Fréttatíminn - 16.09.2011, Page 64
HELGARBLAÐ
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300 ritstjorn@frettatiminn.is www.frettatiminn.is
Hrósið …
... fær Guðmundur Felix
Grétarsson fyrir þrautseigju
og bjartsýni. Franskir læknar
hafa samþykkt að græða á hann
handleggi en þá missti hann í
vinnuslysi 1989.
H E I L S U R Ú MRekkjan ehf ≤≥ Suðurlandsbraut 48 (Bláu húsin í Faxafeni) ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16
AFSLÁTTUR!
30-70%
REKKJUNNAR
ÚTSALA
A
rg
h
!
1
6
0
9
11
SÝNINGAR OG
SKIPTIRÚM
Á SÉRSTÖKU
TILBOÐI!
GRAND HAVENQueen Size rúm (153x203 cm)FULLT VERÐ 305.675 kr.
ÚTSÖLUVERÐ
152.838 kr.
= 50% AFSLÁTTUR!
CASTAWAY
King Size rúm (193x203 cm)
FULLT VERÐ 381.685 kr.
ÚTSÖLUVERÐ
114.505 kr.
= 70% AFSLÁTTUR!
BALTIC
Full XL rúm (133x203 cm
)
FULLT VERÐ 243.423 kr
.
ÚTSÖLUVERÐ
97.370 kr.
= 50% AFSLÁTTUR!
KING KOIL
King Size rúm (193x203 cm)
FULLT VERÐ 264.223 kr.
ÚTSÖLUVERÐ
158.534 kr.
ÞÚ SPARAR 105.689 kr.
KING KOIL
Queen Size rúm (153x20
3 cm)
FULLT VERÐ 163.600 kr
.
ÚTSÖLUVERÐ
98.160 kr.
ÞÚ SPARAR 65.440 kr.
SÍÐASTI DAGUR Á MORGU
N
Jón Kalman fær
sænsk verðlaun
Rithöfundurinn Jón Kalman
Stefánsson fékk í gær hin virtu
sænsku Per Olov Enquist-verð-
laun sem kennd eru við rithöf-
undinn P. O.
Enquist og
voru sett á
laggirnar árið
2005 – í tilefni
af sjötugsaf-
mæli hans.
Verðlaunin
verða afhent
á bókamess-
unni í Gautaborg næstkomandi
fimmtudag. Himnaríki og helvíti,
fyrsta bókin í þríleik Jóns, kom
út í Svíþjóð í fyrra og önnur,
Harmur englanna, er nýkomin
út. Von er á lokabók þríleiks-
ins Hjarta mannsins nú í haust.
Í umsögn dómnefndar segir
að skáldsaga Jóns Kalmans
fjalli um dreng sem er á milli
himnaríkis og helvítis, lífs og
dauða, kærleika og sorgar og
hafs og fjalla. „Hún er bæði
stórfengleg og göldrótt. Frá-
sögn sem gefur bókmenntun-
um nýtt líf,“ segir enn fremur í
umsögninni.
Kynning fyrir karlmenn
með krabbamein
Ljósið stendur fyrir fræðslu-
og kynningarfundi fyrir
karlmenn sem hafa greinst
með krabbamein, eiginkonur
þeirra og
nánustu að-
standendur
mánudag-
inn 19.
september
klukkan
17.30 í
húsnæði
Ljóssins að Langholtsvegi 43.
Matti Osvald heilsufræðingur
ætlar að halda erindi um mis-
muninn á körlum og konum,
og hversu mikilvægt það er
fyrir karlmenn að fá fræðslu
og heyra um reynslu ann-
arra sem hafa byggt sig upp
eftir greiningu. Auk þess mun
Halldór Snær Bjarnason, sem
kom fram í Fréttatímanum
fyrir skömmu, segja frá eigin
reynslu og hvernig það nýttist
honum þegar eiginkona hans
dró hann í endurhæfinguna í
Ljósinu. -óhþ
90 hlutverk
Félag leikskálda og handritshöf-
unda byrjaði á fimmtudaginn
tveggja kvölda dagskrá undir
merkjum Grósku þar sem átján
ný íslensk leikrit eftir jafn marga
höfunda eru kynnt með leik-
lestri upp
úr völdum
köflum.
Verkið Opnun
eftir Hallgrím
Helgason var
á meðal þeirra
leikrita sem
lesið var upp
úr á fimmtudagskvöld. Tuttugu
þjóðþekktir leikarar koma að
kynningunni og öll verkin eiga
það sameiginlegt að hafa aldrei
verið flutt áður. Í hópnum eru
bæði ungir höfundar með sín
fyrstu verk og margreyndir höf-
undar með sín nýjustu verk.
Dagskrá föstudagsins hefst í
Tjarnarbíói klukkan 19.30 en
þá verður lesið úr verkum eftir
Steinunni Sigurðardóttur, Sigríði
Jónsdóttur, Hrund Ólafsdóttur,
Völu Þórsdóttur, Sigurbjörgu
Þrastardóttur og fleiri.
Á laugardaginn verður í fram-
haldinu efnt til málþings um
stöðu höfundarins í leikhús-
inu. Þingið hefst klukkan 14 í
Tjarnarbíói.