Fréttatíminn - 16.09.2011, Síða 50
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin
í Reykjavík (RIFF) hefur fest
sig í sessi sem einn líflegasti og
áhugaverðasti viðburðurinn í ís-
lensku menningarlífi ár hvert. Á
meðan hátíðin er í gangi stendur
fólki til boða aragrúi af áhuga-
verðum kvikmyndum, heimildar-
myndum og öllu þar á milli. Þá
er mikið um uppákomur tengdar
kvikmyndum auk þess sem há-
tíðin er orðin eftirsóttur vettvang-
ur kvikmyndagerðarmanna frá
ýmsum heimshornum. Erlendir
fjölmiðlar sýna hátíðinni jafnan
mikinn áhuga og verðlaun RIFF,
Gyllti lundinn, heillar.
Hátíðin hefst fimmtudags-
kvöldið 22. september með
myndinni Inni sem fjallar um
hljómsveitina Sigur Rós. Myndin
verður sýnd á skemmtistaðnum
NASA en þar sem um tónlistar-
mynd er að ræða varð þessi
óvenjulegi kvikmyndasýningar-
staður fyrir valinu.
Inni er önnur kvikmynd Sigur
Rósar og fylgir í kjölfar heimild-
armyndarinnar Heima. Myndin
var tekin upp á tvennum tón-
leikum Sigur Rósar í Alexandra
Palace í London í nóvember 2008.
Nokkrum dögum síðar kom
Sigur Rós fram á eftirminnileg-
um tónleikum í troðfullri Laugar-
dalshöll og hefur haft hægt um
sig síðan.
Miðasala á RIFF er hafin í for-
sölu á heimasíðu hátíðarinnar,
riff.is, og miðasala í upplýsinga-
miðstöð hátíðarinnar hófst í
gær, fimmtudag, í Eymundsson
við Austurstræti. RIFF stendur
yfir dagana 22. september til 2.
október.
RIFF hefur ætíð lagt áherslu
á óhefðbundnar bíósýningar í
bland við sýningar í kvikmynda-
húsum. Meðal þeirra viðburða
sem fara fram fjarri myrkvuðum
bíósölum er heimabíóið, þar
sem valinkunnir Íslendingar
bjóða gestum RIFF heim til sín
í Heimabíó og smella þar eigin
uppáhaldsmynd í tækið.
Gestgjafarnir í Heimabíóinu
í ár eru Hrafn Gunnlaugsson,
fjölmiðla- og athafnamaðurinn
Ásgeir Kolbeins og Hugleikur og
Úlfhildur Dagsbörn.
42 bíó Helgin 16.-18. september 2011
Ö kuþórinn sem Gosl-ing leikur er nafn-laus og aldrei kallað-
ur annað en Driver. Nafnleysi
persónunnar og stórkost-
legir hæfileikar hennar undir
stýri vekja óhjákvæmilega
hugrenningatengsl við ein-
hver tvö af mestu hörku-
tólum kvikmyndanna, Clint
Eastwood, sem gat sér gott
orð sem nafnlausi kúrekinn
í spagettí-vestrum Sergios
Leone fyrir margt löngu,
og Steve McQueen sem
brunaði undir dunandi djassi
í gegnum þekktasta bílaelt-
ingarleik síðustu áratuga í
Bullitt. McQueen var sjálfur
með ólæknandi kappaksturs-
dellu þannig að skyldleiki
Driver við þessa tvo kappa
er augljós. Og Gosling er
óneitanlega að leika sér í
skugga tveggja goðsagna.
Leikstjórinn Winding Refn
fer heldur ekkert í grafgötur
með að hann hafi verið undir
áhrifum frá Bullit sem Peter
Yates leikstýrði árið 1968.
Driver er áhættuleikari
sem sérhæfir sig í háska-
akstri í hasarmyndum. Það
er ekki nóg með að hann
taki áhættu í starfi; kvöld-
og helgarvinnan hans er
enn háskalegri því þá tekur
hann að sér að keyra flótta-
bifreiðar fyrir ræningja. Eftir
að umboðsmaður ökuþórs-
ins kemur honum í kynni
við hinn vellauðuga glæpon
Bernie Rose fer heldur betur
að syrta í álinn. Rose ræður
Driver í vinnu en þegar bíl-
stjórinn knái kolfellur fyrir
ungri þokkadís fer allt úr
böndunum. Þegar ránsleið-
angur klúðrast kennir Rose
bílstjóranum um ófarirnar,
vill Driver feigan og setur
fé til höfuðs honum. Þá þarf
ökuþórinn að taka á honum
stóra sínum og nýta hæfileik-
ana í botn til þess að bjarga
sjálfum sér og þeim sem
standa honum næst.
Drive er byggð á sam-
nefndri skáldsögu eftir Jam-
es Sallis frá árinu 2005. Eftir
eina mislukkaða tilraun til að
koma sögunni á hvíta tjaldið
tóku mógúlarnir hjá Univer-
sal ákvörðun um að gera aðra
atrennu að Drive árið 2010.
Þá var Ryan Gosling ráðinn
í hlutverk Driver. Hann fékk
einnig að velja leikstjóra og
veðjaði á Winding Refn.
Nicolas Winding Refn er
41 árs og er þekktastur fyrir
Pusher-þríleikinn sem naut
mikilla vinsælda í Danmörku
og víðar. Myndin var frum-
sýnd í þessum mánuði en
hafði áður verið sýnd á
nokkrum kvikmyndahátíð-
um, þar á meðal í Cannes í
vor þar sem hún sló hressi-
lega í gegn. Eftir frum-
sýninguna í Cannes fékk
myndin standandi lófaklapp
og hún skilaði Winding Refn
verðlaunum fyrir bestu leik-
stjórnina á hátíðinni. Þá hafa
flestir gagnrýnendur ausið
myndina lofi þannig að það
er ljóst að Ryan Gosling veðj-
aði á réttan hest þegar hann
valdi leikstjórann.
Nicolas WiNdiNg RefN daNiNN gefuR allt í botN
Drive er án efa áhugaverðasta frumsýningarmynd vikunnar en þar leikur Ryan Gosling áhættu-
leikara og snjallan bílstjóra sem kemst í meiriháttar vandræði þegar hann lendir upp á kant við
glæpaforingja. Danski leikstjórinn Nicolas Winding Refn leikstýrir þessari kraftmiklu mynd sem
hefur fengið mikið lof gagnrýnenda.
... flestir
gagnrýn-
endur ausið
myndina
lofi þannig
að það
er ljóst
að Ryan
Gosling
veðjaði á
réttan hest
þegar hann
valdi leik-
stjórann.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
bíó
Ökuþór í miklum ham
Ryan Gosling slær hvergi af í Drive í hlutverki hörku nagla sem á ýmislegt skylt með ekki minni mönnum en Clint Eastwood og
Steve McQueen.
fRumsýNdaR
Fyrrverandi sjóliðinn Tommy Ri-
ordan snýr aftur á heimaslóðirnar
eftir margra ára fjarveru. Þar ætl-
ar hann sér að taka þátt í keppni í
blönduðum bardagalistum í von
um að komast yfir verðlaunafé upp
á fimm milljónir dollara.
Fortíðin hvílir þungt á honum
en hann hefur uppi á föður sínum
og fær hann til að þjálfa sig. Karlinn hafði þjálfað strákinn á
árum áður og gert hann að einhverjum öflugasta bardaga-
kappa Bandaríkjanna.
Það sem setur svo stórt strik í reikninginn hjá Tommy er
að á sama tíma ákveður bróðir hans, Brendan, að skella sér
líka í keppnina. Hann er kennari en á í basli með að ná endum
saman og hefur einnig augastað á verðlaunafénu. Litlir kær-
leikar eru með þeim bræðrum og Brendan hefur ekki verið í
sambandi við föður þeirra í fjöldamörg ár. Brendan telur sig
eiga góða möguleika á sigri gegn þeim bestu, þar á meðal
bróður sínum, þannig að það er ýmislegt óuppgert þegar
bræðurnir berjast í hringnum.
Aðrir miðlar: Imdb. 8,2, Rotten Tomatoes: 82%, Metacritic: 71/100.
Gamla
brýnið
Nick Nolte
leikur föður
bardaga-
bræðranna.
Aðrir miðlar
Imdb: 8,8
Rotten Tomatoes: 94%
Metacritic: 77/100
Pearl Jam
Twenty
Sá tónelski og ágæti
leikstjóri Cameron
Crowe (Jerry
Maquire, Almost
Famous, Vanilla Sky)
gerði þessa heim-
ildarmynd um hljóm-
sveitina Pearl Jam í
tilefni af tuttugu ára starfsafmæli sveitarinnar.
Myndin rekur sögu sveitarinnar frá stofnun
hennar 20. september 1991 allt til dagsins í dag.
Farið er í gegnum hæðir og lægðir hljómsveitar-
innar en ferillinn hefur ekki alltaf verið
dans á rósum. Myndin er sett saman úr
yfir tólf hundruð klukkustundum af áður
óséðu efni sem gerir hana að einstakri
heimild um Pearl Jam.
Twenty verður sýnd á sama tíma úti
um allan heim þriðjudaginn 20. septem-
ber og verður aðeins sýnd þennan eina
dag á Íslandi. Myndin verður sýnd í
Háskólabíó, miðasala er hafin og einungis
300 miðar eru í boði.
Blandaður bræðrabardagi
I Don’t
Know How
She Does It
Í þessari gamanmynd
leikur borgarbeðmálapí-
an Sarah Jessica Parker
Kate Reddy. Hún er fjár-
málastjóri og fyrirvinna
heimilisins. Greg Kinnear
leikur eiginmann hennar
en meðal annarra leikara
eru höfðingjar eins og
Pierce Brosnan og Kelsey
Grammer.
NÝTT!
NÝTT!
NÝTT!
NÝTT!
www.noatun.is
Pantaðu veisluna þína á
Tækifærisveislur
Sush
i
Mexí
kósk
t
Ítalsk
t
Smur
brauðGala Aust
urlen
skt
Spæn
skt
Brauð
tertu
r
KviKmyNdaveisla Riff byRjaR í Næstu viKu
Aragrúi bíómynda og skemmtilegar uppákomur
Sigur Rósar-myndin Inni markar upphaf Alþjóðlegu
kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík í næstu viku.