkúrana og líkamsræktina alla – en fer mér
þó hægt. Ég nenni varla að taka þátt í fitumælingum þeirra og
hlaupaplönum. Kemur þar einkum til að ég er eldri og hef því
afsökun fyrir því að taka því rólega. Hitt er að af genetískum
ástæðum safnast ekki mikil fita á mig, sem auðvitað ber að
þakka. Þó má fljótt sjá á slíkum belgjum hafi síðsumardagar
kallað á einn kaldan eða tvo í vinnulok. Mjónurnar verða þá
eins og bókstafurinn þ í laginu. Það er ekki fallegur líkams-
vöxtur.
Sumir hafa yndi af líkamsrækt. Pistilskrifarinn er ekki einn
þeirra. Það bjargaði leikfimitímunum í gamla daga
að Valsarinn góðkunni, Árni Njálsson, skipti frekar
í lið en að láta okkur drengina djöflast á hestum og
dýnum. Handboltinn var miklu betri kostur enda
framleiddi Árni meistaraflokksmenn og landsliðs-
menn Víkinga á færibandi þegar handknattleiks-
deild þess ágæta íþróttafélags var upp á sitt besta.
Einn og einn fór að sönnu í Val, enda stutt á milli
austurbæjarfélagnna. Ég var ekki í þeim afreks-
mannahópi en hafði engu að síður gaman af bolta-
tímunum.
Keppni gerir hreyfinguna bærilega, hvort heldur
er fótbolti, handbolti eða annað. Á fullorðinsárum lét
skrifarinn þær göfugu íþróttagreinar þó eiga sig en
náði bærilegum árangri í hópi starfsfélaga í öðrum
merkisgreinum, keilu og hniti – badmintoni vel
að merkja. Hreyfingin er fín í hnitinu en hið sama
verður varla sagt um keiluna.
Þegar eiginkonunni blöskraði hreyfingarleysið og
óhollustan á bóndanum hvatti hún hann til að kaupa á líkams-
ræktarkorti. Ekkert minna en árskort dugði en nýtingin var
skammarlega léleg, sennilega fjögur skipti, kannski fimm.
Konan gerði sér grein fyrir að fullreynt var með þá tilraun
og sá þá til þess að fjárfest var í þrektæki fyrir þann sófalæga.
Eftir skoðun var ákveðið að kaupa einhvers konar skíðagöngu-
tæki. Það átti að auka þrek og þol. Eina hreyfingin sem fékkst
út úr því var að setja tækið saman. Ég rekst annað slagið á það
rykfallið í bílskúrshorninu. þ.e. þegar ég reyni af veikum mætti
að taka til í þeirri vistarveru.
Minn góði betri helmingur sætti sig við örlög skíðavélar-
innar en taldi þjóðráð að geyma þrekhjól fyrir son okkar þegar
hann fór til langdvalar í öðru landi.
„Þetta er akkúrat tækið fyrir þig, elskan,“ sagði hún. „Þú
getur sest á hnakkinn og hjólað að vild og horft á sjónvarpið
um leið. Þú nærð hálftíma á dag ef þú hjólar á meðan þú horfir
á fréttirnar og veðrið, það eina sem þú hefur dálæti á í sjón-
varpinu.“
Ég prófaði einu sinni. Það var átakanlega leiðinlegt. Sem
gutti hafði ég gaman af hjólreiðum, fór víða á gamla Hopper-
hjólinu mínu, jafnvel þótt það væri með rauðum eða rauð-
bleikum dekkjum. Sá litur þótti ekki við hæfi á drengjahjóli
þótt hjólhesturinn væri ekki lagður í einelti með sama hætti og
austur-þýska Möve-hjólið sem Þórarinn Eldjárn gerði ódauð-
legt í kvæði sínu. En að hjóla og sitja fastur á sama stað þótti
mér út í hött.
Þrekhjólið hefur síðan staðið við hliðina á skíðavélinni í bíl-
skúrnum, jafn rykfallið. Sonur okkar er fluttur heim og grefur
það væntanlega úr skúrhorninu innan tíðar. Hann þarf ekki að
kvarta undan því að faðirinn hafi jaskað apparatinu út.
Þessi september verður því eins og aðrir september- og
janúarmánuðir hjá mér. Ég læt líkamsræktaræðið fram hjá
mér fara. Sú ákvörðun getur kostað tímabundinn álitshnekki
eins og þegar fimm ára sonardóttir
okkar var í vist hjá afa og ömmu á
dögunum. „Afi,“ sagði stúlkubarnið,
„má ég sjá handleggsvöðvann þinn?“
Pabbinn hafði greinilega þanið sig
eitthvað fyrir framan hana eftir lík-
amsræktartíma nú í haustbyrjun.
Ég spennti hægri upphandleggs-
vöðvann eins og framast var unnt.
Afastúlkan greip á grjóthörðum
vöðvanum – að mér fannst að
minnsta kosti – og sagði, í sakleysi
æskunnar:
„Iss, þetta er ekkert miðað við
pabba!“
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
Íslenska
sjávarútvegssýningin
2
0
11
Smárinn, Kópavogur • September 22-24
www.icefish.is
Samstarfsaðili um flutninga SkipuleggjandiAlþjóðleg útgáfa Opinber íslensk útgáfa
Eini viðburðurinn sem nær til íslenska
sjávarútvegsins í heild sinni
* Alþjóðlegar VIP-sendinefndir verða á staðnum
* Íslensku sjávarútvegsverðlaunin verða afhent í fimmta sinn þann 22. september 2011
Forðist biðraðir og sparið fé! Skráið ykkur á Netinu á
www.icefish.is til þess að spara 20%!
Allt fyrir atvinnumenn í sjávarútvegi frá veiðum til vinnslu
og dreifingar á fullunnum afurðum
Stuðningsaðilar eru:
• Sjávarútvegs-og landbúnaðarráðuneytið
• Utanríksráðuneytið
• Samtök iðnaðarins
• Fiskifélag Íslands
• Landssamband íslenskra útvegsmanna
• Landssamband smábátaeigenda
• Samtök fiskvinnslustöðva
• Farmanna- og fiskimannasamband Íslands
• VM - Félag vélstjóra og málmtæknimanna
• Sjómannasamband Íslands
• Félag atvinnurekenda
• Samtök verslunar og þjónustu
• Íslandsstofa
• Fiskifréttir
Nánari upplýsingar veitir Marianne Rasmussen-Coulling í síma
+44 (0) 1329 825335, netfang: mrasmussen@mercatormedia.com
Íslenska sjávarútvegssýningin er
atburður á vegum Mercator Media
Opinbert flugfélag/loftflutningafélag & hótelkeðja
_Icefish 2011 151wx200h_06.09.11_Icefish 06/09/2011 10:25 Page 1
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Tækifærisdagar í verslun okkar.
Splunkuný
gerð af Siemens
þvottavél
á flottu Tækifærisverði.
Tekur mest 7 kg, 1400 sn./mín.
15 mínútna hraðkerfi.
WM 14Q360SN
Tækifæri
Tækifærisverð:
129.900 kr. stgr.
(Fullt verð: 164.900 kr.)
Ariel þvottaefni og Lenor mýkingarefni
fylgja með öllum Siemens þvottavélum.
30 viðhorf Helgin 16.-18. september 2011