Fréttatíminn - 16.09.2011, Síða 60
Plötuhorn Dr. Gunna
hermigervill leikur fleiri
íslensk lög
Hermigervill
Svuntuþeyst um
poppsöguna
Ég hef horn í síðu kó-
verplatna. Þær eru yfir-
leitt ómerkilegar nema
þegar gömlu lögin eru
algjörlega hugsuð upp á
nýtt. Það er akkúrat það
sem Hermigervill (Svein-
björn B. Thorarensen)
gerir; fyrst árið 2009 á
plötunni Leikur vinsæl
íslensk lög, og aftur nú.
Þessi strákur er meistari
svuntuþeysanna, enda
lengi búinn að vera á
kafi í þessum bransa.
Fyrstu ár Moogs og
svuntuþeysa eru honum
hugleikin og því minnir
margt hjá honum á
frumkvöðla synta-
poppsins, menn eins og
Perrey og Kingsley, sem
samdi hið heimsfræga
Popcorn. Hér eru mis-
lúnar lummur íslensku
poppsögunnar settar í
nýjan og ferskan búning
og aldrei auðveldasta
leið valin að settu
marki. Niðurstaðan
er þrælskemmtileg og
merkilega djúpristandi
plata þar sem mikil
virðing er borin fyrir
sögunni. Húrra!
aDhD2
ADHD
Æsandi fléttur
Hvað er íslenski
framúrstefnudjassinn í
dag? Plötur sem heita
Fnæs, Moð og Dútl og
innihalda sjálfhverft
tónlistarveggfóður?
Veit ekki, en AHDH-
hópur bræðranna
Óskars og Ómars Guð-
jónssona, Davíðs Þórs
Jónssonar og Magn-
úsar Tryggvasonar
Elíassen er alla vega
ekki á þeim einmana-
legu slóðum. Þetta
eru miklir fagmenn
á hljóðfærin sín og
auðheyrt að tónlistar-
legt áhugasvið er vítt.
Lögin níu eru melódísk
og flétturnar æsandi,
dínamíkin skörp og
grúvið djúsí. Þetta
er ósungin tónlist;
einhver í líkingu við
Damo Suzuki í Can er
það eina sem kæmi
til greina ef það ætti
að hafa söngvara í
þessu bandi. Stundum
er gægst fyrir horn
„djassins“ og hamast
á sveim- og/eða póst-
rokkuðum mótívum
með góðum árangri.
Lífleg og spennandi
plata.
Dauði og djöfull
Sálgæslan
Poppspilin á
borðið
Saxófónséníið Sigurður
Flosason stígur nú út úr
veröld djassins og legg-
ur poppspilin á borðið,
þá helst sálarpoppuð
og blúsuð mannspil og
djassballöðuása. Til
að flytja frumsömdu
lögin sín hefur Sigurður
fengið skothelt lið með
sér, meðal annars Einar
Scheving trommara,
Þóri Baldursson, sem
gælir við Hammondinn,
og geislandi í frontinum
þau Andreu Gylfadóttur
og Stefán Hilmarsson.
Boðið er upp á fjórtán
vel flutt lög. Það er ekki
verið að finna upp hjólið
og þótt þetta sé ágætt
þá er þetta ekki ýkja
eftirminnilegt efni –
meira svona stöff til að
láta malla í bakgrunni
í matarboði. Titillagið
og Hæfileg refsing eru
best, gustmikil og
hressandi sálarlög.
Stefán og Andrea hefðu
alveg mátt syngja
fleiri dúetta en þessi
tvö því þau komast á
skemmtilegt flug í þeim.
Stefnumót og upplýsingafundur
um tækifæri til nýsköpunar á menntasviði
Grand Hótel Reykjavík, 19. september kl. 14.00-16.15
Dagskrá:
Ávarp
Orri Hauksson, framkvæmdastjóri SI
Hvers vegna?
Katrín D. Þorsteinsdóttir, forstöðumaður hugverkaiðnaðar og mannauðs SI
Menntun er leikur - tækifæri fyrir fyrirtæki og menntastofnanir til nýsköpunar
Ólafur Andri Ragnarsson, hönnunarstjóri Betware og aðjúnkt HR
Reynslusaga
Vilborg Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Mentors
Menntaklasi á Íslandi
Ari K. Jónsson, rektor HR
Samspil þarfa atvinnulífs og skóla
Hilmar V. Pétursson, framkvæmdastjóri CCP
Lausnir - Þarfir
Framlag fyrirtækja og stofnana
Panelumræður
Ari K. Jónsson HR, Davíð Lúðvíksson SI, Hilmar V. Pétursson CCP, Katrín D.
Þorsteinsdóttir SI, Sigurður Björnsson Rannís og Vilborg Einarsdóttir Mentor
Framhaldið
Davíð Lúðvíksson, forstöðumaður stefnumótunar og nýsköpunar SI
Stefnumót
Samtal aðila með þarfir og lausnir
Fundarstjóri: Hellen Gunnarsdóttir, mennta- og menningarmálaráðuneyti
Skráning og nánari upplýsingar á
www.si.is
Krummi í raftónlist
Tónlistarmaðurinn Krummi, sem
er best þekktur sem söngvari
þungarokksveitarinnar Mínus, gaf á
dögunum út fyrsta lag væntanlegrar
sólóplötu sinnar. Lagið, sem heitir
Broken Clock, er í rafrænum popp-
rokk-stíl undir áhrifum frá Depeche
Mode og þýsku iðnaðarrokki í
kringum 1970. „Broken Clock-titillinn
kemur frá þeirri hugmynd að sumir
myndu týnast ef alheimsklukkan
væri röng, en fyrir suma yrði það
frelsun. Síðan þýðir það líka að þú ert
ekki á leiðinni heim eftir reif klukkan
sex að morgni með sólina í andlitið.
Við erum öll Broken Clocks sem lifa
frjálsu félagslífi,“ segir Krummi í sam-
tali við raftonar.is. Hann segir jafn-
framt að lagið lýsi ekki öllu sem hann
er að gera en lýsi honum sjálfum
mjög vel. -óhþ
Krummi Björgvinsson er kominn
á slóðir raftónlistar.
S tefán Jónsson, leikstjóri og prófessor við leiklistardeild Listaháskóla Íslands, er upptekinn maður. Ekki einasta tók
það blaðamann langan tíma að ná í hann í síma
heldur hafði hann ekki nokkurn tíma fyrir
myndatöku. Bað um að fundin yrði mynd af sér
annars staðar því hann hefði bara ekki tíma –
væri afskaplega tímabundinn. Og ástæðan er
einföld. Hann er í fullu starfi sem prófessor
við Listaháskólann, stýrir á sama tíma tveimur
leiksýningum í vetur og situr í listaráði Þjóð-
leikhússins.
„Ég er að frá morgni til miðnættis og nýti
sumarfrí og helgar til að undirbúa mig bæði
fyrir kennslu og þær sýningar sem fram undan
eru,“ segir Stefán í samtali við Fréttatímann
þegar hann er spurður hvernig hann nái að
púsla þessum störfum öllum saman.
Ekki aðeins er Stefán prófessor við Listahá-
skólann heldur leikstýrir hann Hreinsun í Þjóð-
leikhúsinu fyrir áramót og Beðið eftir Godot
í Borgarleikhúsinu eftir jól. „Þetta er skipu-
lagning. Ég kenni ákveðna kúrsa og er síðan
á skrifstofunni. Þetta tekur á þegar álagið er
mikið,“ segir Stefán en þvertekur þó fyrir það
að hann færist fullmikið í fang. „Það er stefna
Listaháskólans að vera með starfandi listamenn
innan sinna raða – listamenn sem eru í nánum
tengslum við bransann,“ segir Stefán.
Samkvæmt kjarasamningi leikstjóra er ein
leiksýning fimm mánaða vinna. Stefán segir að
slíkt eigi þó ekki við um sig.
„Ég tek allan undirbúninginn
utan hefðbundins tíma. Þessi
fimm mánaða klausa á ekki
við um mig enda gæti ég aldrei
sinnt starfi mínu sem prófessor
ef ég væri með tvær sýningar
og burtu í tíu mánuði. Þetta
gengur með góðri skipulagn-
ingu.“
Og undir það tekur Hjálmar
H. Ragnarsson, rektor Listahá-
skólans. „Prófessorar hafa rann-
sóknarþátt, svokallaðan listsköp-
unarþátt, og við erum afar stolt af
Stefáni. Það er ávinningur fyrir skól-
ann að hann sé fenginn til að leikstýra
þessum tveimur stóru sýningum. Ég
hef hvatt mína prófessora til að gera sig
gildandi utan skólans og það hefur Stefán
svo sannarlega gert. Hann er
einfaldlega harðdug-
legur maður sem
stendur sig hvar
sem hann er,“
segir Hjálmar.
oskar@
frettatiminn.is
atvinna tvöfölD vinna PrófeSSorS
Að frá morgni
til miðnættis
Stefán Jónsson vinnur tvöfalda vinnu sem prófessor í Listaháskólanum
og leikstjóri. Tekur á, að sögn hins harðduglega Stefáns.
Stefán Jónsson er
á fullu alla daga.
Ljósmynd/Þjóðleikhúsið
52 dægurmál Helgin 16.-18. september 2011