Fréttatíminn - 16.09.2011, Síða 52
Helgin 16.-18. september 201144 tíska
Nýta sér nafnleyndina og
blogga undir öðru nafni
Einhvern tíma í vetur hafði ég orð á því hér í
pistlinum að bloggfaraldur geisaði í tísku-
heiminum; að þetta væri nýjasta leiðin til að
koma sér á kortið. Einstaklingsmiðaðar blogg-
færslur þar sem stelpur blogga um sjálfar sig,
taka af sér myndir og monta sig af nýjustu
merkjavörunum. Svo virðist þó sem sumar
stelpur kjósi að notfæra sér nafnleyndina;
bloggi undir öðru nafnið og vilji ekki að ljósið
beinist að þeim. Njóti þess að vera einhver
annar í heimi Internetsins.
Fyrir einskæra tilviljun datt ég inn á blogg-
síðu sem vakti heldur betur athygli mína.
Bloggarinn var ég sjálf. Myndir, dag-
bókarskrif og persónulegar stað-
reyndir um líf mitt dönsuðu á síð-
um bloggsins. Ég kannaðist ekki
við þetta. Síðan er enn í gangi og bloggarinn
gríðarlega virkur. Myndir og aðrar færslur
koma inn daglega og fjölskylda mín og vinir
oftar en ekki tekin fyrir.
Þessi dularfulli bloggari virðist þó ekki vilja
mér neitt illt. Engin meiðyrði. Aðeins stórkost-
legur misskilningur á mínu lífi. En þrátt fyrir
það er þetta auðvitað brot á persónuverndar-
lögum. Þess vegna var mér bent á að leita til
lögreglu og kæra viðkomandi. Sem ég gerði.
En Internetið er nútíminn. Þetta er óneitan-
lega bæði góð afþreying og fróðleikur sem
við unga fólkið getum ekki án verið. En
þrátt fyrir það verðum við að passa upp á
persónulegar upplýsingar. Ættum
jafnvel að bremsa okkur örlítið
og athuga hvers vegna við
erum að opinbera alls
konar staðreyndir um líf
okkar. Persónulega hluti sem
eiga bara að vera þannig áfram.
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
5
dagar
dress
Eyðir miklum tíma í að versla á netinu
Miðvikudagur
Skór: Urban Outfitters
Buxur: Levis
Peysa: American Apparel
Fimmtudagur
Skór: Jeffrey Campbell
Buxur: Dúkkuhúsið
Peysa: Forever21
Taska: Topshop
Föstudagur
Skór: Weekday
Pils: H&M
Samfella: American
Apparel
Nýju haustvörurnar streyma inn
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
Stærðir
40-60.
Flott föt fyrir
ottar konur,
Eva Rakel Jónsdóttir er nítján ára nemi við
Verslunarskóla Íslands og vinnur í fatabúðinni
Levi’s samhliða náminu. Hún hefur mikinn
áhuga á ferðalögum, tísku og líkamsrækt.
„Stíllinn minn er frekar venjulegur, myndi
ég segja. Klassískur en jafnframt rokkaður.
Innblástur tískunnar sæki ég mikið í sjónvarps-
þáttinn Gossip Girl og þar er Serena í mestu
uppáhaldi. Mér finnst líka leikkonan Sienna
Miller ótrúlega mikill töffari sem fer sínar eigin
leiðir og er alveg sama hvað öðrum finnst.
Fötin mín kaupi ég helst erlendis og á netinu.
Ég get eytt mörgum klukkutímum í að ráfa
um á netinu og fjárfesta í flíkum frá Urban
Outfitters, American Apparel og Asos. Hérna
heima laðast ég mest að íslensku versluninni
Uniform. Fallegur klæðnaður og rosalega
praktískur.“
Dita Von Teese
hannar gervineglur
Fyrirsætan Dita Von Teese er heldur íhalds-
söm þegar kemur að naglasnyrtingu og hefur
til dæmis notað sama naglalakkið í meira en
tuttugu ár. Það er þó ekki naglalakkið sem
vekur mestu athyglina, heldur hvernig hún
naglalakkar.
Nú hefur fyrirsætan hannað gervineglur í sam-
starfi við snyrtivörufyrirtækið Kiss og þær líta
nákvæmlega út eins og hennar eigin neglur.
Neglurnar kallar hún
Half moon manicure
eða hálfmána-negl-
urnar því hún skilur
eftir ólakkað svæði
sem lítur út eins og
hálft tungl.
Húðflúr á augnlokin
Í tilefni hátíðarinnar
Fashion Night Out
sem gengur nú yfir,
hóf snyrtivörufyrir-
tækið Dior sölu á
nýju húðflúrslínunni
Velvet Eyes. Húð-
flúrið, sem fæst í
fjórum gerðum, er
sett á augnlokin og
lítur út eins og ýktur
augnblýantur. Hægt er að fjarlægja það eftir
notkun og minnir aðferðin helst á gamla góða
tyggigúmmíhúðflúrið.
Augnlokaflúrið eru nú fáanlegt í verslunum Dior
og á vefverslun fyrirtækisins þar sem hægt er að
kaupa alla línuna fyrir rúmar sex þúsund krónur.
Dýraríkið á
fingrunum fimm
Stórt og áberandi dýraskart hefur
verið gríðarlega vinsælt síðustu
vikur og keppast verslanir landsins
við að verða sér út um þann varn-
ing. Uglur hafa sérstaklega verið
vinsæl dýrategund á fingrum eða
um háls, í öllum stærðum og gerðum. Ekki þarf
að spara skartið þegar kemur að þessu trendi
því oft sést mestallt dýraríkið á öllum fingrum.
Snákahringur frá vefverslun-
inni Asos.
Dýrahringir frá H&M.
Ugluhringur
frá Forever21.
Fílaháls-
men frá
Forever21.
Mánudagur
Skór: Aldo
Buxur: Levis
Peysa: All Saints
Kragi: H&M
Þriðjudagur
Skór: H&M
Sokkabuxur: Oroblu
Kjóll: Uniform