Læknablaðið - 01.06.1966, Blaðsíða 21
LÆKNABLAÐIÐ
GEFIÐ ÚT AF LÆKNAFE'LAGI ÍSLANDS
O G LÆKNAFÉLAGI REYKJAVÍKUR
Aðalritst jóri: Ólafur Jensson. Meðritstjórar: Magnús Ólafsson og
Þorkell Jóhannesson (L.Í.), Ásmundur Brekkan og Sigurður Þ. Guðmundsson (L.R.)
52. ÁRG. REYKJAVÍK, JÚNÍ 1966 3. HEFTI
ÓLAFUR PÁLL JÓNSSON
HÉR AÐSLÆKNIR
ll\l MEMORIAM
Hinn 2. desember 1965 andaðist
Ólafur Páll Jónsson héraðslæknir
í Álafosshéraði eftir langa sjúk-
dómslegu á sjúkradeild Heilsu-
verndarstöðvarinnar hér, þá að-
eins 66 ára gamall.
Ólafur fæddist 5. október 1899
að Ósi í Arnarfirði. Hann var son-
ur hjónanna Björnfríðar ljósmóð-
ur Benjamínsdóttur og Jóns bónda
Guðmundssonar, Jónssonar prests
á Álftamýri, Ásgeirssonar prófasts
i Holti, Jónssonar, móðurbróður
Jóns Sigurðssonar forseta. Talið
var, að Benjamín, móðurafi Ólafs,
væri launsonur Hjálmars skálds
frá Bólu Jónssonar.
Ólafur ólst upp í foreldrahúsum við Arnarfjörðinn til sjö
ára aldurs, fvrst að Ósi, siðan í Hokinsdál, en þar lézt faðir lians
árið 1907, 2. febrúar. Þá stóð ekkjan ein uppi með allan barna-
hópinn, hið yngsta rétt ófætt. Alls urðu börnin ellefu, cn þrjú
létust í æsku.
Þarna stóðu ekkjan og börnin í fjörunni og horfðu á eftir