Fréttatíminn - 16.09.2011, Blaðsíða 59
neitt í hinni sígildu kvikmynd sem
gerð var eftir söngleiknum árið
1939 með Judy Garland í hlut-
verki Dóróteu. „Ég stúderaði mest
MGM-ljónið og ljón sem ég hef
séð í dýragörðum og sjónvarpinu.
Ljónið er svolítið þversagnakennd
persóna og maður er þarna að
leika huglaust ljón sem er eitthvað
sem er ekki til. Það er svona eins
og heiðarlegur stjórnmálamaður
eða heiðarlegur viðskiptamaður.
Ekki til.“
Heftir hreyfingar
„Það er kannski ekki hitinn sem
er verstur við minn búning. Frekar
hversu mikið hann heftir allar
hreyfingar,“ segir Þórir Sæmunds-
son sem leikur hinn stirðbusalega
tinkarl. „Búningurinn þvingar
mig til að standa rosa beinn í baki
og breiður í öxlum. Ég er eigin-
lega mjög hokinn náungi en þetta
eru nú ekki þjáningar. Bara mild
óþægindi.“
Svitinn rennur
Seir félagar eru á sviðinu í tvær
klukkustundir í búningunum og
það má því búast við að svitinn
renni. „Þetta er svakalegt. Þetta
er heilgalli. Ég fer bara í kulda-
galla og dansa,“ segir Halldór. „Í
flenniljósum sem hita náttúrlega
sviðið og svo er maður að dansa,
öskra og syngja þannig að ég held
að þetta verði mín líkamsrækt í
vetur. Þetta verður á endanum
„köttað“ og „massað“ ljón. Og
þetta er ferlega gaman. Mjög
skemmtilegt.“
Þórir segir að búningur tin-
karlsins hafi tekið nokkrum breyt-
ingum í ferlinu en þegar hann fór
fyrst í hann gat hann ekki hreyft
sig. „Þá var hann algjörlega eins
og hann væri úr málmi. Þannig að
nú er komið líf í hann og ég held
að þetta verði bara skemmtilegur
karakter,“ segir Þórir.
„Tinkarlinn telur sig vera
hjartalausan en er svo eiginlega
með stærsta hjartað af öllum
þarna. Má ekkert aumt sjá og
finnur til með öllum. Ég er nú
búinn að prófa ýmislegt með hann
á leiðinni og gera hann svolítið
ítalskan. Þeir eru svo snöggir
upp og rosalega tillfinningaríkir.
Þetta er svo mikið lið þessi fjögur,
ljónið, Dórótea, fuglahræðan og
tinkarlinn. Og það sem er eigin-
lega skemmtilegast við þetta er að
gera þetta saman.“
Bergur Þór Ingólfsson leik-
stýrir verkinu en auk þeirra Hall-
dórs og Þóris eru Lára Jóhanna
Jónsdóttir og Hilmar Guðjónsson í
föruneytinu í hlutverkum Dóróteu
og heilalausu fuglahræðunnar.
Sjálfur Laddi leikur svo hinn
dularfulla galdrakarl í Oz.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Helgin 16.-18. september 2011
Þetta er svaka-
legt. Þetta er
heilgalli. Ég fer
bara í kulda-
galla og dansa.
rýmingar-
sölunni
í intersport smáralind
enn meiri afsláttur!
allt á að seljast!
verslunin lokar í smáralind!
opið í dag, föstudag frá kl. 11:00-19:00
laugardag frá kl. 11:00-18:00 og sunnudag frá kl. 13:00-18:00
lýkur um helgina!
MGM-ljónið er ein fyrirmynda Halldórs
en öskur þess hefur bergmálað um
heimsbyggðina áratugum saman.
dægurmál 51